Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 66
Ef þrautin er 3 x 3 reitir eru notaðar tölurnar 1 til
3, ef hún er 4 x 4 reitir eru notaðar tölurnar 1 til 4
o.s.frv.
Sama tala má einungis koma fyrir einu sinni í
hverjum dálki og hverri línu.
Svæðin, sem eru afmörkuð með þykkum línum,
kallast hólf.
Stundum nær hólfið bara yfir einn reit og þá er
augljóst hvaða tala á að koma þar.
Oftast nær hólfið þó yfir fleiri en einn reit og þá
fylgir þeim tala og eitthvert
stærðfræðitákn, þ.e. +, –,
x eða ÷. Ef talan er t.d. 5 +
þá á summa talnanna í því
hólfi að vera samtals 5. Ef
talan er 2- þá á mismunur
talnanna að vera 2. Í erfiðari
þrautunum er svo einnig
margföldun og deiling.
Svör við talnaþrautunum
má senda í hefðbundnum
pósti á ritstjórn Fréttatím-
ans, Sætúni 8, 105 Reykja-
vík. Lesendur geta líka tekið
mynd af lausnunum með
símanum eða myndavél og
sent á netfangið
leikur@frettatiminn.is
62 skák Helgin 2.-4. nóvember 2012
Skákakademían
Hitler drap fyrsta heimsmeistara kvenna í skák
H ou Yifan, heimsmeistari kvenna, vann hug og hjörtu Íslendinga þegar
hún tók þátt í N1 Reykjavíkur-
skákmótinu í Hörpu í mars. Hún
er aðeins 18 ára, fædd 27. febrúar
1994, í Xinghua í Kína og er sann-
kallað undrabarn. Hún heillaðist
af skák aðeins þriggja ára gömul
og fór að tefla reglulega þegar
hún var sex ára. Eftir það hefur
leiðin aðeins legið upp á við og
Hou Yifan hefur slegið hvert metið
á fætur öðru. Aðeins 12 ára varð
hún yngst allra til að taka þátt í
heimsmeistarakeppni FIDE og
14 ára var hún orðin stórmeistari.
Árið 2010 varð hún svo yngst allra
í sögunni til að verða heimsmeist-
ari í skák, aðeins 16 ára! Hún er
núna næststigahæsta kona heims,
einungis hin goðumlíka Judit
Polgar er ofar á stigalistanum.
Hou Yifan stóð sig með miklum
sóma á N1 Reykjavíkurskák-
mótinu, og varð bara sjónarmun á
eftir ítalska snillingnum Fa-
biano Caruana, sem farið hefur
með himinskautum á þessu ári.
Skömmu áður en Hou Yifan kom
til Íslands hafði hún náð hreint
ótrúlegum árangri á móti á Gí-
braltar, þar sem hún varð í efsta
sæti ásamt gamla undrabarninu
Nigel Short. Frammistaða Hou
Yifan á Gíbraltar jafngilti 2872
skákstigum, en til samanburðar
má nefna að Magnus Carlsen
hefur tæp 2850 stig á toppi heims-
listans. Hou Yifan byrjaði í haust
nám í alþjóðasamskiptum við Bej-
ing-háskóla, en aðdáendur hennar
um allan heim vona auðvitað að
hún haldi áfram af fullum krafti í
skákinni.
Brautryðjandinn
Vera Menchik
Fyrst var keppt um heimsmeist-
aratitil kvenna árið 1927 og þar
sigraði hin 21 árs gamla Vera
Menchik með yfirburðum. Hún
fæddist í Moskvu 16. febrúar 1906
og var af tékknesku og bresku
bergi brotin. Hún lærði mann-
ganginn 9 ára og sýndi strax
mikla hæfileika. Á unglingsaldri
naut hún þjálfunar hjá Geza Ma-
róczy sem var einn besti skákmað-
ur heims. Um þetta leyti var næst-
um alveg óþekkt að konur tefldu
á skákmótum og Vera Menchik
var því mikilvægur brautryðjandi
og fyrirmynd. Þegar hún tók
þátt í frægu skákmóti í Karlsbad
1929 setti austurríski meistarinn
Arnold Becker sig upp á móti því,
og sagði fáránlegt að leyfa konum
að tefla á skákmótum með körlum.
Becker, sem greinilega var
gamaldags karlrembusvín, sagði
að þeir karlar sem slysuðust til
að tapa fyrir henni ættu að stofna
,,Veru Menchik klúbbinn“. Svo
kaldhæðnislega vildi til að Becker
steinlá fyrir Veru á þessu skák-
móti og varð þannig fyrsti félaginn
í klúbbnum!
Vera Menchik varði heimsmeist-
aratitil sinn sex sinnum og það er
til marks um yfirburði hennar, að í
þeim viðureignum sigraði hún í 78
skákum, gerði 4 jafntefli og tapaði
aðeins einni. Reiknið út vinnings-
hlutfallið!
Vera lét lífið ásamt systur sinni
og móður í eldflaugaárás Þjóð-
verja á London 27. júní 1944. Hún
varð aðeins 38 ára.
SkákþRautin
Hvítur er í sókn, en
hvernig er hægt að
knýja fram mát?
Lausnin er í senn
lúmsk og skemmti-
leg!
1.Dxh7+!! Rxh7 2.Rg6+
Kg8 3.Ba2+ (Leynivopn-
ið!) De6 4.Bxe6 mát!
Hou Yifan. Yngsti heimsmeistari sögunnar.
Vera Menchik. Fyrsti heims-
meistari sögunnar.
Krúsaðu
frítt í eitt ár
*Upphæð inneignarkortsins er 260.000 kr. sem samsvarar 1.000 lítrum á núverandi verði.
**Meðalakstur miðað við fólksbíl (bensín), árið 2011, samkvæmt Umferðarstofu.
1.000
LÍTRAR INNIFALDIR*
Cruze LTZ bsk. 4d | Verð aðeins 3.190 þús.
Aðein
s
örfáir
bílar
eftir!
Tangarhöfða 8 • 590 2000 | Njarðarbraut 9 • Reykjanesbæ • 420 3330 | Bílaríki • Glerárgötu 36 Akureyri • 461 3636 | www.benni.is
Þegar þú kaupir Chevrolet Cruze
færðu 1.000 lítra* inneignarkort
með hágæða Shell V-Power
bensíni. Miðað við um 12.200
km** akstur á ári má segja að
þú akir frítt í eitt ár.
Chevrolet Cruze er áberandi
glæsilegur og hlaðinn staðalbúnaði
Reglurnar eru einfaldar:
verðlaunaþrautir
talnaþrautir
KenKen-talnaþrautirnar hafa notið mikilla
vinsælda og henta jafnt ungum sem öldn-
um. Þær eru frábær heilaleikfimi. KenKen-
talnaþrautabækurnar eru nú fáanlegar á
Íslandi og því tilefni mun Fréttatíminn birta
tvær gátur í hverju tölublaði næstu vikurn-
ar. Lesendur geta sent inn svör við gát-
unum og í hverri viku verða dregnir út tveir
heppnir þátttakendur sem fá KenKen-bæk-
urnar sendar heim að dyrum frá Bókaútgáf-
unni Hólum.
Nafn
Heimili
Sími Netfang