Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 42
32 bílar Helgin 4.-6. janúar 2013
Verðlaunabíll rafmögnuð framtíð
Chevrolet Volt frumsýndur á Íslandi
69%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
reynsluakstur toyota auris Hybrid
u m helgina verður kynnt ný kynslóð af Toyota Auris
og reynsluók ég Hybrid
útgáfunni milli jóla og
nýárs. Skemmst frá að
segja varð ég yfir mig hrifin.
Hybrid útgáfan er sambland af rafmagns-
bíl og bensínbíl. Rafmagnið startar bílnum
og knýr vélina þar til bensínvélin grípur
inn í. Hægt er að aka stutta vegalengd á
litlum hraða á rafmagninu einu en raf-
hlaðan hleður sig sjálfkrafa þegar stigið
er á hemlana. Niðurstaðan er einstaklega
sparneytinn bíll, sem eyðir einungis 3,8
lítum á hverja hundrað kílómetra í blönd-
uðum akstri.
Hægt er að velja nokkrar
stillingar fyrir vélina, þar
á meðal ECO-stillingu sem
eyðir minnstu eldsneyti. Ég
kunni ágætlega við hana þó
svo að bíllinn væri heldur
kraftmeiri í öðrum stillingum
en á móti kom að eyðslumæl-
irinn sýndi minni eyðslu en
ég hef nokkru sinni upplifað
í bíl. Bíllinn hjálpar jafnframt
til við að keyra sparlega,
eyðslumælirinn er mjög skýr
og áberandi og nálin á honum
verður rauð þegar gefið er of
mikið inn svo eyðslan verði
óhagstæð. Mjög þægilegt.
Bíllinn er sérstaklega
fallega hannaður, að utan
sem innan. Ég kunni vel að
meta sjálfskiptinguna sem er
ólík því sem fólk á að venjast.
Með einum hnappi fer hand-
bremsan á og hún fer sjálf-
krafa af þegar ekið er af
stað.
Í útgáfunni sem ég
reynsluók voru allar
helstu tækninýjungar,
lyklalaust start, bakk-
myndavél, handfrjáls Bluetooth búnaður,
leiðsögukerfi og hver veit hvað. Bíllinn er
þægilegur í stýri, stöðugur í keyrslu en
afar léttur þegar lagt er á hann. Alveg eins
og maður vill hafa það.
Útgáfan sem ég ók var svokallaður
hlaðbakur, stuttur en rúmgóður. Hann er
stærri að innan en utan og stærð skottsins
kemur á óvart. Á árinu er gert ráð fyrir
station-útgáfu sem myndi henta stórum
fjölskyldum jafnvel enn betur
– svo ekki sé talað um þegar
þörf er á að koma barnavagni
fyrir. Ég mátaði þrjá barna-
stóla í aftursætið en það gekk
ekki upp. Tveir barnastólar
sitthvoru megin við ungling
slapp hinsvegar vel til. Ég hef
reyndar enn ekki reynsluekið
bíl sem rúmar þrjá barnastóla
í aftursæti með góðu móti.
Eitt það besta við nýja Aur-
isinn er verðið. Til þessa hafa
hybrid-bílar og rafmagns-
bílar verið talsvert dýrari
en bensínútgáfurnar en nú
er breyting þar á. Nýr Auris
kostar frá kr. 3.250.000 kr. en
það er beinskiptur bensínbíll
með 1.33l vél. Sjálfskiptur
bensínbíll með 1.6l vél kostar
4.290.000 kr. og Auris Hybrid
kostar 4.690.000 kr. Vel þess
virði – skemmtilegur og fal-
legur bíll í alla staði.
Ný kynslóð hittir í mark
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Plúsar
+ Sparneytinn
+Fallegur
+ Rúmgóður
+ Þægilegur í akstri
+ Ríkulegur aukabúnaður
Mínusar
÷ Aftursætisgluggarnir
voru heldur hátt uppi
svo börnin sáu ekki
nægilega vel út.
Helstu upplýsingar
Verð: Frá 3.250.000 kr.
