Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 30
2 heilsa Helgin 4.-6. janúar 2013
Á ramótaheit eru af hinu góða. Um það eru flest-ir sérfræðingarnir sem Fréttatíminn ræddi við
sammála. Það sé ákveðinn andlegur
þroski fólginn í því að vilja breyta
lífi sínu og ef vel gengur breytist líf
fólks jafnvel fyrir lífstíð. Ástæðan
fyrir þessu er einna helst sú að yfir
hátíðirnar sleppum við okkur í mat
og drykk og öðru slíku. Margir fá
því nóg þegar alvara lífsins tekur
við að loknu jólahaldinu og vilja
byrja nýtt líf. Það er nauðsynlegt að
setja sér markmið áður en haldið er
af stað. Svo er nauðsynlegt að trúa
því að breyting sé möguleg. Loks
þarf að gera sér grein fyrir hverju á
að breyta og átta sig á því að breyt-
ingar sem eru mikilvægar í lífinu
gerast í stuttum skrefum.
Við frestum vandamálinu
Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræð-
ingur segir tímamótin gegna lykil-
hlutverki í þeim fjölda heita sem
strengd eru á þessum tíma árs. Hún
segir það augljóslega henta fólki vel
að nýta tímamótin sem áramótin
eru. En hvað er það við þessi tíma-
mót á árinu sem rekur okkur áfram?
„Tímamótin veita okkur eiginlega
óskrifað blað og nýtt tækifæri til að
gera stöðumat. Þetta kjósa margir
að gera, sérstaklega ef árið á undan
hefur verið erfitt persónulega og
þegar fólk er ekki sátt við sjálft sig.
Þá viljum við byrja nýja árið vel og
skilja þetta erfiða eftir. Vandamálin
sem voru á síðasta ári fylgja fortíð-
inni. Þetta er oft bakgrunnurinn að
því að fólk fer að strengja ýmis ára-
mótaheit. Þegar maður ákveður að
takast á við hluti sem maður hefur
frestað eða ýtt á undan sér á gamla
árinu þá felur nýja árið kjörið tæki-
færi til að gera breytingar. Eins og
til dæmis á lífsstíl, að lifa heilsusam-
lega, grenna sig, hætta að reykja
eða fara að hreyfa sig“.
Álfheiður segist sjá það í sínu
starfi að fólk ýti jafnvel á undan sér
framkvæmdum og stórum breyting-
um fram yfir áramót. Þetta á ekki
síst við þegar skilnaður stendur
fyrir dyrum við í ýmsum málum,
til dæmis skilnaðarmálum. „Fólk
ákveður jafnvel að láta jól eða ára-
mót líða og síðan á að takast á við
breytingarnar og vandamálin. Mað-
ur einbeitir sér að jólunum, sérstak-
lega á það við um barnafjölskyldum
þegar maður á börn. Það er allt í ró-
legheitum yfir jólin þó maður viti að
stóru breytingar muni koma fljót-
lega á nýja árinu eftir jól.“
Leiðin að markmiði er jákvæð
upplifun
Lykilatriði að mati Ingólfs Snorra-
sonar, yfirþjálfara í líkamsræktar-
stöðinni Hreyfingu, er að vita hvað
maður vill. Það að setja sér mark-
mið og vita ekki hverju það þjónar
er eins og að taka ákvörðun sem hef-
ur engan tilgang. „Þetta kemur allt
saman að því hvað maður vill, hvaða
aðgerðir maður fer í til að ná því sem
maður vill og hversu sveigjanlegur
maður er í því að aðlagast aðstæð-
um. Leiðin að markmiði á að vera
jákvæð upplifun. Það er mun betra
að vera að vinna í að verða 10 kílóum
léttari. Þannig forritar maður hug-
ann á mun jákvæðari hátt heldur en
þegar maður hugsar um að vinna í
að hætta að vera svona feitur. Þetta
eru tvær gjörólíkar leiðir sem búa til
tvær gjörólíkar upplifanir; jákvæðar
og neikvæðar. Jákvæðar upplifanir
þjóna manni einnig áfram, ef maður
þjálfar sig í að vinna að hlutum er
maður alltaf að vinna að uppbyggj-
andi lífsstíl. Þannig byggir maður
upp sjálfstraust og lærir að takast
á við umhverfið út frá lausnarmið-
uðum aðgerðum og maður nær mun
meiri árangri.“
Ef markmiðin eða heitin eru al-
menn eða óljós er lítið sem knýr
manneskjuna áfram til að standa
við þau. Álfheiður tekur dæmi um
feimna manneskju sem ætlar sér að
verða meiri félagsvera á næsta ári.
Það eru frekar óljós markmið sem
fela ekki í sér hvernig og hvað eigi
að gera. Þá er mjög líklegt að það
verði ekkert úr því heitinu þegar
líður á árið. „Því skýrari sem þess-
ar heitstrengingar eru, því betra.
Óskin um breytingar þarf að vera
mjög einlæg og skýr. Næsta skref
er svo að láta áramótaheitið rætast.
Þessi undirbúningur er ekki síst
hugrænn. Maður þarf að undirbúa
það sem maður vill að gerist í hug-
anum og leggja upp línurnar, hvern-
ig maður ætli að framkvæma. Ég sé
það í mínu starfi þegar fólk undirbýr
sig vel, heldur samninginn sem það
gerir við sjálft sig og heldur jafnvel
bókhald yfir markmið og árangur
þá gengur þetta oftast mjög vel. Það
sem er jákvætt við að strengja ára-
mótaheit og setja sér markmið er að
maður er að taka ábyrgð á lífi sínu.
