Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.11.2012, Síða 18

Fréttatíminn - 02.11.2012, Síða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. T Torfskáli, Þorláksbúð, sem reistur hefur verið við hlið Skálholtskirkju er skipulags-slys. Torfhúsið er staðarlýti sem verður að fjarlægja. Húsafriðunarnefnd hefur stutt það gildum rökum að færa beri torfhúsið sem raskar samspili tveggja af vönduðustu byggingum 20. aldar sem hafa mikið gildi í íslenskri byggingarlistasögu. Annars vegar er það Skálholtskirkja sem Hörður Bjarna- son, húsameistari ríkisins, teiknaði árið 1956 og hins vegar Skálholtsskóli, sem Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson teiknuðu árið 1970. Fram kom í umsögn Húsa- friðunarnefndar fyrir ári þegar reynt var að friða Skál- holtsskóla, Skálholtskirkju og nánasta umhverfi, svo koma mætti í veg fyrir skipulags- slysið, að Hörður hefði í útfærslu sinni á kirkjunni haft hliðsjón af Brynjólfskirkju sem stóð frá 1650 til 1807, krosslöguð með þverskipi og hliðarskipum. „Skálholtskirkja er,“ sagði þar, „einstaklega glæsileg í sínum einfaldleika og látleysi. Við hönnun Skálholtsskóla höfðu arkitektarnir fyrri tíða þorpsmynd í Skálholti í huga. Byggingunni er skipt upp í minni hús með tengigangi og til að árétta mikilvægi sam- ræmis í byggingum í Skálholti var skólinn hafður í sömu litum og kirkjan. Vegna þessa hárfína jafnvægis sem skapað hefur verið í Skálholti og myndar eitt fegursta mann- gerða umhverfi nútíma byggingarlistar á landinu, ber að fara mjög varlega í allar breytingar og íhuga gaumgæfilega hvaða áhrif þær hafa á grenndina.“ Menntamálaráðherra taldi lagaskilyrði bresta svo mæla mætti fyrir friðun mann- virkjanna. Því var haldið áfram með bygg- ingu torfhússins sem raskar hinu fína sam- spili skóla og kirkju. Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður Húsafriðunarnefndar, víkur að því, í nýút- kominni ársskýrslu nefndarinnar, að öllum undirbúningi áður en til byggingar torf- hússins kom hafi verið áfátt. Hvorki hafi verið fengið leyfi sveitarstjórnar né stjórnar Skálholtskirkjugarðs fyrir framkvæmd- unum auk þess sem „álitamál var um það hvort í gildi væri deiliskipulag og hvort sam- þykki þyrfti frá erfingjum höfunda Skál- holtsskirkju.“ „Mikil ástæða er,“ segir Nikulás, „til að furða sig á allri þessari atburðarás. Hvað gengur mönnum til þegar vaðið er áfram með svo viðkvæmt mál á stað sem er tví- mælalaust meðal merkustu staða á Íslandi með hliðsjón af menningarsögu þjóðarinnar og hunsa allar viðvaranir og umsagnir fag- aðila, s.s. Húsafriðunarnefndar, Arkitekta- félags Íslands, Skipulagsstofnunar, höfunda deiliskipulags Skálholtsstaðar og Kirkju- ráðs, sbr. bókun á fundi þess 21. september 2011? Hver er tilgangurinn með því að taka áhættuna á því að skaða umhverfið í Skál- holti með byggingu húss sem alls ekki telst vera tilgátuhús þar sem ekki hefur verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að hús af þessari stærð og gerð hafi áður staðið á þessum stað og má því halda fram að sé sögufölsun?“ Þjóðkirkjan verður að höggva á þann hnút sem hnýttur var í bráðræði í aðdrag- anda byggingar torfhússins á hinu merka biskupssetri. Þar er litið til leiðtoga hennar, Agnesar M. Sigurðardóttur biskups og Kristjáns Vals Ingólfssonar, vígslubiskups í Skálholti. Þau koma bæði ný að málinu, tóku við embættum sínum í ár og í fyrra. Færið gefst á kirkjuþingi í þessum mánuði. Þar leggur Baldur Kristjánsson, sóknar- prestur í Þorlákshöfn, fram tillögu um að Þorláksbúð verði færð. Fram kom í viðtali við Baldur í Morgunblaðinu í liðinni viku að Þorláksbúð hafi verið reist á röngum stað. „Ég legg þetta fram því mér finnst að æðsta stofnun kirkjunnar, kirkjuþing, geti ekki látið hjá líða að taka þetta mál til umræðu og skoðunar. Mér finnst umgjörð þessa máls alla tíð hafa verið furðuleg þó ekki sé meira sagt.“ Baldur leggur til að Þorláksbúð verði færð vestur og niður fyrir Skálholts- dómkirkju, þar sem hún skyggir ekki á neitt en er samt nálægt kirkjunni: „Jafnmikið lýti og hún er á ásýnd Skálholtsstaðar nú yrði hún staðarprýði vestan við og neðan við kirkjuna.“ Presturinn segir, réttilega, að aldrei verði friður um Þorláksbúð eins og hún er núna. Færa verður Þorláksbúð Kirkjuþing og biskupar höggvi á hnútinn Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is TIL LEIGU 1500 FERMETRA STÓRGLÆSILEGT VERSLUNARHÚSNÆÐI Á DALVEGI 10-14 Uppl. Pétur 660-1771 eða petur@klettas.is 18 viðhorf Helgin 2.-4. nóvember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.