Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.01.2013, Page 38

Fréttatíminn - 04.01.2013, Page 38
Oft má satt kyrrt liggja Þ Þá er hinni árlegu sukkhátíð lokið þar sem saman tengjast matarorgíur jóla og ára- móta. Einhverjir afgangar eru trúlega til víða sem nota má á sunnudaginn, á þrett- ándanum, þegar við kveðjum jólin endan- lega og sprengjum það sem eftir er af ára- mótaflugeldunum. Börn eru byrjuð í skóla á ný og allt fell- ur í fastar skorður. Það er vel. Regla þarf að komast á ungviðið á ný eftir hamagang jólanna. Þorri barna fær svo margar gjafir að hálfgert æði sækir á börnin þegar þau opna pakkana á aðfangadagskvöld. Foreldr- ar mega hafa sig alla við til þess að fylgj- ast með hvað kemur frá hverjum svo réttri ömmu eða töntu sé þakkað fyrir sokka, vett- linga eða önnur plögg svo ekki sé minnst á allt leikfangaflóðið. Það er þó fremur fullorðna fólkið en ung- dómurinn sem borðar yfir sig, marga daga í röð. Hinu nýja ári fylgja því jafnan heit- ingar um nýtt og betra líferni að sukkinu loknu. Líkamsræktarstöðvar fyllast af sak- bitnu fólki sem reynir að þreyja þorrann, það er að segja að halda út janúar og febrúar í spriklinu en þá er það langt liðið frá jólum að margir leyfa sér að slaka á. Aðrir endast skemur, kaupa árskort og nota það kannski fjórum, fimm sinnum áður en þeir gefast upp – en splæsa síðan nýtt ári síðar. Pistil- skrifarinn veit upp á sig sök í þeim efnum. Margir sýna samt meiri staðfestu en þetta, hamast allan ársins hring, vöðvastæltir, fjör- ugir og íðilfagrir. Svo eru þeir hógværu, kannski skynsömu, sem fara reglulega út að ganga, hreyfa sig því meira sem færð á göngustígum skánar með hækkandi sól. Börnin þurfa hins vegar að nota þessa fyrstu daga ársins til þess að jafna sig á syk- urneyslu liðinnar jólahátíðar. Freistingarn- ar eru margar fyrir börnin þessa sérstöku daga og fyrirstaðan ef til vill minni hjá for- eldrum en endranær, svo ekki sé minnst á eftirlátsamar ömmur og afa. Þó ungdómur- inn troði sig hvorki út af rjúpum, hangikjöti né hamborgarhryggjum bragðast dísætir ísar og ýmsir aðrir eftirréttir vel. Þá er sæl- gæti á boðstólum, konfekt og annað nammi í skálum sem freistandi er fyrir litla fingur ekki síður en stóra. Tvær skvísur, barnabörn 6 og 8 ára, gistu hjá okkur aðfararnótt gamlársdags. Það þurfti lítið fyrir þeim að hafa. Þær léku sér ýmist saman eða horfðu á myndir í sjón- varpinu. Amman fór að vinna fyrir hádegi gamlársdags og þá reyndi á afann og stað- festu hans þegar að morgunverði stúlkn- anna kom. „Afi, við erum svangar,“ sögðu stúlkurnar í kór þegar aðeins var liðið á morgun þessa síðasta dags ársins. Ég bauð þeim seríós því ég er heldur far- inn að ryðga í gerð hafragrautar, hafi ég þá nokkurn tímann náð tökum á þeirri mat- argerð. Seríósið taldi ég boðlegt, hæfilega hollan árbít fyrir börnin og mótvægi við sukk árstímans. Var raunar nokkuð stoltur af því að geta boðið þeim hafrakorn með mjólk, bærilega hollustu miðað við staðla Manneldisráðs. „Nei,“ sögðu stelpurnar samtímis, seríós var ekki á morgunverðarlista gamlársdags. Trúlega voru enn í meltingarfærum þeirra sykurleifar ungangenginna daga, leifar sem kölluðu á fyllingu á ný. Hlutverk afans og ábyrgð hans er hins vegar það mikil að ég virti þetta nei meyj- anna að vettugi. „Þá fáið þið rúgbrauð með kæfu og mjólk,“ sagði ég af þeirri festu sem hverjum afa sæmir. Þennan árbít taldi ég líka standast öll opinber manneldismark- mið og gera börnum gott í miðri sukktíð jóla og áramóta. Enn fremur vissi ég að við þetta boð gat ég staðið. Vegna heilsu- bótarstefnu eiginkonu minnar erum við hætt að kaupa brauð úr hvítu hveiti. Sól- kjarnabrauð er því yfirleitt til á heimilinu. Í boði mínu til stúlknanna kaus ég þó að nefna ekki sólkjarnana sérstaklega, taldi líklegt að þeir höfðuðu ekkert sérstaklega til þeirra. Því var boðið einfalt, rúgbrauð og kæfa, sígildur og þjóðlegur réttur. Stelpurnar horfðu í forundran á afann, líkt og hann væri frá þjóðveldisöld. Vera kann að foreldrar þeirra komi ofan í þær rúgbrauði og kæfu við hefðbundnar og há- tíðarlausar aðstæður en þarna, á gamlárs- dagsmorgni, strækuðu þær í sameiningu á gott boð – og það einarðlega. „Hvað er til?“ spurðu þær um leið og þær opnuðu skúffur og skápa, enda nokkuð hagvanar í eldhúsi afa og ömmu. „Það er ekki margt annað, elskurnar mínar, fyrst þið viljið hvorki seríós né brauð,“ sagði ég, vitandi að hvorki þýddi að bjóða þeim afganga af rjúpum né svínakjöti svo árla dags. „Megum við fá svona og mjólk með?“ sagði sú eldri og benti á pakka af Oreo súkkulaðikexi með hvítu kremi í skúffu í eldhúsinnréttingunni – „og þetta líka,“ sagði sú yngri og benti á nær fullan pakka af súkkulaðirúsínum sem var hillu ofar. „Þetta er ekki morgunmatur,“ sagði ég og reyndi enn að muna eftir ábyrgð minni, studdur manneldissjónarmiðunum. „Æ-i, afi,“ suðuðu ungmeyjarnar í kór, „það er nú gamlársdagur, þá megum við hafa kósídag.“ „Hvað haldið þið að pabbi og mamma segi ef þau frétta að ég hafi gefið ykkur kex og súkkulaðirúsínur í morgunmat?“ „Þau þurfa ekkert að vita það,“ var sam- eiginleg niðurstaða staðfastra meyja sem greinilega ætluðu ekki að greina neinum frá þessum sykursæta morgunverði. Það ætlar afinn heldur ekki að gera. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Loft innan fárra mínútna Ilmur af mentól og eukalyptus Andaðu með nefinu Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingran- na. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þun- guð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan púls, er- fiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. 28 viðhorf Helgin 4.-6. janúar 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.