Það lýsir vitund um að ef ég ætla að
breyta líðan minni og aðstæðum þá
verð ég að taka sjálf/ur fyrsta skref-
ið. Slík nýársheit eru örugglega af
hinu góða“
Vegvísir að farsælu áramóta-
heiti
Ingólfur segir mikilvægt að vera
meðvitaður um að vera heiðarlegur
við sjálfan sig. „Orðin eru auðveld
en þau duga skammt þegar maður
er á leið að því markmiði sem maður
setur sér. Einnig mega áramótaheit
ekki vera of spennumyndandi, við
búum í háhraðasamfélagi og viljum
oft fá árangur á skömmum tíma. Að-
stæður okkar bjóða upp á ákveðn-
ar forsendur sem gott er að virða.“
Hann setti saman vegvísi að farsælu
áramótaheiti:
Gerðu þér grein fyrir því hvað það er
sem þú vilt! Þannig skilgreinir þú mark-
miðið þitt skýrt.
Upplifðu í huganum hvað þú færð út
úr því að ná markmiðinu! Þarna liggja
hvataþættirnir og þarna máttu leyfa
þér að sleppa huganum lausum, haltu
þig við þrjú til fjögur atriði.
Sjáðu fyrir þér hvað þú þarft að gera
til að ná markmiði þínu! Þetta eru
aðgerðirnar sem þú framkvæmir til að
koma þér á áfangastað.
Áttaðu þig á hvað getur tafið þig á leið
þinni að markmiðinu! Mundu við erum
mannleg og við förum stundum út af
leið.
Áramótaheit eða markmið?
Davíð Kristinsson lífsstílsþjálfari
setti sér afdrifaríkt áramótaheit
fyrir 17 árum. Áramótaheitið var
að byrja að stunda líkamsrækt.
„Ástæðan fyrir því að heitið stend-
ur enn er að ég var að gera þetta
fyrir sjálfan mig, ekki aðra og það
þurfti ekki að treysta á neinn annan
til að fylgja þeim. Ásamt því að mér
fannst þetta gaman. Samt er hann
mun meira fylgjandi því að setja sér
markmið. Við vitum ekki hvert við
ætlum nema að við setjum okkur
skrifleg markmið. Skrifleg mark-
mið er málið og með SMART mark-
miðum nærðu að komast þangað
sem þig langar.“
S = Skýr: mikilvæg, læsileg og skiljanleg.
M = Mælanleg: þú verður að vita hvenær
þú hefur náð þeim.
A = Alvöru: þú verður að geta náð þeim.
R = Raunhæf: það má ekki taka of langan
tíma að ná þeim.
T = Tímasett: settu lokatíma á markmiðin.
Flestir eru sammála um það að
markmiðasetning sé lykilatriði.
Þegar markmiðin eru komin nið-
ur á blað, hvernig er þá best að ná
þeim? Davíð tekur dæmi um mann
sem ætlar að lækka fituprósentuna
sína úr 32% í 26% og léttast um 6
kíló fyrir 1. apríl 2013. „Skrifið nið-
ur hvernig þið ætlið að ná þessum
markmiðum, höfum þau skrifleg
og sjáanleg. Virðum þau svo fyrir
okkur á hverjum degi. Með afsök-
unum sífellt náum við ekki mark-
miðum okkar eða þeim árangri
sem við viljum. Stundum þurfum
við að gera hluti sem okkur finn-
ast ekkert skemmtilegir eins og að
skipuleggja mataræði okkar, elda
Fjöldi fólks nýtir sér áramótin til að breyta lífi sínu eða hegðun með einhverjum hætti. Fréttatíminn
hafði samband við ýmsa sérfræðinga til að varpa ljósi á það hvers vegna við strengjum þessi heit og
hvernig er best að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur. Rætt er við Álfheiði Steinþórsdóttur,
sálfræðing hjá Sálfræðistöðinni við Þórsgötu, Davíð Kristinsson, næringar- og lífsstílsþjálfara, Einar
Einarsson, sjúkraþjálfara hjá KINE og Ingólf Snorrason, yfirþjálfara í líkamsræktarstöðinni Hreyfingu.
Áramót LykiLLinn að farsæLu Áramótaheiti
Andlegur þroski fólginn í
því að vilja breyta lífi sínu
Álfheiður Steinþórsdóttir
sálfræðingur
Ingólfur Snorrason
einkaþjálfari
Davíð Kristinsson
lífsstílsþjálfari
STAFGANGA Í LAUGARDAL
- Stafgan
ga -
Áhrifarík
leið
til líkamsr
æktar
Stafgöngunámskeið hefjast 15. janúar 2013
GUÐNÝ ARADÓTTIR, stafgönguþjálfi. Sími: 616 85 95.
JÓNA H. BJARNADÓTTIR, stafgönguþjálfi. Sími: 694 35 71.
BYRJENDANÁMSKEIÐ: Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
FRAMHALDSHÓPUR: Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
Skráning & nánari upplýsingar á: www.stafganga.is
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Fjallagrös og FíFlarót
Fæst í heilsubúðum og apótekum
www.annarosa.is
Fjallagrös og fíflarót hafa
frá ómunatíð verið notuð
til að hreinsa meltinguna
en tinktúran er einnig
sérstaklega góð gegn
uppþembu og vindgangi.