Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 25

Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 25
vel og vandlega notkunarregl- urnar á flöskumiðanum og tók til starfa. Eftir liálftíma var blessaður presturinn búinn, og þá þvoði hann sér rækilega um hendurnar og í framan til þess að ná af sér svertunni, las í brevíaríum og fór með bænirnar sínar og smeygði sér síðan í rúm- ið'. Tunglið gægðist inn um gluggann á litla luisinu, sem stóð t’il hliðar við kirkjuna. Þar, beint fyrir framan arininn, gat að líta stór stígvél, sem gljáðu eins og ný-fægður tinkoppur. Presturinn fór á fætur kjukk- an fimm, því að Issy er stór sókn, og þar er í mörg horn að líta. Hann las bænirnar sínar enn á ný, þakkaði guði fyrir feg- urð akranna, en þeir voru hjúp- aðir léttum þokuslæðing í morgunsárinu, og menn voru nú þegar teknir til við vinnu sína á þeim. Presturinn klæddi sig nú, fór í stígvélin og skundaði út í kirkju til þess að syngja morg- untíðir. Þegar hann gekk hinn margtroðna stíg milli blómarað- anna, gljáðu stígvélin hans betur en þau höfðu nokkuru sinni gert áður, og giaðbjört morgunsólin speglaðist á þeim. I stað þess að búa huga sinn undir skyldur 'þær, sem fram undan voru, fór presturinn að liugsa um skó- svertu og skóbursta. Meðan á messugerðinni stóð, léku um fætur hans marglitir geislar frá litklæðum dýrlinganna og stríðs- mannanna á gluggamálverkun- um. Honum veittist örðugt að einbeina huganum að því, sem hann var að gera, og hann átti fullt í fangi með að varna því, að fram á varir hans kæmu orð, sem ekki áttu við. Og þegar hann var að fara inn aftur til morgunverðar, blikuðu glamp- arnir undan hempunni, eftir því sem hann bar til fæturna. Ef það ætti nokkurn tíma við að taka svo til orða, að einhver sé með hjartað í skónum, þá mátti segja, að séra Dagnet væri það þennan bjarta júnídag. Eftir morgunverðinn kom unglingurinn Ernest Vitry með þau skilaboð, að amma hans væri að deyja og óskaði eftir að vera þjónustuð. Margir okkar hefðu nú verið harðbrjósta og sagt: „Ha? — Einu sinni enn?“, því að Vitry gamla hafði hlotið viðbúnað til að mæta dauðan- um þrisvar á því sama ári, en liafði snúið aftur frá dal dauð- ans hvað eftir annað líkt og öldr- uð leiksviðsgyðja, sem er treg til að hverfa af vettvangi sigra sinna. En það hvarflaði aldrei að prestinum að segja neitt í þessa átt. Hann setti líkama Krists og blóð í meðfærileg ílát, stakk þeim í vasa sinn, fór í messu- HEIMILISfUTlÐ 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.