Heimilisritið - 01.06.1950, Side 18

Heimilisritið - 01.06.1950, Side 18
uðum Georg'. í örvæntingu sinni yfir því að' hafa áður verið eftir- gangssöm og kröfuhörð ákvað hún að leyfa sér ekki slíkt nú. En þessi stöðuga bæling eðlilegr- ar framkomu hefur valdið lienni miklum andlegum sársauka, og enda þótt hún sé stillt og jafnvel kuldaleg hið ytra, líður henni raunverulega illa. Bælingin og óttinn við hið gagnstæða tog- ast á. I þessari grein gerist þess varla þörf að' fara nánar inn á það atriði, livort ógiftar konur láti kynlíf afskiptalaust yfirleitt sökum hræðslu við afleiðingarn- ar eða vegna fastrar ákvörðun- ar. Vísindamenn, sem hafa kynnt sér hina löngu sögu hjóna- bandsins, telja, að praktískar á- stæður engu síður en siðferðileg- ar liggi oft til grundvallar skír- lífi kvenna. En athyglisvert er það, að félagsfræðingar og sál- fræðingar, sem gera lítið úr ýms- um ströngum siðferðikenningum, viðurkenna þó, að þau bönd, efnaleg og siðferðileg, sem tengja fjölskyldur innbyrðis, hafi góð áhrif á skírlífi konunnar. Það verður ekki fullyrt með neinum vísindalegum sönnun- um, að konan sé fædd með „eðl- ishvöt til hjónabands“. En hvort heldur það er „eðlishvöt“ eða eitthvað annað, verður því ekki neitað, að það er heilbrigð'asta og öruggasta leiðin fyrir konuna til kynferðislífs. Ekkert í upp- eldi, fortíð eða menntun þeirrar konu, sem aldrei giftist, hefur raunverulega búið liana undir giftingu. Kringumstæðurnar hafa einmitt leitt til hins gagn- stæða. Stúlka sem býr á heimili for- eldra sinna eða lifir í fremur þröngum hring að staðaldri, hef- ur sjaldan mikil tækifæri til að lifa kynferð'islífi, sökum þeirrar einloldu ástæðu, að hætta er á því að það „komist upp“. Hún hlyti að binda hugann stöðugt við það, hvað gert yrði eða sagt, ef hún reyndist vera ói'rísk einn góðan veðurdag. Hvort heldur konan er á heim- ili eða einhleyp, er nauð'synlegt fvrir hana að kunna að meta gildi skírlífisins. Elestir uhgir menn meta það mikils að giftast stúlkum, sem hafa lifað' hreinu lífi, livað sem þeir kunna að tala gáleysislega á stundum. Og enn- þá nauðsynlegra er að athuga, hvort samfarir fyrir hjónaband- ið hafa góð áhrif eða ill fyrir seinni tímann. Er nauðsynlegt að' hafa reynslu í kynlífi, áður en gengið er að altarinu? Bæði læknar og sálfræðingar telja það ónauðsynlegt. Sérhver ung lijón, sem hafa fullan vilja á því, að hjónabandið verði far- sælt, munu geta lært að lifa full- 16 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.