Fréttatíminn - 25.01.2013, Blaðsíða 26
Verðum að liði, vinnum
gegn atvinnuleysi.
Liðsstyrkur er nýtt átak til að berjast gegn
atvinnuleysi og auka verðmætasköpun um leið.
Þessi fjárhæð nemur grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta
að viðbættu 8% framlagi í lífeyrissjóð - en fer lækkandi
eftir því sem líður á árið.
Skráning og nánari upplýsingar á www.lidsstyrkur.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Nýtum tækifærið!
Atvinnurekendur sem grípa tækifærið
strax og ráða í ný störf úr hópi þeirra
sem lengst hafa leitað að vinnu, fá
186.418 kr. mánaðarlegt mótframlag
fyrstu sex mánuðina.
S á vaski og óþreytandi bar-áttumaður Ómar Ragn-arsson segir á bloggi sínu að sprenging stíf lunnar
í Miðkvísl, efst í Laxá 1970, hafi
verið „tímamótagerningur í nátt-
úruverndarbaráttunni í Evrópu og
er enn einstakur viðburður í sögu
hennar.“ Ómar lýsir síðan óaftur-
kræfum umhverf isspjöllunum
sem hefðu orðið ef „menn ætluðu
í fúlustu alvöru að framkvæma svo-
nefnda Gljúfurversvirkjun, sökkva
Laxárdal, taka Skjálfandafljót úr far-
vegi sínum, drepa fossana í fljótinu,
þar með Aldeyjarfoss og Goðafoss,
og veita því um miðlunarlón, sem
yrði stærra en Mývatn, í Kráká og
Laxá, trúa þeir þessu ekki, svo fá-
ránlegt sýnist þetta núna.“
Hermóður Guðmundsson bóndi
í Árnesi beitti sér fyrir stofnun
verndarsamtaka Laxár og Mývatns
og hlaut félagið síðar nafnið Land-
eigendafélag Laxár og Mývatns.
Fólkið á bökkum Laxár og Mývatns
sameinaðist undir merkjum félags-
ins í baráttunni gegn virkjuninni.
Hermóður var formaður félagsins
frá stofnun og þar til hann lést, árið
1977.
Hildur, dóttir Hermóðs, var um
tvítugt þegar sprengjan sprakk og
tók virkan þátt í mótmælunum. Hún
segir föður sinn þó hafa haldið sig
heima þegar farið var í sprengju-
leiðangurinn.
„Hann var ekki á staðnum vegna
þess að það var ekki talið skynsam-
legt að hann væri á svæðinu vegna
þess að hann var formaður Land-
eigendafélags Laxár og Mývatns.
Þannig að hann sat heima og leið
ekki vel, held ég,“ sagði Hildur þeg-
ar Fréttatíminn fékk hana til þess
að rifja upp stemninguna í sveitinni
í ágúst 1970. „Það var mikill hiti í
liðinu, mikil stemning auðvitað og
samstaðan í hópnum sterk.“
Eldmóður og baráttuandi
„Ég var náttúrlega hálfgerður ung-
lingur þarna. Rétt um tvítugt, full af
eldmóði náttúrlega og baráttuanda.
Ég hafði fylgst með þessu máli al-
veg frá því ég var krakki. Þetta
byrjaði náttúrlega dálítið snemma
og ég bara tók þátt í þessu,“ segir
Hildur. „Ég fór ofan í ána og mokaði
upp grjóti með höndunum og svona.
Svo skalf maður vitaskuld aðeins á
beinunum þegar maður þurfti að
mæta fyrir dómarann. Eins og allir
gerðu nú.“
Framkvæmdir við fyrsta áfanga
virkjunarinnar hófust 1970. Þing-
eyingar fóru í mótmælaferð til Ak-
ureyrar og er talið að þar hafi 500
manns látið til sín taka. Deilan
harðnaði svo þangað til Miðkvíslar-
stífla var rofin með dínamítspreng-
ingu, dráttarvélum og handverk-
færum. Sprengjumálið upplýstist
þannig að 113 Þingeyingar lýstu
Tímamótagerningur í
náttúruverndarbaráttunni
Að kvöldi 25. ágúst 1970 tóku bændur í Suður-Þingeyjarsýslu
sig saman og sprengdu í loft upp stíflu í Laxá við Mývatn.
Sprengingin var þrautalending bændanna í deilu sem var í hnút
og markar að margra mati upphaf náttúruverndarbaráttu á Ís-
landi. Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson frumsýndi
í miðri vikunni heimildarmyndina Hvellur sem fjallar um þennan
sögulega atburð sem hefur þó ekki farið hátt hin síðari ár. Hildur
Hermóðsdóttir var um tvítugt þegar stíflan var sprengd, dóttir
Hermóðs Guðmundssonar bónda í Árnesi sem var í fylkingar-
brjósti bændanna. Hún segir hitann í mannskapnum hafa verið
mikinn og samstöðuna einstaka en á sínum tíma lýstu 113 manns
verkinu á hendur sér.
verknaðinum strax á hendur sér.
65 voru síðan ákærðir og fengu skil-
orðsbundna dóma.
Þrír menn sprengdu stífluna og
í myndinni Hvellur, eftir Grím Há-
konarson, kemur fram að þeir voru
Guðmundur Jónsson á Hofsstöðum,
Sigurgeir Pétursson á Gautlöndum
og Arngrímur Geirsson í Álftagerði
sem er sá eini þeirra sem enn er
á lífi.
Neyðarúrræði
„Þetta var náttúrlega mjög rót-
tækt en það var náttúrlega lengi
búið að reyna samningaleiðina en
alltaf komið að lokuðum dyrum,“
segir Hildur og bætir við að engin
hreyfing hafi komist á málið fyrr
en eftir sprenginguna. „Það var nú
eiginlega fyrst eftir að þetta gerð-
ist sem reynt var að setjast niður
og semja af einhverri alvöru. Ætli
samningar hafi ekki náðst þremur Áin sem ekki tókst að stífla.
26 viðtal Helgin 25.-27. janúar 2013