Fréttatíminn - 25.01.2013, Síða 34
34 vetrarfjör Helgin 25.-27. janúar 2013
Ferðir Guide to iceland
Gera gagnagrunn
fyrir ferðafólk
Frábærir viðburðir!
Skoðaðu viðburðina á:
Lj
ós
m
yn
d:
©
E
in
ar
G
uð
m
an
n
/eljagangur
2013
www.eljagangur.is
Vetrar- og útivistarhátíð
á Akureyri
14.-17. febrúar
Éljagangur verður á N4
dagana 11.-17. febrúar
Fylgist með!Sjónvarp
m.a. snjóbrettakeppni og -sýning
vélsleðaferðir íscross
gönguskíði fjallaskíði
þyrluskíði sleðaspyrna
Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is
Miðasala 551 1200 | midasala@leikhusid.is
Fóru
nýja leið í
markaðs-
setningu
og gáfu til
góðgerða-
mála.
Guide to Iceland er hugarfóstur vinanna Ingólfs Shahin og Elmars Johnsons. Þeir starfrækja
gagnvirka heimasíðu fyrir fólk sem langar að ferðast um Ísland en veit ekki hvert það á að snúa
sér. Síðan nýtur þegar nokkurra vinsælda meðal erlendra ferðamanna, sem þar fá tækifæri til
þess að setja sig í samband við ólíka, ferðaglaða Íslendinga og fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar.
V inirnir Elmar Johnson og Ingólfur Shahin standa, ásamt öðrum, að baki
heimasíðunnar Guide to Ice-
land. Síðan er ætluð öllum þeim
sem hafa áhuga á að ferðast um
landið, fara í framandi ævintýra-
ferðir og vita ekki alveg hvert á
að snúa sér. Síðan er sniðin að
þörfum erlendra ferðamanna, en
samkvæmt strákunum geta þó
allir ferðalangar nýtt sér hana til
hliðsjónar.
„Þetta er svona samansafn
af upplýsingum um ferðir og
Guide to Iceland er hugsað
sem aðstoð við ferðamenn
á Íslandi, jafnt innlenda
sem erlenda. Mynd Getty
staði en á síðunni hjá okkur eru
líka nokkrir hressir bloggarar,
sem setja inn sínar persónulegu
færslur. Okkur langar með því að
hjálpa erlendum ferðamönnum að
ná sambandi við „lókals“ kannski
með svipuð áhugamál sem geta
„tourað“ með þeim eða leiðbeint
þeim frekar,“ segir Ingólfur.
Elmar segir að bloggararnir
fari svo í ferðir á vegum þjón-
ustuaðila í gegnum síðuna, án
endurgjalds og gefi þeim síðan
einkunn. Þannig skapist grund-
völlur fyrir samvinnu auglýs-
enda, íslensku bloggaranna og
síðunnar, þessi samvinna kemur
svo ferðalöngum til góða.
Markaðssetning fyrirtækis-
ins hefur verið ögn frábrugðin
því sem þekkist. Fyrirtækið
hóf svokallaðan „like–leik“ á
Facebook en í stað þess að útbýta
vinningum til þeirra einstak-
linga sem „líkuðu“ við síðuna,
ákváðu þeir að safna ákveðinni
upphæð við hvert „like“ og gefa
svo summuna að endingu til
góðgerðarmála. Rúmlega tvö
þúsund manns tóku þannig þátt
í að styrkja Maríusjóðinn sem
er stuðningssjóður kvenna og
barnaverndarsamtaka. Alls voru
gefnar 300.000 krónur í nafni
aðdáenda síðunnar.
„Við vildum fara nýja leið í
markaðssetningu, það þýðir ekk-
ert að fara í felur með að þetta
var meðal annars gert til þess
að vekja athygli á okkur sjálfum.
Með því að gera það svona, ögn
manneskjulegra en þekkist unn-
um við okkur svo inn gott karma
til að byrja með,“ segir Elmar og
Ingólfur bætir við, „við vildum
ekki vera í sama bullinu og allir
hinir, en þurftum samt að verða
sýnileg á einhvern hátt.“
Fyrir áhugasöm er slóð síðunn-
ar guidetoiceland.is, þar er hægt
að fylgjast með bloggurunum og
fréttum af ferðum eða hafa sam-
band hafir þú áhuga á að blogga á
svæðinu. Einnig er hægt að hafa
samband í gegnum Facebook.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is