Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Síða 60
f
r,v'. "
ÍSLAND í MYNDUM I
Ný útgáfa af þessari bók er nú að koma út. Allar myndirnar eru nf'jar og prentaðar með nv jum mynda-
mótum. Formálinn er eftir Pálma Hannesson, að mestu leyti sami formáli og var fyrir 1. útgáfu. en með dá-
litlum breytirígum, vegna breyttra tíma.
Formálinn er nú þýddur á ensku og dönsku, og undir öllum myndum eru skýringar á íslenzku, ensku og
dönsku. — F'raman við bókina er litmynd af Heklu gjósandi, prentuð nteð fjórum litum.
Bókin er öll bundin í mjúkt skinnlíkisband, gylt framan á spjaldið.
Island í myndum hefur á undanförnum árum borið sanna og lifandi þekkingu á íslandi og íslenzku
þjóðinni um öll lönd jarðar, og orðið landinu til meira gagns en nokkurn órar fyrir. — Sendið þessa bók til
vina ykkar og kunningja, og hafið hana við höndina, ef góðan gest ber að garði.
l'yrri upplög bókarinnar hafa selzt upp, áður en við var litið. Enn er upplag ntjög lítið, vegna þess, lrve
erfitt er um pappír. Þess vegna verður bókin ekki fyrst unt sinn sett í umboðssölu til bóksala úti um land,
heldur aðeins seld gegn staðgreiðslu.
Bókaverzlun Isafoldar tekur á móti pöntunum. og hún tekur líka að sér fvrir yður að senda bókina hvert
sem er, hér og erlendis.
Isafoldarprentsraiðja hi.
\
I
I
\