Heimilisritið - 01.06.1950, Side 14

Heimilisritið - 01.06.1950, Side 14
fimm af þeiin 5.750.000 ógiftu konum, sem búa í Bandaríkjun- um og eru milli 20 og 64 ára. Af þeim eru 4.600.000 undir 44 árum. Astæðurnar fyrir því, að þær eru ógiftar, eru geysimarg- ar, og að svo komnu máli ekki nauðsynlegt að telja þær upp. I3að sem hér skiptir mál er það, að þær eru ógiftar, og að' kvn- ferðismálin eru — að öllum lík- indum — geysimikil vandamál fyrir þær. Að vísu ekki allar. Til eru kon- ur, sem er borgið sökum óhagg- anlegra trúarskoðana þeirra, er hafa áhrif á siðferðið. Til eru einnig konur eins og Catlierine, sem eru ánægðar í starfi sínu eða hafa komizt upp á það lag að aðla hvatir sínar með' félags- legu starfi. Með því móti hafa þær veitt sér á fjölmörgum öðr- um sviðum þau hrifnæmu ævin- týri, gleði og ánægju, sem hið stóra atriði hefði e. t. v. veitt þeim, er þær liafa farið á mis við. Svo eru enn aðrar ógiftar kon- ur, sem dvelja mestan part inn- an fjölskylduhringsins eð'a í öðru samsvarandi þröngu umhverfi, þar sem kynlíf er mjög takmark- að og jafnvel óhugsandi, og þær konur eru mjög oft óvitandi um þá nauðsyn á kynlífi, sem þær ella myndu finna til. Sumar hafa beinlínis valið sér það hlutskipti að verða ekki á vegum karl- manna. Fyrir þær er vandamál- ið meira heimspekilegt en raun- verulegt. En að þessu frádregnu er enn eftir sá stóri hópur lcvenna, sem lifa „óleyfilegu“ kynlífi með fjölda maka og hafa ótakmörkuð tækifæri. Það er ýmsum óljóst, sem ól- ust upp á árunum fyrir fyrri heimsstvrjöldina, hvernig ógift- ar konur geti átt við að stríða „kynferð'ileg vandamál“ yfir- leitt. I tilfellunum með Ann og Peg konni hvorki peningar né at- vinnuleysi til greina sem orsakir. En hvers vegna á sér þá annað eins stað? Við skulum revna að gera okk- ur dálitla grein fyrir, hvernig á- standið var í Bandaríkjunum fyrir fyrri heimsstyi’jöldina. Flestir íbúanna lifðu fremur á- hyggjulitlu lífi. „Góð“ stúlka var hrein mey allt til lijóna- bandsins, og ekki um annað' að ræða en hún væri manni sínum trú til dauðans. Ef ekki, þá var hún „vond“ kona, og vondar konur voru gerðar útlægar í þjóðfélaginu, — það' er að segja, ef upp um þær komst. Og eins og þjóðfélagið var 1914, var miklu auðveldara að komast eft- ir öllu slíku heldur en nú á dög- um. Viðurkenningin ein á því, að til séu kynferðileg vandamál, 12 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.