Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 56

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 56
94 BÓKM-ENNTIR N. Kv. ar voru hér á landi, voru Landnáma, íslend- ingalbók og Kristnisaga, er allar voru prent- aðar í Skálholti árið 1688. Síðan voru engar Islendingasögur prentaðar fyrr en á Hólnm 1756, að út komu Nokkrir margfróðir sögu- þættir íslendinga og Ágætar fornmannasög- ur. í þessum tveimur bókum voru prentaðar 14 íslendingasögur. í Hrappsey voru prent- aðar árið 1782 Egilssaga og Ármannssaga. Fleira var ekki prentað liér á landi af íslend- ingasögum á 18. öldinni, en í Kaupmanna- liöfn komu fáeinar þeirra út á seinni hluta aldarinnar á kostnað Árna Magnússonar sjóðsins. Á 19. öld komu út við og við út- gáfur af íslendingasögum, sem sumar voru jjrentaðar liér á landi en aðrar erlendis. Engin heildarútgáfa kom samt af þeim fyrr en útgáfa Sig. Kristjánssonar, er hann lióf árið 1891. Var sú útgáfa mjög ódýr og liand- hæg og var nú .fyrst auðvelt fyrir almenning að eignast sögurnar með hægu móti, enda var þessari útgáfu Sigurðar mjög vel tekið og hafa flestar eða allar sögurnar í þeirri út- gáfn verið endurprentaðar og fást þær allar enn. En því miður vantaði fáeinar sögur í þessa útgáfu Sigurðar, og voru helztar þeirra Kristnisaga, Króka-Refs saga, Gunnars saga Keldugnújjsfífls, Brandakrossaþáttur og Þor- steins þáttur Síðu-Hallssonar. Gæti útgáfan enn bætt við þessum sögum. Hið íslenzka fornritafélag lióf útgáfu ís- lendingasagna árið 1933. Er sú útgáfa lúð bezta úr garði gerð og smekkleg að öllu leyti, en hún gengur seint og líkur að sjálf- sögðu ekki fyrr en eftir mörg ár enn. í fyrra hóf íslendingasagnaútgáfan (hin nýja) útgáfu sagnanna, og liefur nú þegar lokið útgáfu þeirra allra. Eru þær gefnar út í 12 bindum og flokkaðar niður eftir hér- uðum. í þessari útgáfu eru allar sögur um íslendinga frá Landnáms- og Söguöld tekn- ar, og einnig þær, sem skráðar eru á síðari öldum. Eru þær jirentaðar með þéttara letri en hinar eldri, til þess að aðgreina þær frá þeim. Alls eru sögurnar í útgáfu þessari 129 talsins (eru þá taldar sem 2 sögur, ef jrrent- aðar eru tvær gerðir af sömu sögu). Hafa nokkrar þeirra aldrei verið jjrentaðar áður, en allt eru það sögur, sem skráðar hafa verið á seinni öldum, en það er gaman að fá þær- með í útgáfunni, þótt þær hafi minna bók- menntalegt gildi en hinar eldri sögur. Á- kveðið er, að út komi XIII. bindi, er verður nafnaregistur yfir öll bindin. Guðni Jónsson magister og skólastjóri hefur búið sögurnar undir prentun. Hann mun og semja nafna- registrið. Nauðsynlegt væri og að hafa liug- takaregistur og tímatalsskrá. Þá er og nauð- synlegt að hafa greinilegt Islandskort, er sýni þingaskipun og sögustaði. Utgáfa þessi er fremur smekkleg, ódýi' og handhæg. Sér- staklega er bandið mjög ódýrt, en þó gott og smekklegt að öðru en því, að ekki er skinn á hornum, oger það stór galli á bandi, sem er að öðru leyti vandað. Þessi útgáfa Íslendingasagna verður óefað mjög mikið keyjit, og hún verður vonandi mikið lesin líka. Síðan fjárhagur þjóðarinnar bauiaði, þá hafa utanfarir Isendinga stórum aukizt. Enn þá er útþráin lifandi hjá þjóðinni eins og forfeðrum hennar, landnámsmönnunum, og enn er farandeðlið ríkt í eðli hennar. Fjöldi manna yfirgefur óðul feðra sinna og flytur í bæi og þorp. Útlend áhrif streyma í stríðum straumum inn í landið, sterkari en nokkru sinni ,fyrr. En til þess að varð- veita mál, menningu og halda við kjarna íslenzks þjóðernis, þarf þjóðin, sérstaklega hin upprennándi kynslóð hennar á hverjum tíma að lesa Islendingasögurnar, og lesa þær beztu aftur og aftur. Það er öruggasta vörn til viðhalds máli voru, menningu, þjóðerni og fornra dyggða, svo sem drengskapar og karlmennsku. Engar aðrar bókmenntir geta orðið eins máttugar í þessu efni sem íslend- ingasögurnar. Þ. M. J-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.