Fréttatíminn - 25.01.2013, Page 28
Tilraun til þess að
skoða viðfang allrar
sagnfræði, mann-
eskjuna sjálfa og
umhverfi hennar
sem, á því skeiði
sem bókin nær
yfir, einkenndist af
miklum félagslegum
breytingum og oft
óvægnum átökum.
Bókamarkaður
2013
Árlegur bókamarkaður
Félags íslenskra bóka
útgef enda verður í Perlunni
22. febrúar til 10. mars
næstkomandi.
Útgefendur sem vilja
bjóða bækur sínar á
markaðinum er bent á að
hafa samband við Félag íslenskra
bókaútgefenda sem fyrst, eða eigi
síðar en 7. febrúar n.k., í síma
511 8020 eða á netfangið
baekur@simnet.is
L íkt og í fyrri bók Þorleifs Friðrikssonar sagnfræðings, Við brún nýs dags, leitast hann við í Dögum vinnu og vona að feta nýjar brautir í íslenskri samtímasögu.
„Bókin er hvorki hefðbundin saga félags né stríp-
uð fræðileg greining og enn síður saga af hetjum
og fórnarlömbum. Verkamannafélagið Dagsbrún
er leiðarhnoða um samfélag alþýðufólks á tíma-
bilinu frá um 1930 fram á sjötta áratug 20. aldar.
Bókin er tilraun til þess að skoða viðfang allrar
sagnfræði, manneskjuna sjálfa og umhverfi
hennar sem, á því skeiði sem bókin nær yfir, ein-
kenndist af miklum félagslegum breytingum og
oft óvægnum átökum,“ segir Þorleifur.
Bókin er mitt „Opus magnum“
Bókin Dagar vinnu
og vona, saga Dags-
brúnar kom út fyrir
jólin. Höfundur
bókarinnar, Þorleifur
Friðriksson sagn-
fræðingur, vann
um árabil að rann-
sóknum á sögu Dags-
brúnar og reykvísks
alþýðufólks. Dagar
vinnu og vona
er annar hluti
afraksturs þeirra
rannsókna, en fyrir
hefur Þorleifur
gefið út bókina
Við brún nýs dags.
Saga Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar
1906-1930. Sú bók
fékk tilnefningu Hag-
þenkis sem besta
fræðirit ársins 2007.
Bókin er, að sögn höfundar, hógvær
hvunndagssaga og varð að mestu undir
í jólabókaflóðinu. Hann segir að það hafi
verið sárt að fylgjast með verkinu týnast
þar sem bækurnar tvær séu orðnar að ævi-
starfinu. „Þegar ég átti leið í bókaverslun í
höfuðstaðnum á Þorláksmessu sá ég hana
húka í neðstu röð í fræðibókarekka eins og
feimið saklaust barn. Mér er að sjálfsögðu
ekki sama um hvernig því vegnar á fyrstu
andartökum tilveru sinnar og vil því minna
á tilveru þess. Sjálfur á ég ekkert undir því
að bókin seljist nema væntumþykju til þessa
verks sem ég kalla „lífsverk“ mitt sem hefur
verið á leiðinni í áratugi. Ég hef svo sem
skrifað og birt ýmislegt á þessum tíma en
er ekki í vafa um að þetta verk er mitt „Opus
magnum“.“
Þó að bókin sé vissulega saga Dagsbrún-
ar, fléttast saman við frásögnina hvunndags-
líf alþýðunnar. „Ég er alltaf ragur við að nota
„saga Dagsbrúnar“ því ég óttast að fólk haldi
að þetta sé endursögn úr fundargerðum og
saga af hetjum stéttabaráttunnar. Hún er
það kannski að hluta, en spannar samt miklu
breiðara svið. Ég kem inn á fæðu, klæði og
tannskemmdir. Lýsi heimilishaldi og hvunn-
dagssýslan og greini meðal annars frá því
af hverju hádegisfréttir Ríkisútvarpsins eru
klukkan 12.20. Þetta þykir kannski absúrd
en hefur stórmerkilega sögu sem sannarlega
tengist efni þessa verks.“
Í bókinni eru fjölmargar myndir sem
flestar eru teknar af Karli Christian Nielsen,
verkamanni (1895-1951). Linsuauga hans
er notað til þess að skoða heim og aðstæður
alþýðufólksins fram um miðja 20. öld.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Karlar bíða átekta, líklega eftir vinnu.
Hafnarverkamenn
við Reykjavíkur-
höfnl.
Líf á miðbakka.
28 bækur Helgin 25.-27. janúar 2013