Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.01.2013, Qupperneq 60

Fréttatíminn - 04.01.2013, Qupperneq 60
Dýrt vinnustaðagrín Logi gerði ekki aðeins grín að sjálfum sér og skaut aðeins á Áramótaskaup Sjónvarpsins og á honum mátti heyra að sér hefði þótt lítið til sprellsins koma. Hann talaði um Skaupið sem 30 milljón króna vinnustaðagrín, væntanlega með vísan til þess hversu miklum tíma var varið í að skensa íþróttafréttakonuna Eddu Sif Pálsdóttur og föður hennar, útvarpsstjórann. Þegar vinnustaðagrín er annars vegar þarf enginn að reyna að rengja Loga sem er annálaður vinnusta- ðagrínari og hrekkjalómur.  Sölvi TryggvaSon Tekur á erfiðum málum Erfitt að sitja and- spænis barnaníðingi Sölvi Tryggvason heldur áfram að kafa ofan í erfið samfélagsmál í þætti sínum Málið. Honum reyndist erfiðara en hann gerði ráð fyrir að sitja andspænis barnaníðingi. Ljósmynd/Hari m álið, fréttaskýringaþáttur Sölva Tryggvasonar, naut vinsælda á Skjá einum í fyrra. Þá var þátturinn á dagskrá einu sinni í mánuði en Sölvi tekur nú upp þráðinn á ný og skoðar erfið mál vikulega. Fyrsti fer í loftið á Skjá einum á mánudagskvöld og þá fjallar Sölvi um útigangsfólk sem berst í bökkum og þarf að láta hverri klukkustund nægja sína þjáningu. „Þetta eru þung og erfið mál,“ segir Sölvi um viðfangsefni sín og að vitaskuld sé erfitt að taka þau ekki inn á sig þegar djúpt er kafað. „Það er óhætt að segja að manni veiti ekkert af smá Pollýönnu- stemningu eftir að vera búinn að standa í þessu í tvo til þrjá mánuði.“ Sölvi nefnir sérstaklega þáttinn um barnagirnd en þar aflaði hann sér svo mikils efnis að tveir þættir verða lagðir undir miður geðslegt viðfangsefnið. Sölvi er reyndur fjölmiðlamaður og segir að í raun hafi fátt komið sér á óvart við gerð þáttanna en óneitanlega sitji viðtöl hans við barnaníðinga í sér. „Í raun og veru kom fátt mér á óvart nema kannski hvernig það er að sitja andspænis barnaperrum og spjalla við þá. Ég var búinn að gera mér í hugarlund að það væri aðeins minna mál en það reyndist vera.“ Sölvi fjallar um einelti í einum þáttanna og þar ræðir hann meðal annars við ungan mann sem mátti þola einelti en sá hefur meðal annars þetta að segja um afleiðingar þess: „Ef ég hefði búið í Bandaríkj- unum þá hefði ég bara náð mér í byssu og ég hefði farið og plaffað liðið niður.“ Sölvi segir ekki hægt að útiloka að skelfingaratburðir eins og skóla- skotárásir sem eru tíðar í Banda- ríkjunum gætu átt sér stað á Íslandi. „Það er alls ekkert útilokað og ef við værum með sama aðgengi að byssum þá er ekkert sem segir að þetta gæti ekki gerst.“ Sölvi segir allt opið um framhald- ið og hann viti ekki enn hvort hann geri fleiri þætti eftir að loknum þessum sex. „Það er allt opið og ég er ekki búinn að plana líf mitt lengra fram í tímann.