Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 61

Heimilisritið - 01.06.1950, Blaðsíða 61
fremja sjálfsmorð ef ég léti ekki að vilja hans?“ Um leið og hún sagði þetta, datt henni allt í einu í hug dagurinn, þeg- ar Sir Antony Trcgenna hafði ásakað hana, og hún hafði lagt fyrir hann sömu spurningu í sjálfsvarnarskyni og samþykkt að fara af landi burt. Og henni duttu í hug orð móður sinnar, um að hún-myndi ef til vill hitta hetju drauma sinna í Ameríku, og spáð því, að hún myirdi verða ástfangin. Ósjálf- rátt varð henni litið á Hilary Sterling, sem sat þarna þungur á brún og veitti henni nákvæma athygli. ,,Ef þú hefur farið mcð alla hina svipað og mig, undrar mig ekki þó þeir töptiðu ráði og rænu“, svaraði Hil- ary rólega eins og hann yfirvegaði orð sín nákvæmlega. „Jæja, en við skulum tala um eitthvað annað, úr því þú held- ur að þetta sé orðin meinloka hjá mér. Hvað eigum við þá að tala um? Skemmtilegasta umræðuefnið fyrir þig er vafalaust Joan Allison, og ég er þér fullkomlega sammála, en það lítur út fyrir að þú óskir aðeins eftir hrósi og skjallyrðum en kærir þig ekki um gagn- rýni“. „Og.það lítur út fyrir að þú gerir þér far um að gagnrýna mig og erta. Þú gerir þig sjálfan að einskonar yfir- manni yfir mér, og það get ég ekki þoIað“, sagði Joan og kastaði sígarett- unni frá sér. „Segðu mér nú í alvöru, Hilary, finnst þér ekki að þessi heimsku- legi leikur hafi þcgar gengið nokkuð langt? Eg er fús til að biðja þig af- sökunar á því að ég hef sært þig, og játa að þú hefur gert mig hrædda með þessu endalausa tali þínu um að hefna Peter Mernfields. Því verður ekki neit- að, að þú hefur á vissan hátt stofnað mannorði mínu í hættu með því að flytja mig hingað, en ef þú hjálpar mér að komast aftur til „Frisco Belle" get- um við sagt Vandeeringsfólkinu og hinum gestunum, að vélin hafi bilað, og ég skal gjarnan gefa þér heiðurinn af því að hafa bjargað lífi mínu í ann- að sjnn. Látum svo allt hið liðna vera gleymt. Við skulum byrja kynn- ingu okkar alveg að nýju. Það getur ekki vcrið alvara þín að halda mér hér“. „Ég fullvissa þig um það, kæra Joan, að mér hcfur aldrei á ævinni verið neitt mál meiri alvara“, svaraði Hilary. „All- ur yndisleikur þinn og fortölugáfa get- ur ekki fengið mig til að láta þig yfir- gefa Muava, fyrr en þú hefur lært að þekkja hvað ást er. Og þegar þú hefur lært það, Joan, er ckki víst að þú kær- ir þig urn að fara héðan. Þá verður þú ef til vill ánægð yfir að vera hér og gefur veröldinni langt nef“. Þessi orð, sem vom sögð á ákveðinn og rólegan hátt, ollu lirolli fyrir brjóst- inú á Joan. Hún vissi ekki hvernig hún ætti að skilja Hilary. Hann brosti án þess að vottur af gleði væri í brosinu. Augnaráð hans var órætt. Hann virtist vera fullkomlega rólegur og ákveðinn meðan hann sagði þetta og tók sígar- ettuveskið upp úr vasa sínum og fékk sér nýja sígarettu. „Hilary — ef — ef ég segi þér nú að ég viti hvað ást er, ef ég segist vilja giftast þér, viltu þá flytja mig burtu héðan?“ spurði Joan og stóð á öndinni. Hilary blés frá sér reykjarstrók, horfði alvarlega á Joan og hallaði dá- lítið undir flatt. HEIMILISRITIÐ 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.