Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 32
Ertu góður félagi ?
Vinátta cða félagsskaput cr veiga-
meiri þáttur í öllu lífi okkar en margur
liyggur, og að vera góður félagi er
hreint ekki svo auðvelt. Ef maður er það,
þá hefur hann líka góða og gilda ástæðu
til þess að vera stoltur. Margt ungt fólk
álítur, að það sé mjög drengilegt gagn-
vart félögum sínum. En ef málið er
athugað betur, þá verður sú staðreynd
ckki umflúin, að ýmislegt skörtir þar
á. Það er hægt að gcra rnanni greiða,
án þcss að vcra góður félagi hans, nema
sfður sé. Vinátta krefst miklu meira
en vinargreiða öðru hverju. Til þess
að vcra sannur félagi eða vinur, þarf
hclzt að þekkja sál hins aðiljans. Er
þessu þannig varið mcð þig?
Rcyndu að svara eftirfarandi spurn-
ingum, scm samdar eru af sálfræðingi,
og þú nnint komast að raun um, að
þig skortir þrátt fyrir allt sitt af hverju
upp á að vera það sem kallað cr „góður
félagi".
6 spurningar til pilta i<f—18 ára.
1. Myndirðu möglunariaust þola
óréttlæti, ef þú mcð því móti gætir gert
félaga þínum gagn?
2. Myndi þér gremjast, ef félagi
þinn ynni í íþróttakeppni, sem þú hefðir
sjálfur viljað vinna, og sem þú hefur
þjálfað þig td í margar vikur?
3. Myndirðu koma upp um félaga
þinn í skólanum, ef þú hlytir sjálfur
refsingu clla?
4. Gætirðu neitað þér um eittlivað,
sem þú hefur mikla löngun til, einungis
til þess að gleðja félaga þinn?
5. Myndirðu hlæja að félaga þínum,
ef hann yrði sér til háðungar?
6. Finnst þér sjálfsagt, að þið skipt-
ið og notið jafnt alla hluti ykkar, alveg
sama þótt það séu peningar, sælgæti,
bækur eða frímerki?
Svar:
Til þess að vera góður félagi verður
maður að geta svarað minnst þremur
spurningum játandi. Ef fjórum er svar-
að neitandi, þarf margt að læra, áður en
maður getur kallazt góður félagi. En
það er nauðsynlegt að svara tveimur
spurningum neitandi Það er rangt að
svara öllum spurningunum játandi —
þá skortir þig enn talsvert á að vera
góður félagi.
6 spurningar til manna 18—22 ára.
1. Gætirðu hugsað þér að slíta vin-
áttu vegna ungrar stúlku?
2. Ef félagi þinn segir þér eitthvað
um unga stúlku, myndirðu þá segja
það þnðja manni?
3. Verðurðu graniur, ef þú getur
ekki fengið félaga þinn á sömu skoðun
og þú í pólitísku máli?
4. Virðir þú helgustu tilfinningar
félaga þíns, eða hlærðu að þeim?
5. Viltu alltaf vera sá sem mestu
ræður í kunningjahóp þínum?
6. Gremst þér, ef aðrir eru þér fróð-
ari og taka þig ekki alveg háríðlegan?
Svar: ■
Ef þú ert góður félagi, þá áttu að
svara fjórurn af spurningunum neitandi.
Það ber síður en svo vott urn að þú
sért góður félagi, ef þú svarar þeim
30
HEIMILISRITIÐ