Heimilisritið - 01.10.1947, Page 36

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 36
veðrið er svona gott? Þú lítur út eins og þú værir. ... Hún hætti skyndilega að hlæja. — Hjartans litli vinurinn minn — er eitthvað að? Er þér illt í höfðinu? — Nei, þrumaði Michael og hvarf inn í baðherbergið. Hún heyrði vatnið niða þar inni líkt og beJjandi foss — það var í fullkomnu samræmi við hið úfna skap hans. Miehael var ekki einn af þeim, er syngja i baðherberginu á morgnana. Ilann var ekki alltaf auðveldur viðureignar, hann Michael hennar, en hún elskaði hann og vissi hvernig átti að fara að honum. Hún lét geðillsku hans og duttlunga ekki.fá á sig. Hún hló að honum, eða hlustaði á hann með djúpri alvöru, en með glettn- islegar brosviprur við munnvikin, sem lægðu reiði hans. Þegar þau trúlofuðust, fyrir ])remur árum síðan, höfðu margir aðvarað hana, jafnvel sumt af skyldfólki Michaels. Það viður- kenndi, að Michael væri einkar glæsilegur maður og prýðilega gáf- aður, en — nú, jæja, „þrætugjarn“ var miklasta lýsingarorðið sem not- að varð til að lýsa skapgerð hans. Joan lá hreyfingarlaus og brosti ljúfu brosi. Fólk veit allt um alla! Hún var eina manneskjan, sem Michael reifst ekki við. Það þarf tvo til að koma af stað rifrildi, og hvenær sem Michael gerði sig lík- legan til að hegða sér bjánalega, 34 hervæddist hún hlátri sínum og ást, líkt og riddararnir st'eyptu yf- ir sig hringabrynjum til forna. Hún spratt fram úr rúminu, gekk fram á ganginn og hrópaði glaðlega: — Bonjour, Yvonne! Vilduð þér færa okkur morgunverðinn! Síðan flýtti hún sér inn í barna- herbergið. Michael litli sat uppi í vöggunni í miðju geislaflóðinu og minnti á hvítþveginn engil. Hann veifaði tréspæninum sínum til hennar og hjalaði af fögnuði. Joan tók hann upp, kyssti hann og þrýsti honum að sér. Mikið var hún hamingjusöm! Mikið var líf hennar bjart og skemmtilegt! Það var leikur einn að vera húsmóðir, úr því hún hafði Yvonne og móður hennar, madame Jubelin, sem afköstuðu jafn miklu og fjórar venjulegar vinnustúlkur; Michael litli .var allra barna þæg- astur, og stóri Michael og hún sjálf voru ung og höfðu ævinlega haft heppnina með sér. Þegar hún heyrði fótatak Yvonne í stiganum, lét hún barnið í vögguna og gekk aftur inn í svefnherbergið. Michael var nú fullklæddur, en var enn jafn reiðilegur og þung- búinn á svip; hann settist þegjandi við litla borðið út við gluggann og bvrjaði á einiberjamaukinu sinu. Joan brosti til hans og hellti kaffi i bollann hans. Mikið vor- HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.