Fréttatíminn - 04.01.2013, Síða 36
Á sínum stað
verður áfram
Hot Yoga,
Hot Fitness,
Zumba,
Fanta gott
form og
sívinsæla
átaksnám-
skeiðið Þinn
árangur.
Af nógu er
að taka og
eitthvað
fyrir fólk á
öllum aldri
af báðum
kynjum.
Heilsa Kynningarblað Helgin 4.-6. janúar 2013
Hreyfing Spennandi námSKeið að HefjaSt
Viltu bæta heilsuna og
komast í betra form?
Í byrjun árs hugsa landsmenn sér til
hreyfings og margir strengja þess
heit að sinna heilsunni betur en áður.
Vinsælu námskeiðin fyrir konur og karla
hjá Hreyfingu hefjast 7. Janúar. Ágústa
Johnson framkvæmdastjóri segir ýmis-
legt nýtt og spennandi í boði og margar
fjölbreyttar leiðir færar til að bæta
heilsuna og komast í flott form.
á
gústa segir vorönnina lofa mjög góðu. Hún segir að
allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Vinsælir
tímar og námskeið halda áfram en ýmislegt nýtt
kemur inn eins og til dæmis Þrennan. „Þrennan
er nýtt, skemmtilegt og einstaklega fjölbreytt 6
vikna námskeið fyrir konur og karla sem vilja komast í gott form.
Þrennan stendur fyrir tíma þrisvar í viku sem skiptist í mismun-
andi æfingakerfi, meðal annars, Club fit, Hjól Activio og önnur
fjölbreytt kerfi. Þjálfarinn kemur á óvart með mismunandi æf-
ingakerfi í hverri viku. Það verður því mikil fjölbreytni sem mun
skila sér í góðum árangri.“
Önnur skemmtileg nýjung ársins er Ballet Fitness. Elva Rut
Guðlaugsdóttir balletkennari byrjar með nýtt námskeið fyrir full-
orðna, byrjendur sem og vana dans-
ara. „Það er mikið af fólki sem hefur
stundað dans og ballet á sínum yngri
árum og saknar þess að komast ekki í
þessa frábæru þjálfun sem ballettinn
er,“ segir Ágústa og bætir við: „Á sama
tíma og þátttakendur njóta þess að svífa
um gólf í skemmtilegum danssamsetn-
ingum þá er unnið í að bæta djúpvöðva-
styrk, liðleika, jafnvægi, líkamsstöðu
og samhæfingu.“
Mjúkt æfingakerfi sem mótar
líkamann.
5stjörnu FIT er nýtt æfingakerfi sem
sló rækilega í gegn í haust. Æfingarnar
eru stundaðar á hnitmiðaðan og róleg-
an hátt en eru krefjandi og skila góðum
árangri. Lögð er áhersla á þægilega
tónlist. Ágústa segir námskeiðið henta
þeim sem vilji móta og lengja vöðva og öðlast lögulegan líkama.
„Það sem gerir þetta námskeið svo vinsælt er að æfingakerfið
sameinar sérlega áhrifaríkar styrktaræfingar sem móta og tóna
vöðva líkamans, ekki bara þá helstu og mest notuðu heldur miklu
fleiri sem gerir gæfumuninn í árangri. Æfingarnar eru sérvaldar
til að umbreyta líkamanum á kerfisbundinn hátt með krefjandi
æfingum fyrir mjaðmir, rass og læri sem styrkja,og móta líkam-
ann. Grunnbrennsla líkamans eykst, líkaminn brennir umfram
fitu og kroppurinn kemst í sitt fínasta form.“
Enginn árangur? Club Fit er lausnin.
Hreyfing opnaði Club Fit salinn fyrr á þessu ári og hefur æfinga-
kerfið fengið frábærar undirtektir. Ágústa segir það í rauninni
vera draumaæfingakerfi. „Það er stutt, einfalt, skemmtilegt og
árangursríkt. Um er að ræða hópþjálfun þar sem fólk er annað-
hvort að ganga, skokka eða hlaupa á hlaupabrettum eða lyfta lóð-
um. Það góða er að fólk ræður sínum hraða á hlaupabrettinu og
velur sínar þyngdir en hefur þjálfarann til að hvetja sig áfram.“
Skiptingar á milli æfinga á brettinu og
styrktaræfinga með lóðum eru örar sem
gerir það að verkum að tíminn líður hratt.
Ágústa segir tímann frekar stuttan, 50
mínútur en æfingarnar eru sérstaklega
valdar með það fyrir augum að hámarks
árangur náist. „Club Fit tímarnir eru bæði
í boði í opinni dagskrá og lokuðum nám-
skeiðum, og mismunandi erfiðleikastig í
boði t.d. Club Fit 50 + fyrir fólk eldra en
50 ára og Club Fit extreme, sem er fyrir
lengra komna.“
Fanta gott form
Fanta gott form er æfingakerfi fyrir þá
sem eru tilbúnir að taka hressilega á og
uppskera árangur samkvæmt því. Ágústa
segir þjálfunina byggjast á einföldum
æfingum sem miðast við að þátttakendur
nái að hámarka brennslu og þjálfa upp
þol og styrk á skjótan og hnitmiðaðan
hátt. Fjör, kraftur og sviti er allsráðandi
á æfingunum sem eru fjórum sinnum í
viku. „Grunnbrennsla líkamans eykst og
í hverjum tíma verður til hinn eftirsótti
eftirbruni í líkamanum sem gerir það að
verkum að hitaeiningabrennsla líkamans
heldur áfram á auknum hraða í nokkrar
klukkustundir eftir að æfingu lýkur. Það
er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og
komast í sitt besta form. Öllum námskeið-
um fylgir svo aðgangur að opnum tímum,
tækjasal og glæsilegri útiaðstöðu með
heitum jarðsjávarpottum og gufuböðum
sem ljúft er að fara í eftir æfingar og slaka
á.“
Ágústa Johnson
framkvæmdastjóri Hreyfingar.