Heimilisritið - 01.06.1950, Side 53

Heimilisritið - 01.06.1950, Side 53
Utivera HollráÖ eftir Frank Crane Mikil útivera læknar næstum allt. Gakktu berhöfðaður, og láttu útiloft- ið leika um hárið, þá ver það þig betur móti skallanum. Fleygðu af þér fötunum, og liggðu í sandinum í sólskininu, unz þú verður sólbrenndur og hraustur sem villimað- ur. Farðu út og leitaðu matarlystarinnar. Hún er einhvers staðar úti. Farðu út og losaðu þig við taugaveikl- unina. Hún á heima inni í liúsinu. Aðrar meinsemdir, sem húsin herja, eru meltingarleysi, harðlífi, lifrarveiki, deyfð og svefnleysi. En það em ei aðeins líkamlegu mein- in, sem í húsunum leynast, heldur alls konar aðrar plágur, óþægindi og óþrifn- aður. Trúarjátningar voru soðnar saman í loftlausum herbergjum. Trú og traust og tryggð, ást og von og dirfð, eru förunautar fjalla og skóga og sigla sæinn og sækja mót sól og stormi. Jesús kenndi undir beru lofti. Klerka- samkundur og kirkjuþing eru háð inn- an fjögurra veggja. Afturför trúarbragð- anna er merkjanleg frá Fjallræðunni, til hins kæfandi dauðalofts bænahúsanna. Uppfræðsla og menntun, ætti fram að fara undir beru lofti. Eftirlætis draum- ur minn, er háskóli utan gátta, þar sem lærisveinamir gengu skólausir, og lærðu speki sína undir sól og stjörnum. Sá háskóli myndi kenna hverju jarð- arbarni, að verða sterkt og hraust sem pardusdýr. En hraustir líkamir stemma að mestu stigu fyrir andlegum kveifar- skap og duttlungum. Hvar nema úti, getur þú lært grasa- fræði og jarðfræði og stjörnufræði? Sönn vísindi þrífast bezt undir beru lofti, eins og náttúran sjálf. Leiktu þér úti. Feluleikur, boltaleikur og eltingaleikur eru þér betri og hoilari en blindingsleikur, bridge eða póker. Jafnvel kossarnir verða betur að not- um úti en inni. Þegar þú ert búinn að elta stúlku hálfa mi'lu til að kyssa hana, þá kemstu fyrst að raun um, hvers virði sannir kossar eru. Át er hollara utan gátta en innan. Hesturinn er hraustari en maðurinn, af því hesturinn verður að ganga og leita eftir munnfylli af grasi, sem hann bítur. Otivera er úrlausn fangahúss-vanda- málsins. Frá svartholi til sólar á leið mannfélags-úrtíningsins að liggja, ef hann á nokkurn rima að rísa frá eyði- leggingu til endursköpunar. Vitskertir sjúklingar, sem fyllast æði og bræði í klefum sínum, verða rólegri og friðsamari úti. Börnum fer miklu betur og fljótar fram úti en inni. Útivera er ódýr og ríkuleg. Guð bjó til allt utanhúss, en menn- irnir allt innanhúss. Og guð býr úti, en mennirnir inni — með skurðgoðum sínum. Endir. HEIMILISRITIÐ 51

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.