Heimilisritið - 01.06.1950, Side 47

Heimilisritið - 01.06.1950, Side 47
að hlusta á sögu með ópersónu- legu hugarfari . .I sama bili kom þjónustustúlkan með mat- inn hans. Hann réðist á hann af mikilli lvst. — „Evrjið' bara að segja söguna“, sagði hann. ÞAÐ var ótrúlegt, en Kaja tók í raun og veru að segja allt sem var. Það myndi létta af henni byrði, og Alan Dall var bráðókunnur maður, sem hún sæi líklega aldrei framar: Á morgun ætlaði Robert Gra- ham að koma í heimsókn til hennar, Robert, sem var auglýs- ingaritstjóri stærsta -blaðsins í fæðingarborg hennar, Robert, sem hún elskaði, en ekki elskaði hana. Alan Dall kinkaði kolli. Slíkt hafði maður hevrt áður, sagði hann, en svo hélt Kaja áfram og sagði, að það versta væri, að hún hefði opinberað Robert, hversu hrifin hún var af honum. Þau höfðu verið í samkvæmi með mörgu öðru ungu fólki. Ro- bert og hún urðu ein, og. . .. Já, hún hafði verið svo barnaleg að lofa honum að kvssa sig. Hún hélt hann gerði það af því að hann elskaði hana, en svo hafði breytzt veður í lofti. Hann hafði gefið henni í skyn, kuldalega, að svona koss væri markleysa ein ... jú, það merkti aðeins, að hún væri óvenju lagleg' og aðlaðandi stúlka, en heldur ekki meira. Karlmaður giftist ekki stúlku fyrir það eitt, að hann hafði kysst hana. .. . Þetta gerðist nú allt fyrir meira en ári síðan, en í morgun hafði hún fengið bréf frá Robert. Hún hafði farið til höfuðborgar- innar skömmu síðar og hafði ekki heyrt eitt orð frá honum fyrr en nú, að hann skrifaði og boðaði heimsókn sína. „Það ber ef til vill að skilja þannig, að hann nú, þegar þér hafið verið burtu, hafi farið að hugsa sig betur um. Honum þyk- ir ef til vill vænt um yður í raun og veru“, sagði Alan Dall. „Nei, þannig er því ekki var- ið“. Kaja varð áköf. „Hann hitti frænku mína af hendingu, og fékk að vita heimilisfang mitt. Hann vantar bara stúlku til að bjóða út annaðkvöld, og þá hef- ur honum dottið ég í hug“. „Eruð þér smeyk við að hitta hann?“ spurði Alan. „Eruð þér hrædd um, að þér gleymið yður í annað sinn?“ „Já“, sagði Kaja og laut höfði. Röddin varð hvíslandi. „Eg er ennþá hrifin af honum. Og ég get ekki leikið“. „Þér neyðist nú blátt áfram til þess. Þér verðið að láta sem þér séuð vön að skemmta yðúr mikið. Þér verðið að vera yfir- lætisleg og fín. Búið yður glæsi- HEIMILISRITIÐ 45

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.