Nýjar kvöldvökur - 01.01.1920, Side 36

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1920, Side 36
30 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Helgason. Og miki! heppni er það fyrir ís- lensku þjóðina, að eiga þenna mann fyrir aðalleiðloga barnakennaranna. Nemendur höfundarins og vinir — og þeir eru margir um land alt — hafa efalaust aflað sjer bókarinnar, svo fljótt sem þess var kostur, því þeir hafa að öllum líkindum búist við, að finna þar svo margt, sem minti þá á kennar- ann, sem áður var þeim besta fyrirmyndin. Og þeim hafa varla brugðist vonir sínar, því bók- in er fyrst og fremst til þess ætluð, að vera kensiubók í uppeldisfræði við kennaraskólann, og hlýtur því að bera blæ af kenslu höfundar- ins í þeirri grein á undanförnum árum. »En fleiri eru nú barnakennarar en þeir, sem á skóla ganga, og ráðnir eru til þess að lögutn. Allir, sem umgangast börn, taka þátt í uppeldi þeirra með orðum sínum og eítir- dæmi; hvort sem þeir ætlast til þess eða ekki,« segir höf. í formála bókarinnar. Með það fyrir augum hefir hann sniðið bókina þannig, að efni og framsetningu, að hún geti verið hand- hægur leiðarvísir við uppeldi barna, hvort heldur er á heimilunutn eða í skólunum. Og það væri synd að segja, að nokkurt skólabók- arbragð sje að bókinni. Þær þykja að jafnaði þurrar og sfrembnar og laða menn lítt til lesturs, og eiga fæstar því Iáni að fagna, að vera lesnar að nokkuru ráði eftir að því námi er lokið, sem þær heyra til. En ólíklegt þykir mjer að þeir, sem lesa bók þessa undir kénn- arapróf, fleygi henni frá sjer að prófinu loknu. Hjer er snildarlega með efnið farið, málið lip- urt og Ijett, kryddað með tilvitnunum í eldri og yngri rit, og hvert einstakt atriði rökstutt með dæmum, svo Ijóslifándi, að hreinasta unun er að lesa bókina. Uppeldi nefnist »alt, sem til þess er gert, að hlynna að þroska mannsins og beina honum leið, einkum á uppvaxtarárunum.* Eins og gefur að skilja, verður öll viðleitni í þá átt að byggjast á því, hvernig sálarlífi barnsins er varið. Sálarfræðin verður því að vera undir- staða uppeldisfræðinnar, og nokkur þekking í þeirri grein er því nauðsynleg hverjum þeim, sem einhvern þátt tekur í uppeldi barna, en það gera allir, sem með börnum eru. Margar af þeim misfellum, sem hvarvetna finnast á barnauppeldinu, mundu ekki eiga sjer stað, ef allur þorri manna væri ekki allsendis ófróður um einföldustu lögmál sálarlífsins, eða ef menn myndu altaf eftir því, að lítilfjörlegt atvik getur oft grafið djúpt um sig í barnssálinni. Enginn getur lesið þessa bók M. H. án þess að vakna til umhugsunar um þessi efni, og í hverju ein- stöku atriði flytur hún holl ráð og góðar bendingar. Hjer um bil tveir þriðjungar bók- arinnar eru um sálarlíf og uppeldi, og á sá hluti áreiðanlega fullkomið erindi inn á hvert einasta heimili. Síðari hlutinn er um skóla og kenslu. Eru það einkum leiðbeiningar handa fræðslunefndum og kennurum um tilhögun kenslunnar og annað það, er að skólastarfinu lýtur. En svo náið samband er samt ávalt á milli fræðslunnar og annars uppeldis barnsins, að foreldrar þess ættu að minsta kosti ekki að láta sig það litlu skifta, hverjum reglum er fylgt við fræðsluna. Að því leyti á síðari hluti bókarinnar erindi til alþýðunnar, engu síður en hinn fyrri. Barnakennararnir kvarta sáran um það, eink- um í kaupstöðunum, að skilningur heimilanna á starfi skólanna og þeim örðugleikum, sem þeir eiga við að stríða, sje altof oft af skorn- um skamti. M. H. þekkir þennan skilnir.gs- skort og skilur hann vafalaust betur en flestir aðrir. Hann viðurkennir, að kennararnir geti stundum átt sök á þessu, að einhverju leyti, en langtíðasta ástæðan er þó vanþekkingín. Aukin þekking á grundvallaratriðum uppeldis- fræðinnar mundi að mestu leyti geta brúað djúpið milli skólanna og heimilanna. An henn- ar er ekki hægt að búast við neinum áhuga á uppeldismálunum, en sameiginlegur áhugi er það eina, sem getur vakið samhug og sam- vinnu milli kennara og foreldra. Jeg fyrir mitt leyti efast ekki um það, að bók M. H. reynist þess megnug, að vekja áhugann og auka sam-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.