Fréttatíminn - 25.01.2013, Page 16
Bréf frá stjúpmóður til allra blóðmæðra stjúpbarna
Stjúpan er næstbesta mamman
Kæra blóðmóðir stjúpbarna.
Stjúpmóður barnanna þinna er annt um
börnin þín og leggur sig fram við að sinna
þeim eins vel og hún getur. Hún gerir sér
fulla grein fyrir því að enginn kemur
í þinn stað – er ekki að gera sér vonir
um það, né heldur að reyna það.
Stjúpmóðirin veit að mamma er best
– en stjúpan er næstbesta mamman.
Það er mikilvæg staða – sem hún
leggur sig fram við að sinna. Hún er
ekki í samkeppni við þig.
Stjúpmamman talar fallega um þig
við barnið þitt og vonar að þú gerir
slíkt hið sama um hana. Ef þú vilt
ekki verða vinkona stjúpu barnanna
þinna langar hana samt sem áður að
biðja þig um að sýna henni kurteisi
og virðingu í samskiptum. Hún mun
sjálf leggja sig fram um það þegar
þið hittist.
Stjúpmóðirin virðir samband þitt og maka
síns en óskar eftir því að þú virðir þau mörk
sem þau setja þér. Sumum stjúpum finnst
óþægilegt að fyrrverandi makar telji sig hafa
rétt á því að hafa samband við barnsföður
sinn í tíma og ótíma „barnanna vegna“. Það
er öllum fyrir bestu – börnunum líka – að
reglur séu settar um samskipti og samskipta-
hætti blóðforeldranna. Reglurnar geta hins
vegar verið jafn ólíkar og stjúpfjölskyldur eru
margar – því það sem hentar einum, hentar
ef til vill ekki öðrum.
Stjúpmóðurina langar jafnframt að biðja
þig um að treysta föðurnum – og sér – fyrir
uppeldi barnsins þíns. Þau geta þetta alveg
án þinna afskipta. Skriflegar eða munnlegar
leiðbeiningar um einföldustu smáatriði eru
óþarfar. Vesen tengt fatnaði barnsins skapar
einungis streitu hjá barninu. Ef sokkabuxur
gleymast á öðru heimilinu er barninu fyrir
bestu að ekki sé gert mál úr því.
Mundu að góð samskipti milli fjölskyldna
barnsins þíns eru í þágu barnsins. Allir vilja
að því líði sem best – og því eru stjúpmæður
tilbúnar að leggja ýmislegt á sig til þess að
svo megi vera og vonar að þú gerir slíkt hið
sama.
Stjúpmóðirin vill að þú virðir það við föður-
inn að hann getur ekki svarað umsvifalaust
hvort hægt sé að breyta dvalarfyrirkomu-
lagi barnsins. Honum ber að ráðfæra sig
við maka sinn áður en hann ráðstafar tíma
fjölskyldunnar með þeim hætti. Þú verður
jafnframt að virða það ef barnsfaðir þinn og
maki hans hafa önnur plön sem ekki er hægt
að hliðra.
Stjúpmóðirin óskar samt sem áður eftir því
að þú getir verið sveigjanleg varðandi dvalar-
fyrirkomulag barnsins þegar svo ber undir
og það er í þágu barnsins að bregða út af
vananum. Barnið má alls ekki missa af stór-
viðburðum í fjölskyldunni einungis vegna
þess að þeir eiga sér ekki stað á pabbahelgi.
Barninu má ekki finnast það skilið útundan.
Hið sama gildir um mömmuhelgar.
Ekki gleyma því að í öllu þessu eru hags-
munir barnsins í fyrirrúmi.
Höfum það ávallt í huga.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Fáðu góð ráð við oFnæmi
neutral.is
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum fráDönsku astma- og ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
6
27
19
0
1.
20
13
Ef þú vilt ekki verða vinkona stjúpu barnanna þinna langar hana samt sem áður að biðja
þig um að sýna henni kurteisi og virðingu í samskiptum.
524
fasteignir verða í leigufélagi
á vegum Íbúðalánasjóðs sem
stofnað var í vikunni. Áætluð
velta félagsins í ár er um 700
milljónir króna.
VikAn í tölum
38.000.000
króna kom Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður með til landsins í gegnum fjár-
festingarleið Seðlabankans í síðasta mánuði. Peningarnir fara í fjárfestingar á Íslandi.
10
einbýlishús sem kosta yfir
100 milljónir króna eru nú
auglýst til sölu á fasteignavef
mbl.is. Sala á dýrari eignum
er komin á svipað ról og hún
var fyrir bankahrun að mati
fasteignasala.
11
þjóðir eru betri en Ís-
lendingar í handbolta
miðað við úrslitin
á HM á Spáni.
Ísland hafnaði
í 12. sæti af 24
löndum.
29
milljarða króna hefur íslenska
ríkið greitt á föstu verðlagi
fyrir kirkjujarðir frá árinu 1997.
13
prósent er styrkleiki
þorrabjórsins Surts 8.1 sem
kemur í verslanir í dag. Hann
var látinn
þroskast í
eikar tunnum í
sex mánuði.
16 fréttir Helgin 25.-27. janúar 2013 vikunnar