“ Þórarinn Þórarinson toti@frettatiminn.is Ef við værum með sama aðgengi að byssum þá er ekkert sem segir að þetta gæti ekki gerst. Og þá er nú ekki slæmt að fá heims- meistarann til að þjálfa sig.  annie miST keyrir 20 mannS áfram í áTaki Tobba þarf að vera með vottorð í leikfimi Útvarpsmaðurinn vörpulegi Sigvaldi Kaldalóns hleypir ansi hressilegu þriggja mánaða líkamsrækarátaki af stað á mánudaginn. Hann hefur smalað saman tuttugu manns úr öllum áttum, skipt þeim í tvö tíu manna lið sem munu keppa í líkamsrækt undir styrkri stjórn An- nie Mist Þórisdóttur, heimsmeistara í Crossfit. Tobba Marínósdóttir, Björk Eiðsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og Svavar Örn Svavarsson, félagi Sigvalda í morg- unþættinum Svali og Svavar á útvarpsstöðini K-100, eru á meðal þeirra sem ætla að etja kappi í átakinu. „Við ákváðum að stilla þessu upp sem keppni vegna þess að það er svo algengt að fólk byrji af miklu kappi og allir voða kátir en gefst svo strax upp,“ segir Svali. „Við búum þess vegna til áskorendakeppni úr þessu þar sem hver hópur getur nælt sér í tuttugu stig á viku þótt það sé ekki þar með sagt að hann geri það.“ Svali segir keppnina snúast um árangur og að fólk standist verkefni sín en ekki standi til að fitumæla það eða vigta. Stigagjöfin fer síðan eftir vinnuframlagi og frammistöðu á æfingum. Skrópi einhver einn meðlimur í hópnum missir hópurinn tíu stig þannig að hver og einn fær stuðning frá sínu fólki og uppgjöf er ekki í boði. „Slappleiki er ekki tekinn gildur þannig að ef Tobba er veik þá verður hún að skila inn læknisvottorði. Það er ekkert annað tekið gilt. Þarna verður saman komið fólk úr öllum áttum og ýmsum stéttum í alls konar formi sem ætlar að takast á við þetta. Og þá er nú ekki slæmt að fá heimsmeistarann til að þjálfa sig,“ segir Svali sem er ekki síst spenntur að sjá hvernig félagi Svavar muni standa sig. -þþ Annie Mist keyrir mann- skapinn áfram af hörku en Svali og Svavar munu fara jafnt og þétt yfir árangurinn í útvarpsþætti sínum. Þá stendur til að sýna nokkra stutta þætti frá æfingum í vef- sjónvarpi mbl.is. Ljósmynd/NordicPho- tos/GettyImages Þverrandi þokki Landslið þjóðfélagshópsins sem oft er kennt við hnakka og skinkur fjölmennti á nýarsfagnað skemmtistaðarins Austur að kvöldi fyrsta dags ársins. Sjónvarpskempan og ókrýndur Íslandsmeistari í veislustjórn, Logi Bergmann Eiðsson, stýrði gleðinni, fór með gamanmál á milli rétta og stjórnaði spurninga- keppni eins og honum einum er lagið. Logi gerði meðal annars áhyggjur af aukakílóum sem fylgja jólaáti að umtalsefni og gaf lítið fyrir áhyggjur af slíku. Hann hefur löngum talist til þokkafyllri manna á landinu en sagðist búinn að sætta sig við björgunarhringinn og kippti sér ekkert upp við að konur séu farnar að klæða hann í en ekki úr þegar hann fer í sund. 79% áhorf á Skaupið Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Áramótaskaupsins, og handritshöfundar hans hafa síðustu ár verið ófeimin við að blanda hvassri ádeilu saman við grín sitt og þótti mörgum Skaupið ganga of langt að þessu sinni á meðan aðrir taka því fagn- andi að fá brodd í skemmt- unina. Gunnar Björn og félagar mega nokkuð vel við una þegar áhorf á glensið er annars vegar. Samkvæmt bráðabirgðatölum fékk Skaupið 77% meðal- áhorf á gamlárskvöld og uppsafnað áhorf er 79% og Skaupið því á svipuðu róli og síðustu ár. 50 dægurmál Helgin 29. júní-1. júlí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.