Heimilisritið - 01.10.1947, Page 62

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 62
vitleysu; ég get varla sagt að ég hafi talað við hana“. „Það er ekki satt“. „Fyrir alla muni, farðu nú ekki að leggja í vana þinn að verða af- brýðisöm í hvert skifti sem maður rekst á laglega stúlku“. „Hún er ekki eins og allar aðrar. Hún er sérstök. Hún er naðra. Hún fer með þig í gönur. Ó, Patrick, hættu við hana. Við skulum fara burtu héðan“. Patrick Redfern setti fram hök- una þrjóskulega. „Vertu nú ekki með neinn kjánaskap“, sagði hann. „Vit5 skul- um ekki rífast út af því lengur“. „Ég kæri mig ekki um að ríf- ast“. „Reyndu þá að haga þér skyn- samlega. Komdu; við skulum fara inn aftur“. Hann stóð upp, og það varð þögn. Síðan stóð Christine upp og sagði: „Já, jæja þá“. Velbirgt veitingahús Einu sinni var veitingahús í Soho, sem auglýsti, að það gæti afgreitt hvern þann rétt, sem gestirnir bæðu um. Gestur nokkur, sem vildi reyna á þolrif matsveinsins, bað um vel brúnaða fílasteik til kvöldverðar. „Afríkanska eða indverska?“ spurði þjónninn. Maðurinn kvaðst lieldur vilja steik af indverskum fíl og horfði spenntur á eftir þjóninum, er hann hvarf inn um eldhúsdyrnar. Nokkrum mínútum síðar kom þjónninn aftur og sagði í afsökunarrómi: „Þér mynduð víst ekki fást til að breyta pöntun yðar?“ „Nú, jæja. Þér getið þá þrátt fyrir allt ekki látið mig fá fílasteikr“ svaraði gesturinn sigri hrósandi. „Jú, það er ekki það“, sagði þjónninn, „heldur vildum við að þér kys- uð afríkanska fílasteik í staðinn. Yfirmatsveinninn vill síður byrja á nýjum fíl svona síðla dags“. í næsta skúta sat Hercule Poivot og hristi höfuðið mæðulega. Einhver annar myndi hafa fært sig til, og reynt að komast hjá því að vera vottur að sliku einkasam- tali. En Hercule Poirot lét það ekkert á sig fá. „Þar að auki“, sagði hann seinna við vin sinn Hastings, „var morð á seyði“. Hastings sagði undrándi: „En morðið hafði ekki verið framið þá“. Iíercule Poirot dæsti. „En — það lá í augum uppi“. „Iívers vegna reynduð þér þá ekki að koma í veg fyrir það?“ Hercule Poirot blés þreytulega og sagði, að ef einhver væri alveg ákveðinn í að fremja morð, þá væri ekki hægðarleikur að koma í veg fyrir það. Hann ásakaði sig ekki. Að hans áliti var það óhjákvæmi- legt. Framhald í nœsta hefti 60 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.