Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.11.2012, Síða 48

Fréttatíminn - 02.11.2012, Síða 48
44 heilsa Helgin 2.-4. nóvember 2012  Matreiðslubók anna rósa grasalæknir og ástríðukokkurinn albert GMP VOTTAÐ www.nowfoods.is HÁMARKS UPPTAKA VÍTA ÍND G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum www.gengurvel.is BELLAVISTA náttúrulegt efni fyrir augun, ríkt af lúteini og bláberjum ÞREYTT AUGU É g heyrði af gömlum hjónum sem elduðu súpukjötsréttinn úr bók-inni. Konan sagði mér að hún hefði brugðið á það ráð að fela afgang- ana, þar sem maðurinn hefði ekki getað hætt. Hana hafi langað svo að eiga eitt- hvað eftir til næsta dags. Mér fannst þetta svo sætt og góð meðmæli.“ Þetta segir Anna Rósa Róbertsdóttir sem hef- ur ásamt Alberti Eiríkssyni sett sam- an matreiðslubók. Hún segir einfald- leikann hafa verið í fyrirrúmi við gerð bókarinnar. Fréttatíminn fékk Önnu Rósu til þess að gefa okkur nokkrar kraftmiklar uppskriftir til þess að taka með okkur inn í veturinn, en hún segir að krydd og lækningajurtir geta virkað vel sem forvörn fyrir kvefi og öðrum krankleikum. „Mér finnst fátt betra í skamm- deginu en að fá mér kryddte ættað frá Indlandi. Það er kallað „Chai te“ á Vesturlöndum og fæst í ótal- mörgum útgáfum. Þetta te er alveg sérdeilis kröftugt og manni hlýnar niður í tær við að drekka það. Yfir vetrartímann drekk ég teið nánast á hverjum degi, enda gefur það mér orku og kraft. Yfir- leitt fæ ég mér það eftir kvöldmat. Hun- angið í því full- nægir sætu- þörfinni og nasl seinna um kvöldið verður al- ger óþarfi. Stundum á ég það til að gera teið tölu- vert sterkara en í neðangreindri upp- skrift og þá verð ég tvöfalt orkumeiri. Þótt ég drekki það á kvöldin heldur það ekki vöku fyrir mér, en einnig er tilvalið að fá sér það á morgnana.“ María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Krydd og lækningajurtir for- vörn gegn kvefi og krankleika Anna Rósa grasalæknir og ástríðukokkurinn Albert hafa brennandi áhuga á eldamennsku og lækn- ingajurtum. Þau hafa tekið höndum saman og útkoman er fjöldi girnilegra og gómsætra rétta þar sem krydd- og lækningajurtir eru í hávegum hafðar. Meðal efnisins í bókinni má meðal annars finna nær- ingarríkan morgunmat, kjöt-, fisk- og grænmetisrétti og súpur að ógleymdum drykkjum, brauði og eftir- réttum. Í bókinni er einnig að finna fræðandi upplýsingar um lækningamátt jurtanna og stungið er upp á öðru hráefni þegar ekki fást ferskar lækningajurtir á veturna. Kraftmikið kryddte grasalæknisins 5–6 negulnaglar 6–8 heilar kardimommur ½–1 kanilstöng 4–6 svört piparkorn 4–6 sneiðar af ferskri engiferrót hnífsoddur af rifinni múskat- hnetu 1 bolli vatn 1–2 tsk. svart te í lausu, t.d. Earl Grey 1 bolli hrísmjólk 1–2 tsk. hunang Myljið kardimommur í mortéli og setjið í pott ásamt öðru kryddi og vatni. Látið sjóða undir loki í ½–1 mínútu. Bætið svörtu tei út í og látið sjóða stutta stund í viðbót. Bætið síðan hrísmjólk út í og látið suðuna koma upp. Síið, hellið í könnu og bætið hunangi út í. Einnig má nota fjallagrös í staðinn fyrir svart te, en þá eru fjallagrösin sett út í með kryddinu strax í upphafi. „Fjallagrös eru einstaklega hollur matur og því full ástæða til að hafa þau sem oftast á boðstólum. Hefð- bundið er að sjóða þau í mjólk með sykri, en hér er brugðið út af venjunni með því að krydda þau og nota hrísmjólk í stað kúamjólkur. Mér hafa alltaf þótt fjallagrös góð á bragðið, en ég verð að viðurkenna að mér finnst þau ennþá betri krydduð með kanil og pipar.“ Fjallagrasamjólk grasalæknisins Fyrir 1–2 Handfylli af fjallagrösum 2 bollar hrísmjólk ½ tsk. kanill ½ tsk. svartur pipar 1 tsk. hunang Setjið fjallagrös, hrísmjólk og krydd í pott og sjóðið við vægan hita í 4–5 mínútur. Bætið hunangi saman við síðast og hrærið í. Forvörn gegn háls- bólgu og kvefi. 2 msk vallhumall 2 msk blóðberg eða garða- blóðberg (timjan) 1 msk hvannarfræ 5-6 sneiðar af ferskri engiferrót Jurtirnar eru settar í 750 ml hitabrúsa og sjóðandi vatni hellt yfir. Síið jurtirnar frá þegar hellt er í bolla en setjið þær svo aftur í hitabrúsann og látið liggja allan daginn. Drekkið einn hitabrúsa á dag. Anna Rósa og Albert Höfðu einfald- leikann í fyrirrúmi í nýrri bók. Kardimommur (Elettaria cardamomum) Kardimommur þykja mjög góðar við ógleði, magaverk, uppþembu, vindgangi, niðurgangi og krömpum. Þær draga úr slímmyndun og gagnast vel gegn astma og öðrum lungnasjúkdómum ásamt því að styrkja þvagfærakerfið. Kardimommur eru líka gjarnan tuggnar gegn andremmu og þær þykja draga úr hvítlaukslykt. Löng hefð er fyrir því að nota kardimommur til að örva hugann og draga úr þreytu og þunglyndi sam- fara langvarandi veikindum, auk þess sem þær eiga að örva kynhvötina. Í mörgum löndum er algengt að blanda kardimommum saman við te eða kaffi til að draga úr örvandi áhrifum þeirra. Svartur pipar (Piper nigrum) Löng hefð er fyrir því að nota pipar til lækninga en algengast er að nota svartan pipar. Græn, hvít og svört piparkorn eru allt sami piparinn en aðferðir við vinnsluna eru ólíkar. Græn piparkorn eru tínd óþroskuð og síðan súrsuð, svört piparkorn tínd óþroskuð og þá þurrkuð, en hvít piparkorn eru tínd þroskuð og látin liggja í vatni í 8 daga áður en þau eru þurrkuð. Pipar örvar allt blóðflæði og hefur einnig bakteríudrepandi áhrif. Hann þykir góður við uppþembu, magaverk, vindgangi, hægðatregðu og lystarleysi. Eins er vel þekkt að pipar getur ýtt undir áhrif annarra lækningajurta og kemískra lyfja. Rannsóknir á svörtum pipar hafa leitt í ljós hamlandi áhrif á vöxt krabbameins- frumna og jákvæð áhrif á liðagigt, minnisleysi og háan blóðþrýsting. Ilmkjarnaolía unnin úr svörtum pipar er notuð útvortis við liðverkjum og tannverk.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.