Heimilisritið - 01.06.1950, Side 17

Heimilisritið - 01.06.1950, Side 17
uðu i'rjálsar ástir til handa kon- unni utan hjónabands, gleyindu oft því sem var aðalatriðið — að konur einar skilja til hlítar tilfinningalíf kvenna. Hið sérkennilegasta við kven- eðlið verður ekki séð í fljótu bragði undir smásjá. Líkamleg vellíðan og ánægja konunnar er nátengd þörfinni fyrir því að sjá um heimili og helga sig þeim manni sem hún elskar. Með öðr- um orðum, það er andstætt kvenlegu eðli að hugsa sér full- nægingu kynhvatar gegnum ó- stöðuga bráðabirgðalausn "— þótt gáfuðum konum takist stundum að fallast á slíkt sem fræðikennignu. Tökum til dæmis Ruth og Ge- org, sem „fyrir einhverja tilvilj- un“ tóku að lifa saman eftir að hafa verið góðir vinir, en ekki meira, um rúman mánaðartíma. Ruth var 34 ára og hafði ágæta atvinnu við verzlun, enda þótt hún liugsaði sér ekki að gera verzlun að ævistarfi sínu, heldur ganga að eiga „hinn rétta mann“, þegar þar að kæmi. Hún var enganveginn ástfangin af Georg, þegar þau tóku að lifa saman; en eftir því sem náinn kunningsskapur þeirra varð langvinnari, tók hún að ímynda sér, að hann væri ýmsum þeim eiginleikum gæddur, sem hann ekki var. Einn góðan veðurdag langaði liana til að giftast hon- um. En hvað er að segja af Georg? Framkoma hans breyttist á eng- an hátt þá sex mánuði, sem vin- átta þeirra hélzt. Hann elskaði hana ekki meira að þeim tíma liðnum heldur en hann hafði gert þegar þau hittust fyrst. hann var fráskilinn og langaði ekki í hjónaband aftur að svo stöddu, auk þess sem hann hafði ekki fj árhagslegar aðstæður til þess. Hann þurfti að gefa með tveim börnum. En Ruth hafði breytzt. Hún var farin að bíða þess eins, þeg- ar hún kom heim frá vinnu, að Georg heimsækti sig, — stund- um kom hann snennna, stundum seint, og stundum alls ekki. Það reyndi á taugar hennar að bíða í óvissu. Spenningurinn jókst. Hún var farin að verða stygg- lynd. Þegar hún sýndi Georg fram á, hvað hún vildi, bjó hann sig undir að segja kunningsskapn- um slitið. Það tók hann ekki langan tíma. „Ég gæti ekki þol- að konu, sem gengi á eftir mér!“ sagði hann, tók hatt sinn og var farinn. Ruth var langan tíma að jafna sig eftir þetta. Hún ákvað, að næsta skipti skyldi hún hugsa sig betur um. Þrem árum síðar kynntist hún öðrum manni, svip- HEIMILISRITIÐ 15

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.