Fréttatíminn - 23.12.2011, Síða 6
iPhone 4S og
flottir aukahlutir
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Kynntu þér úrvalið í næstu verslun
iPhone 4S
8.333 kr.
á mánuði í 18 mánuði
eða 149.990 kr. staðgreitt.
Ozaki iSuppli Gramo
Flottur standur fyrir hleðslu
og tónlistarafspilun
7.990 kr.
ON.EARZ
Stílhrein og flott
gæðaheyrnartól
9.990 kr.
1GB
gagnamagn
í 12 mán.
B rýnt er að skoða sérstaklega hvort fæðingar- og foreldraor-lofslögin veiti konum nægilega
vernd gegn því að missa vinnuna vegna
barneigna, segir Kristín Ástgeirsdóttir,
framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Hún
segir starfsmenn stofnunarinnar hafa
heyrt dæmi þess að konum frekar en
körlum hafi verið sagt upp vegna fæð-
ingarorlofs í þessari efnahagslægð.
Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður
fæðingarorlofssjóðs, segir einnig
samtöl sín við skjólstæðinga sem hafa
misst vinnuna heldur vera við konur
en karla. „Ég get ekki nefnt fjölda og
byggi þetta á tilfinningu og þeim mál-
um sem ég hef fengist við. En ástæður
uppsagna eru eins margar og uppsagn-
irnar eru. Flestar tengjast skipulags-
breytingum á vinnustað og efnahags-
þrengingunum.“
Kristín tekur undir orð Láru V.
Júlíusdóttur hæstaréttarlögmanns sem
ritaði grein í Fréttablaðið í vikunni þar
sem hún sagði það valda vonbrigðum
hversu erfitt starfsmenn á vinnumark-
aði eigi með að fá rétt sinn viðurkennd-
an þegar tekist er á um túlkun laganna
fyrir dómi. Einnig hversu þungt sjón-
armið atvinnurekandans vegi, hvort
sem er hins almenna atvinnurekanda
eða ríkisins. „Lögin eru þannig mats-
kennd og opin fyrir túlkun,“ ritar Lára
og bendir á að samkvæmt fæðingar- og
foreldraorlofslögum sé vinnuveitanda
óheimilt að segja þunguðum starfs-
manni upp nema gildar ástæður séu
fyrir hendi. Sönnunarbyrðin sé lögð
á atvinnurekanda en takmarkaðar
skýringar er að finna í lögskýringar-
gögnum á því hvað teljist vera gildar
ástæður.
Kristín segir að í úrskurðum kæru
jafnréttismála og í dómum hafi stofn-
unin merkt vaxandi tilhneigingu að
sjónarmið atvinnurekenda hafi orðið
ofaná á undanförnum árum. „Ég held
að það liggi í hugmyndafræði nú-
tímans: Að atvinnurekendur eigi að
hafa valdið og valið í fyrirtækj-
um sínum í stað þess að leggja
áherslu á vernd þeirra sem
hjá þeim vinna,“ segir hún.
„Þetta er mál sem löggjaf-
inn á að ganga í á næsta
ári. Ekki spurning.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Barneignir Sjónarmið atvinnurekenda vega þyngra en þungaðra kvenna
Lítil vernd gegn uppsögn
í fæðingarorlofslögunum
Skilgreina þarf hvað sé gild ástæða þegar fólki er sagt upp í kringum fæðingarorlof svo fæðingar- og
foreldralögin veiti þá vernd sem þeim er ætlað. Um það eru hæstaréttarlögmaður og framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu sammála.
Lára V. Júlíusdóttir
hæstaréttarlög-
maður bendir á
litla vernd sem
fæðingar- og
foreldralög veiti
í raun.
