Heimilisritið - 01.10.1947, Blaðsíða 53
Spennandi framhaldssaga, sem byrjaði í síðasta hefti
Morðið í klettavíkinni
. eftir Agatha Christie
Nýir lesendur geta byrjað hér:
A Smyglaraeynni, sem tengist við Suð-
ur-England með örfirisgrauda. var fyrir fá-
einum árum stofnað rólegt og ríkmannlegt
sumarhótel. Gestir þeir, sem dvelja þar
þetta sumar og komið hafa við sögu, eru
þessir:
Ilcrcule Poirot er nafnkunnur, belgiskur
einkaspæjari.
Arlena (Stewart.) og Kenneth Marshall,
ásamt Lindu, dóttur Kenneths af fyrra
hjónabandi. Arlena var áður Ieikkona og á
vafasama fortíð; er fögur og mikið pilta-
gull. Kenneth er hlédrægur og myndarlegur
kaupsýslumaður. Linda er fremur ólánlegur
unglingur og ber haturshug til Arlenu.
Rosamund Damley er fræg tízkusama-
kona, skynsöm og viðfelldin; æskuvinkona
Kenneths.
Patrick og Christinc Redjem. Ung hjón.
Hann virðist vera hrifinn af Arlenu, og hin
sakleysislega kona hans hefur veitt því at-
hygli.
Barry majór er uppgjafa herforingi og
ekki ónæmur fyrir fögrum konum.
Odell Gardcner og frú. Amerísk, mið-
aldra hjón, fremur viðfelldin. Hún er mál-
ug mjög, en hann fámáll og auðsveipur.
Vngfrú Brewster er nokkuð hryssingsleg
piparmey.
Scra Stephan Lane er taugaóstyrkur
prestur.
ANNAR IvAPÍTULI
I.
HERCULE Poirot dró enga dul
á ánægju sína, þegar Rosamund
Darnley kom og settist hjá hon-
um. Eins og hann seinna kannað-
ist við, dáðist hann að Rosamund
Darnley meira en nokkrum öðrum
kvenmanni, sem hann hafði
kynnst. Ilann dáðist að tiguleik
hennar, hinum fagra líkamsvexti,
svarta, fallega, liðaða hárinu og
háðslega brosinu.
Ilún var í dökkbláum kjói með
hvítu ívafi. Iíann var ósköp ein-
faldur og fór vel. Rosamund Darn-
ley var ein af helztu kven-klæð-
skerum í Lodon.
Fyrirtæki hennar hét Rose
Mund Ltd.
Hún sagði:
„Eg held ég kæri mig ekki um
að vera hér lengur. Eg veit eigin-
lega ekki, hvers vegna ég va.r að
fara hingað“.
„Þér hafið verið hér áður, er
það ekki?“
HEIMILISRITIÐ
51