Heimilisritið - 01.06.1950, Page 60

Heimilisritið - 01.06.1950, Page 60
liefur haft eins mikil áhrif á þessa villi- menn, og þú á sínum tíma hafðir á Ameríkumenn. Eini mismunurinn er sá, að kunningsskapur þinn og hinna innfæddu mun ekki kremja hjörtu þeirra. Þeir munu frekar hugsa um, hvað þú gætir verið lostæt máltíð. Ka- raki sagði við mig, að hörund þitt væri eins og „hjarta kokoshnetunnar" og hann sleikti út um, og hann klappaði á . . .“ „Eg bað um sígarettu", tók Joan aft- ur fram í fyrir honum. „Fyrirgefðu". Hilary opnaði veskið og rétti henni það. „Virginia hérna megin, tyrkncskar hinum megin. Þú manst sjálfsagt eftir þessu veski, er það ekki? „Taktu við þessu, Hilary, með öllum mínum beztu óskum...“ sagð- ir þú, þegar þú gafst mér það. Hvenær var það nú aftur? Eru ekki nokkur hundmð ár síðan?“ „Eldspýmr, ef þú vilt gera svo vel“, sagði Joan með uppgerðarkæruleysi, þegar hún hafði tekið sér sígarettu. Hilary kveikti á eldspýtu og hélt henni að sígarettunni hennar. Joan blés dálitlum reykjarmekki frá sér, hallaði sér aftur á bak í stólnum og krosslagði fæturna. I raun og veru var hún langt frá því að vera róleg, en hún reyndi að láta líta svo út. Hún vissi, að Hilary horfði stöðugt á hana, en hún leit ekki upp. Hann settist á bríkina á stólnum, sem hann hafði risið úr, og Joan sá útundan sér að hann las áritunina á sígarettuveskinu. „Til Hilary Sterling, sem lítilfjörleg- ur vottur um þakklæti og virðingu, frá Joan Allison, sem hann bjargaði úr lífs- háska", las hann. „Mér þótti gaman að vita hvort okkar var meiri bjáni þann dag og hvort okkar gabbaði hitt. „Takm við því, Hilary, með öllum mínum beztu óskurn", sagðir þú, og ég hélt að þú meintir talsvert af þessu. Eg tók við því, Joan, og nú ætla ég að taka á móti afganginum, svo að all- ar þínar góðu óskir geti rætzt. Má ég ennþá gleðjast yfir þakklæti þínu og virðingu?“ „Þú hlýtur að vera genginn af vit- inu,“ svaraði Joan án þess. að líta á hann. „Þú varst alveg mglaður, dag- inn scm ég gaf þér veskið, og ég hefði aldrei átt að fyrirgefa þér eða trcysta þér aftur". Hilary andvarpaði, lét veskið niður í brjóstvasann aftur og spennti greip- ar um hné sér. „Ruglaður, já, það kann að vera rétt hjá þér“, sagði hann rólega. „Mér þætti fróðlegt að vita, hve marga menn þú hefur gert ruglaða, að frátöldum Peter Mernfield. Finnst þér það í raun og vem nokkurt spaug, að skemmta sér við það að gera einhvern ógæfu- saman? Hefurðu aldrei haft minnstu hugmynd um, hvað ást getur haft að þýða fyrir mann eða konu?“ „Má ég spyrja, er þér blátt áfram ómögulegt að tala um annað en þetta?“ sagði Joan örvæntingarfull. „Er það orð- in föst meinloka hjá þér, að ég sé daðurdrós? Ég hef aldrei gert neinn mann óhamingjusaman, hvorki í gamni né alvöru. Get ég gert að því, þó að karlmenn hagi sér eins og fá- bjánar þegar þeir sjá mig? Þú talaðir um að hefna Peters Merrifields. Finnst þér ef til vill að ég hefði átt að strjúka með honum, af því hann hótaði að 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.