Eyðsla: 3,8*
Afl: 90-136 hestöfl
Breidd: 176 cm
*lítrar/100km í blönd-
uðum akstri
Vel þess
virði –
skemmti-
legur og
fallegur
bíll í alla
staði.
Alls seldust 763 Kia bílar hérlendis á nýliðnu ári.
Mesta sala Kia á Íslandi frá upphafi
Kia heldur áfram mikilli sókn hér á landi og á liðnu ári seldust alls 763 Kia bílar.
Þetta er mesta sala suður-kóreska bílaframleiðandans hér á landi frá upphafi
og er Kia í þriðja sæti yfir mest seldu bíla landsins á eftir Toyota og Volkswa-
gen, að því er fram kemur í tilkynningu frá umboði Kia hérlendis, Öskju. „Þetta
er um 110% söluaukning frá síðasta ári og er Kia nú með 9,6% markaðshlut-
deild í sölu nýrra bíla á Íslandi, sem jafnframt er sú hæsta í Evrópu. Kia hefur
verið sá bílaframleiðandi sem hefur vaxið einna mest í Evrópu undanfarin ár
og er víða með mjög góða markaðshlutdeild, m.a. í Danmörku og Finnlandi,“
segir þar.
„Þetta eru mjög ánægjulegar fréttir en koma raunar ekkert mjög á óvart þar
sem Kia hefur verið að koma fram með spennandi og fallega endurhannaða
bíla á árinu. Þá eru bílarnir einnig sparneytnir og umhverfismildir og það er
það sem bíleigendur leita í mjög auknum mæli eftir. Þá eru Kia bílarnir allir
með 7 ára ábyrgð frá framleiðanda en Kia Motors er eini bílaframleiðandi
heims sem býður svo langa ábyrgð á bílum sínum,“ segir Jón Trausti Ólafsson,
framkvæmdastjóri Öskju.
„Árið 2012 er að mínu mati ágætt ár, ef miðað er við árin 2008 - 2011, en
við verðum samt að horfast í augu við þá staðreynd að bílasala á enn talsvert
í land með að uppfylla eðlilega endurnýjunarþörf, sem ég tel liggja á bilinu
frá 12 - 14.000 bíla sölu á ári. Mikil breyting hefur orðið á markaðnum frá því
sem var þegar almennir tollflokkar voru bara tveir. Í dag eru tollflokkar bíla 10
talsins, þar sem vörugjöld eru reiknuð á bíla alfarið eftir mengunargildum og
þar með eyðslu. Sala á bílum í hagstæðari tollflokkkum hefur því aukist og sala
á bílum sem menga meira hefur minnkað. Ég tel að þegar almenningur fer að
kaupa bíla í auknum mæli, þá sjáum við þessa þróun verða enn hraðari,“ segir
Jón Trausti.
Chevrolet Volt er fyrsti langdrægi rafbíll sögunnar og
nú er komið að því að afhjúpa gripinn hér á landi, í óska-
landi vistvænnar raforku, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu umboðsins, Bílabúðar Benna. Bíllinn kemst um
60 km á rafhleðslunni einni. Volt framleiðir sína eigin
raforku og lengir heildar ökudrægið í allt að 500 kíló-
metra. Volt hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar
á mörkuðum, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.
„Volt hefur verið á Bandaríkjamarkaði í tvö ár og
eigendurnir þar hafa sett hann á topp ánægjulistans
bæði árin. Volt var og útnefndur Bíll ársins 2011 af bæði
Automobile Magazine og fagritinu Motor Trend. Hann
hefur jafnframt hlotið sæmdarheitið „Umhverfisbíll
ársins 2011“ hjá tímaritinu Green Car Journal. Nýjasta
afrekið er afgerandi sigur á bílasýningunni í Genf þar
sem hann hlaut titilinn „Bíll ársins 2012“. Dómnefndin
var skipuð 59 leiðandi bílablaðamönnum frá 23 Evrópu-
ríkjum,“ segir enn fremur í tilkynningu umboðsins.
Frumsýningin á Volt verður á morgun, laugardaginn
5. janúar, frá klukkan 12 - 18 í Bílabúð Benna, Tangar-
höfða 8.
Cheverolet Volt verður frumsýndur
hérlendis á morgun, laugardag.