Fréttatíminn - 04.01.2013, Page 45
tíska 35Helgin 4.-6. janúar 2013
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Kjóll kr. 12.900
Frábær verð og
persónuleg þjónusta
ÚTSALA 50%
AF ÖLLUM VÖRUM
( EKKI AF VÖLDUM VÖRUM)
s.512 1733 - s.512 7733
Kringlan - Smáralind
www.ntc.is | erum á
verð áður: 9.995.-
verð nú: 6.996.-
ÚTSALA
30-40%
af öllum útsöluskóm
verð áður: 8.995.-
verð nú: 6.296.-
verð áður: 8.995.-
verð nú: 6.296.-
verð áður: 7.995.-
verð nú: 4.797.-
verð áður: 12.995.-
verð nú: 7.797.-
afsláttur
Tíska Blómakransar Berglindar FesTival
Byrjaði sem skreyting
í barnaherbergið
B erglind Pétursdóttir er ung stórathafnakona. Hún heldur úti vefsíð-
unni vinsælu berglindfesti-
val, er dansari af guðs náð
og hannar og framleiðir
blómakransa á milli þess
sem hún sinnir uppeldi
unga sonarins, Kára.
Kransarnir eru fáanlegir
í gegnum vefsíðuna blo-
makransar.tumbr.com og
njóta, að sögn Berglindar,
mikilla vinsælda. Þeir eru
kjörnir við hvert tækifæri
sem gefst til þess að lífga
upp á heildarútkomuna.
Berglind fékk hugmynd-
ina á skemmtilegan hátt
eftir að hafa gefist upp á því að
skreyta herbergi sonarins með
silkiblómum sem rifin voru niður
jafnóðum af litlum krumlum. „Þetta
byrjaði þannig að ég keypti skreyt-
ingu í barnaherbergið en sonur minn
var alltaf að rífa hana niður. Þannig
fór blómalengjan á flakk um herberg-
in í íbúðinni þangað til ég var á leið-
inni á árshátíð og langaði að vera fín.
Ég skellti því blómunum í hárið og
það vakti svona líka stormandi lukku
því mér var mikið hrósað fyrir. Ég
ákvað því að kaupa meira af blómum
og búa til höfuðskraut sem rauk bara
út,“ segir Berglind og bætir því
við að nú sé hún því að færa út
kvíarnar.
„Ég var að fá sendingu af
plastblómum, beint frá Taívan
og er byrjuð að setja saman.
Fólk þarf ekkert að örvænta
því hægt er að minnka og
stækka kransana eftir þörf-
um,“ segir Berglind.
Berglind stendur ekki
aðeins í ströngu við gif–blogg-
færslur og hönnun á hárskrauti
heldur er hún er einnig á meðal
leikenda í nýju dansleikhúsverki
Steinunnar Ketilsdóttur, Já elskan.
Verkið fjallar um fjölskyldutengsl og
hvernig fólk aðagar sig í samskiptum
við ástvini og hver þolmörkin í þeim
samskiptum eru. Verkið var frum-
sýnt í síðustu viku í Þjóðleikhúsinu
og eru sýningar þess í fullum gangi.
Fyrir þau sem hafa áhuga á að
nálgast kransa Berglindar er hægt
að panta þá í gegnum vefsíðuna blo-
makransar.tumblr.com.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Kransarnir hennar Berglindar eru mikil prýði og hægt er að
nota þá við öll tækifæri. Þeir lífga verulega upp á „vetrarlúkkið“.
Berglindi þekkja margir undir nafninu Berglind festival en hún
heldur úti vinsælli samnefndri gif-síðu.