Fréttatíminn - 02.11.2012, Side 72
68 bækur Helgin 2.-4. nóvember 2012
Bækur IngIBjörg,leIkkona, rIthöfundur og fótaaðgerðafræðIngur
É g ætlaði mér í fyrstu bara að rumpa af lítilli sætri barnabók um Gísla á Uppsölum en fljótlega
eignaðist verkið eigið líf og varð miklu
stærra,“ segir Ingibjörg Reynisdóttir
leikkona um nýja bók sína, Gísli á Upp-
sölum, sem kom út í vikunni á 105 ára
afmæli Gísla, en frá því Ingibjörg var
ellefu ára og sá Gísla fyrst í sjónvarps-
viðtali við Ómar Ragnarsson hefur hún
verið heilluð af honum.
„Síðan gerist það 2007 að ég er að
svæfa son minn og býsnast yfir öllu
draslinu í herberginu hans að ég ákveð
skyndilega að segja honum sögu af Gísla
af Uppsölum sem átti nú ekki mikið en
var ánægður með það sem hann átti. Þá
uppgötva ég hvað þetta er áhugaverð
saga og held af stað í rannsóknarvinnu,“
útskýrir Ingibjörg sem studdist m.a
við skrif Gísla, skáldskap og þanka úr
kverinu Eintal sem nágranni hans, Ólaf-
ur Gíslason á Neðri bæ, setti saman að
Gísla látnum. Gísli kom henni verulega
á óvart.
Leikrit og bíómynd
Ingibjörg er dugnaðarforkur og kjarn-
orkukona. Hún lærði leiklist í Danmörku
á tíunda áratugnum en hafði áður lært
bæði fótaaðgerðafræði og nudd. Enn
þann dag í dag grípur hún í fæturna því
listagyðjan er dyntótt þegar kemur að
krónum og aurum („launin koma þegar
þau koma,“ segir Ingibjörg) en síðustu
ár hefur verið nóg að gera hjá Ingibjörgu
sem leikkona og svo hefur hún sprungið
út sem rithöfundur.
Árið 2005 skrifaði Ingibjörg leikritið
Móðir mín, dóttir mín, en það var frum-
sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Ingi-
björg lék móðurina sjálf en Ísgerður Elfa
Gunnarsdóttir lék vanrækta dóttur sem
tók ábyrgð á heimilinu vegna vanhæfni
móðurinnar. Svo skrifaði hún bók um
unglinga, Strákarnir með strípurnar,
með dóttur sinni, Lovísu Rós Þórðar-
dóttur, en sú bók varð að kvikmyndinni
Óróa auk framhaldsins, Rótleysi, rokk
og rómantík.
Gísli lagður í einelti
Aðspurð um hvaðan dugnaðurinn kemur
segist Ingibjörg fyrst og síðast vera að
sinna áhugamáli sínu. Hennar ástríða
hefur alltaf verið leiklist og hún setur
það ekki fyrir sig að skrifa hlutverkin sín
sjálf en hún lék ekki bara í fyrrnefndu
leikriti heldur líka í bíómyndinni sem
byggði á bókum hennar. Nú er svo komin
ný bók, Gísli á Uppsölum, en í bókinni
lýsir Ingibjörg brostnum vonum Gísla.
Hann var ungur lagður í einelti og setti
það mark sitt á hann og allt hans líf.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Leikkonan og Gísli á Uppsölum
Dimma hefur gefið út sérstaka við-
hafnarútgáfu af ljóðabókinni Eystrasölt
eftir sænska skáldið Tomas Tranströ-
mer sem á síðasta ári hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels. Hjörtur Pálsson
íslenskaði verkið og útgáfunni fylgir
ennfremur geisladiskur með upplestri
hans. Östersjöar heitir bókin á frum-
málinu og kom fyrst út árið 1974. Hún
hefur talsverða sérstöðu meðal verka
Tranströmers og er vel til þess fallin
að standa ein og sér. Íslenska útgáfan
er vandaður prentgripur og kemur út
í 175 tölusettum eintökum, árituðum
af þýðanda. Bókarkápu prýðir málverk eftir Eggert
Pétursson.
Tomas Tranströmer fæddist árið
1931. Hann gaf út fyrstu ljóðabók sína,
17 dikter, 1954 og vakti strax talsverða
athygli fyrir nýjan tón, hnitmiðað form
og sérstæð og persónuleg efnistök.
Ljóðabækur hans eru 15 talsins. Fyrir
eina þeirra, För levande och döda,
voru honum veitt bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1990. Síðasta
bók hans, Den stora gåtan, kom út árið
2004.
Hjörtur Pálsson, skáld og þýðandi,
hefur meðal annars sent frá sér all-
margar frumsamdar og þýddar ljóða-
bækur, auk rómaðra þýðinga á skáldsögum Nóbels-
verðlaunahafans Isaac Bashevis Singer.
Nóbelsverðlaunahafi í 175 tölusettum eintökum
Launin
koma
þegar
þau
koma.
Leikkonan Ingi-
björg Reynis-
dóttir hefur
skrifað bók um
Gísla á Uppsöl-
um. Hún hefur
áður sent frá
sér vinsælar
unglingabækur
en segir sögu
Gísla ótrúlega
áhugaverða.
Hann var
ungur lagður í
einelti og setti
það mark sitt á
allt hans líf.
Hér er Ingibjörg að Uppsölum ásamt litla kút.
Ingibjörg í gamla húsinu hans Gísla.
Nóbelsverðlaunarithöfundur-
inn Tomas Tranströmer.
eystrasölt eftIr tomas tranströmer
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Útgáfuteiti aldarinnar!
Fögnum Sögu dægurtónlistar
á Íslandi eftir Dr. Gunna.
Bókabúð Máls & menningar, Laugavegi.
Föstudaginn 2. nóv. kl. 18:00.
Veitingar! Stuðrantur á tilboði!
7 landsþekktir leyni gestir!
sogurutgafa.is
með Retina skjá
Nýr og öugri
er lentur
iPad 4
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012