Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 70
66 bíó Helgin 2.-4. nóvember 2012 Ég var eitt- hvað að derra mig á Facebook. Maður getur aldrei haldið kjafti.  Frumsýnd morðmál  Bíó Paradís svartir sunnudagar s igurjón Kjartansson segir hugmynd-ina að Svörtum sunnudögum hafa sprottið upp úr þrasi á Facebook þar sem hann var að barma sér yfir að dagskrá Bíó Paradísar væri ekki nógu skemmti- leg. „Það opnaðist allt í einu einhver smá umræða um þetta þegar ég var eitthvað að derra mig á Facebook. Maður getur aldrei haldið kjafti,“ segir Sigurjón. „Mér fannst dagskráin í Bíó Paradís ekki nógu skemmtileg sem mér þótti miður vegna þess að ég er mikill bíómaður og mig hefur einmitt alltaf dreymt um svona bíó í Reykjavík.“ Sigurjón bætir við að Hrönn Sveinsdóttir, hjá Bíó Paradís, hafi gripið hann glóðvolgan í netumræðunni. „Hún kom þar með þessa pælingu hvort ég gæti kannski stofnað einhvern hóp sem hefði þessa költ-nálgun. Þetta þróaðist bara svona og við þremenningarnir, ég, Hugleikur og Sjón, erum komnir í þetta.“ Sigurjón segir þá félaga alla hafa gríðarlega góðan smekk á kvikmyndum og játar því aðspurður, hlæjandi, að smekkur þeirra sé líka mjög áþekkur. „Þannig að við erum oft sammála sem er ekki verra.“ Sigurjón segir að þeir félagar verði með myndir í sigtinu sem taki sig ekkert of alvarlega. „Eða þannig lagað. Þetta eru hryllingsmyndir, költ-myndir og jafnvel B-myndir sem hafa áunnið sér ákveðinn sess. Við verðum líka með stórklassísk verk og Hitchcock verður aufúsugestur hjá okkur og Chaplin líka.“ Sigurjón segir að frumforsenda þess að klúbbur eins og Svartir sunnudagar geti gengið sé að bíófólk sýni lit og láti sjá sig í Paradís. Það dugi skammt að sitja heima fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna og barma sér yfir að aldrei sé nein klassík í bíó. „Fólk verður að sjálfsögðu að mæta og þegar maður er farinn að sjá að það er til dæmis húsfyllir á Inferno eftir Dario Arg- ento, sem er mynd sem þú getur nálgast ókeypis á YouTube, þá fer maður að trúa því að þetta hljóti að vera hægt. Hver vill líka sitja einn heima hjá sér og glápa á ein- hverja mynd í tölvunni? Bíóferð er meira en það. Bíó er að sýna sig, sjá aðra og njóta stundarinnar í sameiningu. Með poppi og kóki.“ Hrekkjavakan var á miðvikudaginn og því þótti vel við hæfi að hefja dagskrá vetr- arins með hinni sígildu uppvakningamynd Dawn of the Dead eftir George A. Romero. „Þetta er hin eiginlega Halloween-helgi og 4. nóvember förum við í Dawn of the Dead, sem er náttúrlega hin stóra og mikla zom- bie-klassík frá 1978, og svo kemur bara hver snilldin á fætur annarri. Við stefnum síðan bara á eina allsherjar gleði á hverjum sunnudegi.“ Aðrar myndir sem Sigurjón, Hugleikur og Sjón stefna á að bjóða upp á næstu vikurnar eru One Million Years B.C., Big Trouble in Little China, Black Sunday og fleiri sjaldséðar perlur. Sunnudagskvöldin í vetur verða sérlega hressileg í Bíó Paradís en kvikmyndanördarnir Sigurjón Kjartansson, Sjón og Hugleikur Dagsson hafa tekið að sér að handvelja sígildar bíómyndir, költ- klassíkera og athyglisverðar B-myndir sem sýndar verða í nafni költ-hópsins Svartir sunnudagar. Félagarnir munu ríða á vaðið á sunnudagskvöld í góðu Halloween-stuði með hinni sígildu upp- vakninga hrollvekju Dawn of the Dead eftir meistara George A. Romero. Síðan mun hver „snilldin á fætur annarri“ fylgja í kjölfarið, eins og Sigurjón orðar það. