Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.01.2013, Side 6

Fréttatíminn - 04.01.2013, Side 6
KjúKlingamáltíð fyrir 4 Grillaður kjúklingur – heill Franskar kartöflur – 500 g Kjúklingasósa – heit, 150 g Coke – 2 lítrar* *Coca-Cola, Coke Light eða Coke Zero 1990,- Verð aðeins + 1 flaska af 2 L H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Hvöss s- og sA-átt og AsAHlákA á lAndinu. Rigning, einkum sunnAnlAnds og vestAn. HöfuðboRgARsvæðið: SA-Stomur um tímA og rigning. HægARi s-átt og vætA um lAndið vestAnveRt. áfRAm þítt. HöfuðboRgARsvæðið: rigning, einkum þegAr líður á dAginn. væguR bloti í byggð en útlit fyRiR snjó á fjAllvegum. HöfuðboRgARsvæðið: enn og Aftur SlAgveðurSrigning. leysingaveður um land allt þessa fyrstu helgi ársins er útlit fyrir að hver lægðin reki aðra yfir landið með rigningu og slagviðri. Í dag föstudag er þannig spáð asahláku, víða stormi og hita allt að 10 stigum norðanlands. Ekki er auðvelt að greina á milli þeirra úrkomusvæða lægða sem stefna í átt til landsins. Þó má segja að allra hlýjasta loftið fari fljótt hjá og á laugardag og einkum á sunnudag gæti snjóað á fjallvegum, þó áfram megi reikna með vægri hláku víðast í byggð. 6 6 10 8 7 5 4 1 3 4 6 3 3 4 5 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is OYSTER PERPETUAL DATEJUST II Michelsen_255x50_E_0612.indd 1 01.06.12 07:21 M ikil aukning í neyslu eiturlyfsins MDMA eða „molly“ líkt og það er kallað á götunni, virðist vera í skemmtanalífi á Íslandi. „Þetta er dýrt efni, ekki ósvipað kókaíni í verði, og við erum nokkuð meðvitaðir um að neysla þess hefur náð talsverðri út- breiðslu á mjög skömmum tíma,“ útskýrir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglu. Lögreglu og skemmtistaðaeigendum á höfuð- borgarsvæðinu ber saman um að um nýja bylgju sé að ræða en varðstjóri lögreglu segir lyfið vinsælt og þess vegna sé það dýrt á götunni. Samkvæmt verðkönnun SÁÁ eru það þá um fimmtán til tuttugu þúsund krón- ur fyrir skammtinn, sambærilegt götuverði kókaíns. Guðbrandur segir að lögregla sé í viðbragðstöðu og hafi nú þegar farið í nokkrar húsleitir til þess að hefta útbreiðslu og sölu efnisins og talsvert magn hafi verið haldlagt í desember. Það sé nú í greiningu svo erfitt sé að segja til um nákvæmt innihald þess. MDMA eða molly er virka efnið í svokölluðum E-pillum sem vinsælar voru til inntöku á tíunda ára- tugnum. Efnið er því hreinna og virknin meiri. Virkni MDMA stendur yfir í 4-6 klukkustundir og eru áhrif- in aukin skynjun og vægar ofskynjanir. Afleiðingar langvarandi neyslu eru talsvert á reiki en talið er að sé um endurtekna neyslu að ræða geti það ýtt undir geðsjúkdóma, kvíða og þunglyndi. Fréttatíminn hafði samband við nokkra eigendur skemmtistaða í miðborginni. Enginn þeirra vildi láta nafns síns getið en flestir staðfestu að þeir fyndu fyrir mikilli aukningu í notkun lyfsins á skömmum tíma. „Það er mjög mikið um þetta og ég hef orðið vitni að ólíklegasta fólki á molly,“ segir einn skemmtistaða- eigenda. Annar tekur í sama streng og segir að aukninguna megi jafnt greina í margvíslegri dægur- menningu líkt og popptónlist þar sem talað er um inntöku lyfsins sem ku einnig vera vinsælt ytra. „Það eru bókstaflega allir á þessu og virðast ekki átta sig á afleiðingunum. Aukningin er talsverð inni á stöð- unum þar sem auðvelt er að fela þetta þar sem kristall- arnir eru til inntöku, ekki í nefið. Ég hef orðið vitni að því að fólk sé jafnvel að troða þessu upp í aðra að þeim óafvitandi. Mín tilfinning er sú að hjá stórum hópi fólks þyki þetta jafn lítið mál og að fá sér skot á barnum. Mín skoðun er sú að slík hegðun sé mjög hættuleg,“ segir þriðji bareigandinn. maría lilja þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is  OFskynjunarlyF MdMa er kOMið í tísku á íslandi Ný eiturlyfjabylgja í skemmtanalífinu Fólk er jafnvel að troða þessu upp í aðra að þeim óafvit- andi. Talsverð aukning hefur orðið á neyslu MDMA-kristalla á Íslandi, samkvæmt upplýsingum Frétta- tímans. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á MDMA-kristalla við skipulagðar húsleitir á þremur stöðum á gamlársdag. Lyfið er, líkt og nafnið gefur til kynna, í kristalsformi og er ætlað til inntöku. Það veldur ofskynjunum og öðrum skyntruflunum. Jóhannes M. Gunnarsson, læknisfræðileg- ur verkefnisstjóri Nýs Landspítala, óskar eftir að koma á framfæri athugasemd vegna greinar Ragnars Halldórssonar í síðasta tölublaði Fréttatímans: „Fullyrðing R. H. um að um að sam- einaður Landspítali við Hringbraut verði 290.000 fermetrar er nauðsynlegt að leiðrétta. Hið rétta er að fyrirhugaðar byggingar spítalans eru samkvæmt lokinni forhönnun 132.000 m². Þar af eru 77.000 m² nýbyggingar en eldra húsnæði sem notað verður áfram 55.000 m². Önnur stóryrði og afstaða greinarhöf- undar til meginsjúkrahúss landsmanna svara sér sjálf.“ 70-80 manns fylgja landsliðinu „Ég bjóst jafnvel við að það kæmu fleiri,“ segir Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ. HM í handbolta hefst á Spáni í næstu viku og á Ísland fyrsta leik gegn Rússlandi laugardaginn 12. janúar. Einar reiknar með að um 70-80 Íslendingar muni styðja við bakið á liðinu í riðlakeppninni í Sevilla. „Flestir koma þangað á eigin vegum. Það var engin ferðaskrifstofa sem skipulagði hópferð,“ segir einar. Aðspurður segir framkvæmdastjórinn að HSÍ hafi reynt að aðstoða fólk við að verða sér úti um miða, að hópar fengju sæti saman og svo framvegis. En hverjir eru það sem fylgja landsliðinu, eru þetta mikið til fjölskyldur leikmanna? „Já, og nokkrir sem hafa verið að elta landsliðið á undanförnum stórmótum. Svo er handboltalið ÍBV að æfa þarna og þeir munu fylgjast með líka.“ -hdm guðjón valur sigurðsson, fyrirliði íslenska hand- boltalandsliðsins, verður í eldlínunni á HM á Spáni. Mynd: NordicPhotos/Getty Athugasemd við grein Ragnars Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á talsvert magn af MDMA í desember. Nú síðast í skipulagðri aðgerð þar sem farið var í þrjár húsleitir í Kópavogi. Mynd: NordicPhotos/Getty 4 fréttir Helgin 4.-6. janúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.