Heimilisritið - 01.10.1947, Side 41
ig líður Binky? Hann ætti að
koma bráðum og leika sér við
Michael litla.
Joan brosti. Hún brosti, þegar
hún kyssti Peggy að skilnaði, og
þegar hún kvaddi ’Arthur. Hún
brosti unz dyrnar lokuðust að baki
þeirra; þá tóku tárin að streyma
niður vanga hennar, hún þrýsti
enninu að veggnum og skalf af
ekka.
ÞAÐ VAR 11. júní þegar Mich-
ael kvaddi. Joan starði á dagatal-
ið. 11. desember. Það var í fyrsta
sinn, siðan hann fór, að hún hafði
þurft að líta á dagatalið. „í dag er
miánuður bðinn“, hafði hún sagt
í júlí. Um þær mundir hírðist hún
í húsinu Jíkt og ósjálfbjarga, ama-
lynt barn og ha.fði gjörsamlega
misst kjarkinn. „Mér er sama. —
Lofið þið mér að vera í friði“, sagði
hún að staðaidri.
Síðan kom ágúst — en þá var
hún byrjuð að vinna. Með saman-
bitnar varir og rauðþrútin augu
þrælaði hún hvíldarlaust og lét sig
allt annað engu skipta. Móðir henn-
ar var flutt til hennar, og Joan fór
til borgarinnar með fyrstu lest á
hverjum morgni og kom heim
klukkustund síðar en Michael var
vanur. Freddy Cartar reyndi að
telja um fyrir henni, já, og meira
að segja Douglas gamli Peabody
líka; en loks tókst þeim að sefa
samvizku sína með því að veita
benni launahækkun, og nú, eftir
sex mánaða starf, vann hún sér
meira inn en, AI ichael hafði nokkru
sinni gert.
Þetta fékk henni einkennilegrar
og biturrar gleði: Hún gat komizt
af án iMichaels! Hún saknaði þess
eins, að hann var ekki vitni að vel-
gengni hennar.
Hún fletti viðskiptabréfunum
sínum og fann á meðal þeirra bréf
frá Michael. Ósjálfrátt lokaði hún
augunum og hélt niðri í sér andan-
um. Stolt, sjálfsánægja, biturleiki
— allt sópaðist það í gurtu. Ef til
vill kemur hann aftur, hugsaði
Joan og opnaði áfjáð umslagið.
Kœra Joun!
Doty fer heim til Encjlands í
nœstu viku, en ég verð eftir í
París. Ef þií þarft að geru mér
aðvart um eitthvað geturðu
sent bréfið poste restante. Ferð-
in hefur verið skemmtileg, og
við höfum lent .í margvíslegum
œvintýrum. Ef til vill ,hefurðu
lesið um það í hlöðunum. Eg
vona að þér og Michael litla
líði vel. Skrifaðu mér, ef þú hef-
ur tíma, og segðu mér hvernig
líður.
Með beztu kveðjum,
M ichael.
Hún grét ekki, en andlit henn-
ar varð stjarft, og það svifu þok-
ur fyrir augum hcnnar. Michael!
HEIMILISRITIÐ
39