Mótmæla stofnun stofnunar
Sjálfstæðismenn
mótmæla því að setja
þurfi upp sérstaka
ráðstefnuskrifstofu
Reykjavíkur með 45
milljóna króna fjár-
framlagi svo markaðssetja megi borgina sem alþjóðlega
ráðstefnu- og viðburðaborg. „Farsælla hefði verið að
vista verkefnið innan þeirrar starfsemi sem þegar er til
staðar, bæði á vettvangi borgar og ríkis, leggja meiri
áherslu á að aðrir en hið opinbera kæmu að verkinu og
tryggja að ekki væri þörf á svo háu framlagi borgar-
sjóðs,“ segir í bókum borgarfulltrúa flokksins á borgar-
ráðsfundi. Borgarráð samþykkti í síðustu viku að stofna
samstarfsvettvang um slíka markaðssetningu undir
heitinu Ráðstefnuborgin Reykjavík og í samstarfi Ice-
landair Group og Hörpuna sem hafa lofað 50 milljónum
árlega í verkið næstu þrjú ár. - gag
Íslendingar versla meira
ytra en útlendingar hér
Á sama tíma og Íslendingar eyddu fé með
greiðslukortum fyrir tæpa 6,4 milljarða í útlöndum
nú í nóvember eyddu útlendingar 2,740 milljónum
króna hér á landi. Ágúst er hins vegar stærsti
ferðamannamánuður ársins. Útlendingar greiddu
þá fyrir vörur og þjónustu fyrir 10,9 milljarða
króna með debet- og kredit-kortum hér á landi.
Íslendingar greiddu hins vegar vörur og þjónustu
fyrir rétt rúma 5,6 milljarða í útlöndum á sama
tíma, samkvæmt tölum Seðlabankans. Fyrstu
ellefu mánuði ársins hafa útlendingar velt 59,4
milljörðum um kortin sín hér á landi en Íslendingar
tæpum 61,4 milljörðum utan landsteinanna. Árið
2007 eyddu útlendingar 24.662 milljónum hér og
Íslendingar 37.809 milljónum ytra, en krónan var
þá mun dýrari/sterkari en nú. - gag
Ef og hefði saga Íbúðalánasjóðs
Hefði Íbúðalánasjóður
verið einkavæddur hér
stuttu fyrir hrun hefðu
örlög hans líklega orðið
svipuð og hjá bandarísku
fasteignasjóðunum
Freddie Mac og Fannie
Mae og að á eftir einka-
væðingu gróðans hefði sjóðurinn aftur lent í opinberri eigu með
þjóðnýtingu tapsins. Það er mat Ásgeirs Brynjars Torfasonar, sér-
fræðings í málefnum fasteignamarkaða við ráðgjafafyrirtækið Sigol
Logistics AB Real Estate Consulting í Svíþjóð. Í úttekt sem hann vann
fyrir borgarráð segir í hliðardálki að telja megi að litlu hafi munað
að Íbúðalánasjóður hafi verið einkavæddur. Freddie og Fannie voru
fasteignalánasjóðir í Bandaríkjunum sem bandarísk stjórnvöld
yfirtóku haustið 2008. Þau hafa síðan sett á annan tug þúsunda
milljarða íslenskra króna inn í þá til að halda þeim á floti. - gag
Ók á dreng í bræði
og síðan á brott
Lögreglan á Akranesi rannsakar enn
mál manns sem ók á ungan dreng á
fermingaraldri 17. desember. Drengur-
inn, sem ásamt fleirum, henti snjóbolta
í bíl hans. Vitni voru að því þegar mað-
urinn ók á drenginn. Drengurinn hlaut
meiðsli og var skoðaður á sjúkrahúsinu
en fékk að fara heim að henni lokinni.
Hann var með þremur vinum sínum
sem komust undan þegar maðurinn ók
að þeim. Maðurinn flúði af vettvangi en
gaf sig svo fram við lögreglu. Í frétt DV
segir að drengurinn hafi slasast á höfði
og sé með dekkjaför víða um líkamann.
Lögreglan lítur málið alvarlegum
augum. - gag
6 fréttir Helgin 23.-25. desember 2011