Fréttatíminn - 04.01.2013, Side 56
Nýliðinn Frank Ocean átti bestu plötu ársins
Fyrsta plata
Franks Ocean,
Channel
Orange, var
besta erlenda
plata nýliðins
árs. Þetta er
niðurstaða 23
sérfræðinga
og áhugafólks
um tónlist sem
Fréttatíminn
leitaði til. Frank
Ocean rétt
marði sigur
á Jack White
sem gaf út sína
fyrstu sólóplötu,
Blunderbuss.
U m sjötíu plötur komust á lista sérfræðinga Frétta-tímans yfir bestu erlendu
plötur nýliðins árs. Þrátt fyrir það
skera þrjár plötur sig algerlega úr
samkvæmt könnunni.
Fyrsta plata nýliðans Franks
Ocean hlaut 27 stig. Channel
Orange kom út um mitt ár 2012
og eftir því sem leið á árið var
nafn Oceans sífellt meira í um-
ræðunni. Sem dæmi um þá fersku
vinda sem hann þykir hafa komið
með inn í tónlistarheiminn má
nefna að hann er tilnefndur til sex
Grammy-verðlauna fyrir árangur
sinn á síðasta ári.
Skammt undan í kosningunni
var fyrsta sólóplata Jacks White,
Blunderbuss, með 26 stig. White
hefur fyrir löngu komið sér upp
traustum aðdáendahópi og platan
olli hans fólki engum vonbrigð-
um. Í þriðja sæti var fyrsta plata
bresku rokksveitarinnar Alt-J, An
Awesome Wave, sem hlaut Merc-
ury-verðlaunin á síðasta ári.
En það eru ekki bara ferskir
nýliðar sem komast inn á topp 20
í könnuninni. Gömlu mennirnir
Neil Young og Bruce Springsteen
þóttu báðir hafa sent frá sér fram-
bærilegar plötur í fyrra. Þá kom-
ast fjórar Airwaves-sveitir inn á
listann líka; Half Moon Run, Dirty
Projectors, Swans og Django
Django þó tvær síðastnefndu hafi
reyndar aflýst tónleikum sínum á
hátíðinni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Um kosninguna: 23 einstaklingar sendu inn topp 5 lista. Efsta sæti gaf fimm stig, annað sæti
fjögur stig og svo koll af kolli. Þessir tóku þátt: Anna Hildur Hildibrandsdóttir (Nomex), Arnar Eggert Thoroddsen (Morg-
unblaðið), Ásgeir Eyþórsson (Rás 2), Benedikt Reynisson (Gogoyoko), Bob Cluness (Reykjavík Grapevine), Dana Hákonardóttir (Iceland
Airwaves), Dr. Gunni (Fréttatíminn), Egill Harðarson (Rjóminn), Freyr Bjarnason (Fréttablaðið), Frosti Logason (X-ið 977), Grímur
Atlason (Iceland Airwaves), Halldór Ingi Andrésson (Plötudómar.com), Haukur S. Magnússon (Reykjavík Grapevine), Höskuldur Daði
Magnússon (Fréttatíminn), Kamilla Ingibergsdóttir (Iceland Airwaves), Kjartan Guðmundsson (Fréttablaðið), María Lilja Þrastardóttir
(Fréttatíminn), Matthías Már Magnússon (Rás 2), Jóhann Ágúst Jóhannsson (Kraumur), Ólafur Páll Gunnarsson (Rás 2), Tómas Young
(Útón), Trausti Júlíusson (Fréttablaðið), Þór Tjörvi Þórsson (Kvikmyndamiðstöð Íslands).
19-20
Bruce Springsteen - Wrecking Ball
Deerhoof - The Breakup Song
6 stig
Frank Ocean
- Channel
Orange
27 stig
2 Jack White - Blunderbuss 26 stig 3 Alt-J - An Awesome Wave 20 stig 4-5 Swans - The Seer 11 stig
4-5 The Walkmen - Heaven 11 stig 6 Grimes - Visions 10 stig 7-10 Half Moon Run - Dark Eyes
9 stig
7-10 Lost in the Trees - A Church
That Fits Our Needs 9 stig
7-10 Neil Young & Crazy Horse -
Psychadelic Pill 9 stig
7-10 Tame Impala - Lonerism
9 stig
11-15
Beach House - Bloom
Death Grips: The Money Store
Dirty Projectors - Swing lo Magellan
Julia Holter - Ekstasis
Woods - Bend Beyond 8 stig
16-18
Ariel Pink’s Haunted Graffiti -
Mature Themes
Django Django - Django Django
Jessie Ware - Devotion 7 stig
1
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
46 tónlist Helgin 4.-6. janúar 2013