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Jennifer Lawrence, hetjan okkar allra úr The Hunger Games, og Elisabeth Shue leika mæðgur sem flytja í nýtt hús. Þær komast að því að stúlka sem bjó í næsta húsi myrti foreldra sína með köldu blóði og hvarf síðan sporlaust. Eftirlifandi bróðir hennar býr enn í húsinu. Nágranninn og morðmálið vekja áhuga dótturinnar sem fer að hitta bróðurinn gegn vilja móðurinnar sem er viss um að hann sé ekki allur þar sem hann er séður. Aðrir miðlar: Imdb: 5.7, Rotten Tomatoes: 11%, Metacritic: 31% Mæðgur í vondum málum Sígildar B-myndir, költ og klassík Sigurjón Kjartansson, Hugleikur Dagsson og Sjón ætla að halda svarta sunnudaga hátíðlega í Bíó Paradís í vetur og bjóða upp á fjölbreytt úrval sígildra bíómynda.  Frumsýnd skrímslaveisla Fimm stjörnu gisting hjá Drakúla Í teiknimyndinni Hotel Transylvania talar Adam Sandler fyrir sjálfan Drakúla greifa. Aðstæður Drakúla eru, að þessu sinni, töluvert öðruvísi en bíógestir eiga að venj- ast. Nú rekur hann hótel í heimalandi sínu ásamt dóttur sinni. Hótelið er sérstaklega ætlað skrímslum og dauðleg manneskja hefur aldrei rekið nefið þar inn. Sérstök helgi er framundan á hótelinu þar sem til stendur að fagna 118 ára afmæli Mavis, dóttur Drakúla. Á boðslistanum eru mörg frægustu skrímsli heims. Til dæmis óskapnaður Frankensteins, Múmían, Ósýnilegi maðurinn og varúlfafjölskylda. Drakúla á ekki í nokkrum vandræðum með að hafa ofan fyrir þessum skrautlega hópi gesta en öllu er stefnt í voða þegar manneskja ráfar inn á hótelið og til að bæta gráu ofan á svart verður viðkomandi yfir sig hrifinn af Mavis. Auk Sandlers fara Selena Gomez, Kevin James, David Spade, Cee Lo Green, Fran Drescher, Steve Buscemi og Molly Shannon með helstu hlutverk í myndinni. Aðrir miðlar: Imdb: 7.2, Rotten Tomatoes: 43%, Metacri- tic: 47% Uppvakningar Romeros í Dawn of the Dead eru fyrstir á dagskrá Svartra sunnudaga og herja á gesti Bíó Paradísar á sunnudagskvöld. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  MIÐASALA: 412 7711 KOMDU Í KLÚBBINN! bioparadis.is/klubburinn Airwaves Off-Venue 14-20 fös og lau. Ókeypis! SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! NÝTT Í BÍÓ PARADÍS! BERBERIAN SOUND STUDIO ***** “Sérlega framandi. Sérlega góð.” - The Guardian ***** “Ein besta mynd ársins.” - The Observer SVARTIR SUNNUDAGAR: Kl. 20 sunnudag. Aðeins þessi eina sýning. DAWN OF THE DEAD DRAUMURINN UM VEGINN 3. hluti Gengið til orða KjúKlingamáltíð fyrir 4 Grillaður kjúklingur – heill Franskar kartöflur – 500 g Kjúklingasósa – heit, 150 g Coke – 2 lítrar* *Coca-Cola, Coke Light eða Coke Zero 1990,- Verð aðeins + 1 flaska af 2 L H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.