Fréttatíminn - 25.01.2013, Side 18
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
G entille Brukum og Pierette Golo eru rúmlega tvítugar og starfa á heimili fyrir munaðarlaus börn í Aneho í Tógó sem rekið er með aðstoð
íslenskra hjálparsamtaka, Sól í Tógó. Þær dvelja nú á
Íslandi og eru í hálfs árs starfsnámi á Hjallaleikskól-
anum Laufásborg þar sem þær kynna sér starfsemi
skólans í því skyni að efla starfsemi barnaheimilisins
í Tógó.
Þær hafa aldrei áður komið til útlanda og sannar-
lega aldrei upplifað kulda því meðalhiti í Tógó er milli
23 og 30 gráður. Þær eru því ekki vanar að þurfa að
klæða sig svona mikið og finnst dálítið erfitt að hreyfa
sig í öllum þessum fötum.
„Heimsóknin hingað er hins vegar auðveldari en
við áttum von á,“ segir Pierette. „Það var tekið ofboðs-
lega vel á móti okkur og börnin og kennararnir sýna
okkur mikla hlýju og vinarþel,“ segir hún.
Börnin hér opnari
Þær segja muninn á starfi barnaheimilisins og leik-
skólans ekki eins mikinn og þær áttu ef til vill von á.
„Börnin á Laufásborg eru samt sem áður opnari en
börnin í Tógó og spyrja kennarana um hvað sem þeim
liggur á hjarta. Ástæðurnar fyrir því eru hins vegar
fyrst og fremst samfélagslegar því í Tógó er ekki hefð
fyrir því að segja hvað sem er,“ segir Pierette.
Að auki séu kynin hér aðgreind, stúlkum og drengj-
um er kennt í hópum af sama kyni og finnst þeim
það áhugaverð aðferðafræði sem þær myndu gjarnan
vilja gera tilraunir með á barnaheimilinu. „Hér borða
kennarar jafnframt með börnunum og fá sama mat
og þau, en það tíðkast ekki á barnaheimilinu,“ segir
Gentille.
Þær segjast hafa lært mjög margt af heimsókninni
nú þegar sem þær muni taka með sér til Tógó, ekki
síst hið sérstaka samband milli kennara og nemenda.
„Það sem er líkt er að á báðum stöðunum er börn-
unum sýnd mikil ást og umhyggja,“ segir Pierette og
Gentille tekur undir það. „Það er það allra mikilvæg-
asta,“ segir Pierette. „Ef börnin eru elskuð gengur allt
annað vel,“ tekur Gentille undir.
Pierette eignaðist barn fyrir fimm árum og þurfti
þá að hætta í skóla því þá var það bannað samkvæmt
lögum að ganga í skóla barnshafandi. Þeim lögum
hefur síðan verið breytt. Pierette hélt áfram námi eftir
fæðingu barnsins og lauk ritaranámi. Hún er einstæð
og átti erfitt með að finna vinnu því enginn var til að
gæta barnsins hennar á meðan. „Ég fór til Victorine,
nunnunnar sem rekur barnaheimilið, og útskýrði
fyrir henni stöðu mína. Hún sagði að börnin á barna-
heimilinu vantaði móður og ég gæti komið og unnið
þar,“ segir Pierette. Hún þáði starfið því hún má hafa
dóttur sína með sér í vinnuna á barnaheimilinu.
Gentille er menntaður hjúkrunarfræðingur og
starfar á sjúkrahúsi í Aneho og á barnaheimilinu þar
sem hún býr og ólst upp því hún er sjálf munaðarlaus.
Báðar hlakka til að koma með reynslu sína til baka
og miðla henni. Þær vonast jafnframt til að þær fái
aukna ábyrgð í kjölfarið á barnaheimilinu.
Alda Lóa Leifsdóttir er forsvarsmaður styrktar-
félagsins Sól í Tógó sem stofnað var árið 2008 til
að styrkja heimilið í Aneho í Tógó og rekið er af
sjálfboðaliðum. „Félagið safnar heimilisvinum og
styrktarforeldrum á Íslandi og með framlagi þeirra
er munaðarlausum börnum búið skjól og öruggt um-
hverfi,“ segir Alda Lóa. „Annað verkefni okkar er að
efla og mennta starfsfólkið á barnaheimilinu í Aneho
og auka þannig getu heimilisins til þess að búa börnin
vel út í lífið,“ segir hún. Starfsnám Pierette og Gentille
hér á Íslandi er hluti af þeirri stefnu. „Victorine kom
hingað sjálf fyrir nokkrum árum og kynnti sér starf-
semi Laufásborgar, aðallega með það fyrir augum að
fá hugmyndir um hvernig halda megi utan um stóran
hóp barna því á þeim tíma var barnaheimili hennar að
vaxa hratt. Á því búa nú um 80 börn,“ segir Alda Lóa.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Ef börnin eru elskuð gengur allt annað vel
Tvær starfskonur
á heimili fyrir
munaðarlaus
börn í Tógó í
Afríku sem rekið
er með stuðningi
íslenskra hjálpar-
samtaka, Sól
í Tógó, eru
nú í hálfs árs
starfsnámi á
leikskólanum
Laufásborg í
Reykjavík. Þær
segjast aldrei
hafa upplifað
eins mikinn
kulda og þurft að
klæða sig í jafn-
mikið af fötum.
Gentille Brukum og Pierette Golo hafa dvalið á Íslandi frá því í nóvember en verða alls í hálft ár í starfsnámi á leikskólanum Laufásborg á vegum hjálparsamtakanna Sól í Tógó sem styðja rekstur heimilis fyrir
munaðarlaus börn í Tógó. Ljósmynd/Hari
18 viðtal Helgin 25.-27. janúar 2013