Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 58

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 58
DANSKAR DRAUGASOGUR N. Kv. 96 væri. Þegar komið var fram um miðnætti, kom hvítklædd vera inn í herbergið til lians og sagði, hvort hann vildi ekki þegar dagaði láta rannsaka dýnuna, og það sem fyndist þar, ætti dóttir sín. Hún sagðist vera konan, sem síðast dó á bænum. Enn fremur bað In'tn hann að taka planka burt úr veggnum, er hún benti á, og athuga, hvað þar væri á bak við. Hús þetta var garnalt plankahús. Um morguninn lét: maðurinn taka verið utan af dýnunni og fundust þar þá pening- ar. Einnig fékk hann að taka plankann úr veggnum, og var þar mikið falið á bak við af peningum. Dóttir konunnar, er lalið hafði jreningana, fékk þá nú alla, en hún gaf umferðasalanum ríflegan skilding fyrir hugrekki hans. En reimleikans varð ekki framar vart. Hlöðudraugurinn. Svo bar við eitt sinn á bæ þeim, er á Eystratúni lieitir, að stúlka nokkur var að mjólka kýrnar. Þetta var snemma morguns og ekki farið að birta af degi. Hlaðan var áföst við fjósið, eins og víða tíðkast. Heyrist stúlkunni þá allt í einu eins og skrjáfi í ein- hverju í hlöðunni og virðist sem einhver sé þar inni. Varð hún hálf smeik, en opnar þó dyrnar á hlöðunni og sýndist lienni þá, að inni í einu horni hlöðunnar sé maður í gráum fötmn og rautt ljós logi á höfðinu á honum. Sýnist henni maðurinn standa á- lútur og vera að grafa ofan í gólfið. Hún vildi ganga úr skugga um, að sýn þessi væri ekki skynvilla, gengur inn í hlöðuna og nær því alveg að manninum. Sér hún hann nú glöggar en áður, en maðurinn heldur áfram að grafa, og lætur sem hann verði ekki stúlk- unnar var. Verður nú stúlkunni ekki um sel. Snýr hún út úr hlöðunni og fer inn í htisið til húsbænda sinna og segir þeim, hvers hún hafi orðið vör og að hún hafi orðið mjög hrædd. Þau vildu eyða þessu, sem hverri annarri vitleysu, en samt fékk hún þau til þess að fara með sér út í lilöð- una. En þegar þau komu þangað, var mað- urinh horfinn. Nokkrum dögum seinna sagði bóndinn við húsfreyju sína: „Heldur ]ni ekki, að jreningar séu grafnir í hlöðu- gólfinu? Við skulum rannsaka, livort svo muni ekki vera, en eg álít að við munum finna þar jreninga, en við skulum senda stúlkuna í burtu á meðan, svo að hún verði ekki vör við þessa leit okkar.“ Þau sendu síðan stúlkuna í einhverjum erindagjörðum að lieiman, en fóru sjálf að grafa ofan í hlöðugólfið, ]rar sem stúlkan þóttist hafa séð manninn. Þegar þau hafa grafið um stund, verður eitthvað hart fyrir rekunni. „Nú er eg viss um, að við finnum það, sem við leitum að,“ sagði bóndinn. Þau halda á- fram að grafa af kajrjri, og verða þess fljótt vör, að þar er eirketill. Tóku þau ketilinn tijrjr úr gryfjunni, og var hann fullur af silfurjreningum. Þau fara með hann inn til sín, tæma úr honum peningana og geyma ;i laun, svo að stúlkan verður einkis vör, og ekkert gefa þau henni af hinum fundnu auðæfum, þótt hún væri fátæk. Hjón þessi urðu rík, en engin blessuu fylgdi auðæfum þeirra. Ættingjar þeirra eru nú allir dánir, og ung hjón af annarri ætt búa nú á bæn- um. En það er ekki lengra síðan að saga þessi gerðist, en að eg hef séð dóttur stúlk- unnar, er sá hlöðudrauginn. í Stadil-kirkju er silfurkanna, sem var gefin kirkjunni af Tómasi Kristensen frá Eystratúni, og sannar það, að þá voru mikil auðæfi á þeim bæ, en síðar varð ]rað heimili fátækt. Varð svo vegna ranglætisins, sem lijónin sýndu stúlkunni, er fann fjármunina í raun og veru. En aldrei síðan hefur mað- urinn í gráu fötunum sézt í hlöðunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.