Heimilisritið - 01.06.1950, Síða 9
Astin og ógifta konan
EFTIR JANET EVANS
r -n
★
Hvaða möguleikar bíða ógiítr-
ar konu í ástalífi hennar? Hér
er opinská umræða varðandi.
þetta þjóðfélagslega vanda-
mál
★
V_____________________________
HVERNIG leysir hin ógifta
kona kynferðisleg vandamál sín
á þessum síðustu og verstu tím-
um? Hvers vegná eru slík vanda-
mál meira knýjandi fyrir hana
heldur en fyrir kynsystur hennar
næstu kynslóð á undan? Hvern-
ig fær hún reist rönd við því,
sem bæði læknar og sálfræðing-
ar telja einhverja helztu orsök
almennrar taugaveiklunar? Fyr-
irfinnst nokkur alhlít lausn, sem
geti samrýmzt viðhorfi okkar
nútímamanna með tilliti til sið-
ferðis og lagafyrirmæla?
Svörin við þessum spurning-
um eru geysiáríðandi fyrir það
þjóðfélag sem við lifum í, þareð
ekkert þjóðfélag fær haldið inn-
byrðis styrk sínum og heilbrigði
nema því aðeins, að skapgerð
konunnar sem það byggir geti
hjálpað þar til. Þess vegna er
nauðsynlegt, að hin ógifta kona
geti samræmzt þjóðfélaginu sem
bezt — því þjóðfélagi, sem hún
fórnar jafn miklu af skapandi
hæfileikum sínum og raun ber
vitni um.
Því vill Coronet (tímaritið
sem birti greinina á frummál-
inu) nú koma fram með þessa
opinskau gagnrýni á þeim hlut-
um, sem svo allt, of oft eru séðir
frá röngum sjónarmiðum og
ræddir af hræsni. Tilgangurinn
er ekki sá að vekja óheilbrigða
forvitni, heldur að beina athygl-
inni að vandamáli, sem viðkem-
ur miklum hluta fjöldans. Án
þess að athyglin sé leidd að stað-
reyndunum, verður leiðin til úr-
lausnar á vandamálunum aldrei
hreinsuð af þeim torfærum, sem
þar hafa verið um aldaraðir.
HEIMILISRITIÐ
7