Fréttatíminn - 25.01.2013, Side 30
Ófeigur gengur aftur
Leikstjóri Ágúst Guðmundsson
Frumsýnd í mars
Ófeigur, nýlátinn faðir Önnu Sólar, gengur aftur
og fer að hlutast til um líf hennar og kærasta
hennar, Inga Brjáns. Unga parið ætlar að selja
hús hins látna, en Ófeigur er því mótfallinn og vill
ekki að þau flytji. Afskiptasemi afturgöngunnar
er slík að Ingi Brjánn bregður á það ráð að
reyna að kveða drauginn niður með aðferðum
sem hann finnur í gamalli galdrabók. Ókunn-
ugleiki unga mannsins á þessu sviði verður þó
einungis til þess að hann vekur upp annan draug,
smáklikkaða fyrrum ástkonu Ófeigs, og við það
magnast reimleikar í húsinu um allan helming.
Laddi leikur Ófeig og Ilmur Kristjánsdóttir og
Gísli Örn Garðarsson leika parið sem situr uppi
með afturgönguna.
Fjörugt íslenskt bíóár framundan
Í slensk kvikmyndagerð fékk á sig þungt högg eftir bankahrunið 2008 og aðeins hægði á vel smurðum hjólum bransans. Áhyggjur af skertum styrkjum og fjársvelti greinarinnar settu sitt mark á framleiðsluna miss-
erin eftir hrun en nú virðist allt vera komið á fleygiferð á ný og árið 2013 verður
blómlegt. Í fyrra voru aðeins fjórar íslenskar bíómyndir frumsýndar, Svartur
á leik, Djúpið, Frost og svo Blóðhefnd sem náði engu flugi og hvarf úr bíó
eftir nokkra daga. Í ár kveður við allt annan tón og í kringum páskana verður
búið að frumsýna fjórar íslenskar myndir auk þess sem ýmis spennandi verk-
efni eru að fara í gang og lofa góðu fyrir næsta ár en framundan eru tökur á
Vonarstræti sem Baldur Z leikstýrir og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson er í
startholunum með mynd sína Kalt vor. Þá hafa Baltasar Kormákur og Dagur
Kári tekið höndum saman og ætla að vinna saman að næstu mynd Dags Kára,
Rocket Man, sem er fyrsta myndin sem hann gerir á íslensku frá því hann
steig fram með Nóa albínóa. Þá er Sigurjón Sighvatsson með tilbúið handrit
eftir Ottó Geir Borg að mynd eftir draugasögu Yrsu Sigurðardóttur, Ég man
þig, þannig að óneitanlega eru bjartari tímar framundan en á síðustu árum.
XL
Leikstjóri Marteinn Thorsson
Frumsýnd í janúar
Fyrsta frumsýningarmynd ársins
skartar Ólafi Darra Ólafssyni
í hlutverki þingmannsins Leifs
Sigurðarsonar. Sá er fullkominn
egóisti og í meira lagi drykkfelldur.
Eftir að hann skandaliserar þannig
að eftir er tekið opinberlega skikkar
forsætisráðherra hann í áfengis-
meðferð en áður en Leifur hefur þá
þrautagöngu ákveður hann að slá í
eitt almennilegt partí sem á eftir að
draga dilk á eftir sér.
Falskur Fugl
Leikstjóri Þór Ómar Jónsson
Frumsýnd í febrúar
Falskur Fugl er gerð eftir samnefndri
skáldsögu Mikaels Torfasonar frá árinu
1997. Myndin segir frá sextán ára
vandræðagemlingnum Arnaldi sem býr
hjá vel stæðum foreldrum sínum. Þegar
eldri bróðir hans sviptir sig lífi hrynur
veröld Arnaldar sem leiðist inn á rangar
brautir og verður sjálfum sér verstur
þótt hann sé gæddur góðum gáfum og
skorti fátt.
Hinn nítján ára gamli Styr Júlíusson
leikur Arnald en Alexía Björg Jó-
hannesdóttir og Davíð Guðbrandsson
leika foreldra hans.
Þetta reddast
Leikstjóri Börkur Gunnarsson
Frumsýnd í mars
Nokkuð er liðið síðan Börkur Gunnarsson
kláraði tökur á Þetta reddast sem kemur
loks fyrir sjónir áhorfenda á þessu ári. Í
myndinni leikur Björn Thors blaðamann
sem er með allt niður um sig, bæði í
vinnunni og einkalífinu. Hann ákveður að
reyna að bjarga sambandinu sínu með því
að bjóða kærustunni á Hótel Búðir þar sem
friður og ró svæðisins muni leggjast yfir
dömuna og hann geti dekrað við hana. En
það vill svo óheppilega til ritstjórinn hans
setur honum úrslitakosti þessa sömu helgi
og hann verður að fara upp á Búrfells-
virkjun og gera úttekt á svæðinu.
Málmhaus
Leikstjóri Ragnar Bragason
Frumsýnd í október
Árið 1970, á sama tíma og Black Sabbath tekur upp sína
fyrstu plötu, fæðist Hera Karlsdóttir á fjósgólfi á Svarthamri,
litlu kúabúi úti á landi. Í æsku er Hera uppátækjasöm og lífið
í sveitinni áhyggjulaust þangað til hræðilegur harmleikur
dynur á fjölskyldunni. Eldri bróðir hennar deyr af slysförum
og kennir Hera sjálfri sér um dauða hans. Í sorginni finnur hún
huggun í myrkri tónlistarstefnu og elur með sér draum um að
verða þungarokkstjarna. Árin líða undir svörtum hamrinum
sem gnæfir yfir bænum. Hera æfir sig út í eitt á gítarinn,
stofnar hljómsveit og er saga hennar samofin sögu þunga-
rokksins. Hera er uppreisnagjarn, óþreyjufullur og miskilinn
vandræðaunglingur á þrítugsaldri sem dreymir um hinn stóra
heim og er sífellt á leiðinni í burtu en er föst á æskuslóðunum.
Með aðalhlutverk fara Þorbjörg Helga Dýrfjörð, Ingvar E.
Sigurðsson og Halldóra Geirharðsdóttir.
Arnaldur missir tökin á tilverunni með
skelfilegum afleiðingum í Fölskum Fugli.
Ólafur Darri leikur drykkjusjúkan þing-
mann sem rótar sér í vandræði í XL.
Þungarokkið litar tilveru Heru í
kvikmyndinni Málmhaus.
Ágúst Guðmundsson með afturgengn-
um Ladda í Ófeigur gengur aftur.
Björn Thors leikur lánlausan blaðamann
sem treystir á að hlutirnir reddist.
Styrkir
Barnavinafélagið
Sumargjöf
Auglýsir styrki til rannsókna, lista og
þróunarverkefna, sem geta nýst börnum
á leik- og grunnskólaaldri.
Umsókn, ásamt greinargerð um verkefnið, skal senda
fyrir 17. febrúar 2013
Stjórn Barnavinafélagins Sumargjafar áskilur sér rétt til
að óska eftir nánari upplýsingum um verkefnið og
ármögnun þess og leita umsagnar fagaðila
Reykjavík 18. janúar 2013
Barnavinafélagið Sumargjöf
Pósthólf 5423, 125 Reykjavík
Netf: sumargjof@simnet.is
Miðasala 551 1200 | midasala@leikhusid.is
30 bíó Helgin 25.-27. janúar 2013