Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.01.2012, Side 18

Fréttatíminn - 06.01.2012, Side 18
B reiðan af svart hvítum myndum þekur vegg í fundarherbergi í fjár- málaráðuneytinu. Vel til hafðir hvítir karlar. Svart hvítir karlar. 33 karlmenn hafa setið í stóli fjármálaráðherra frá árinu 1917 – í 95 ár. Enn vantar mynd af Steingrími J. Sigfússyni, sem steig úr stólnum á síðasta degi ársins. Verður hún svart hvít? Vonandi verður myndin af Odd- nýju G. Harðardóttur í lit. Lit sem undirstrikar að hún er fyrst kvenna til að gegna starfi fjármálaráðherra á Ís- landi. Brotið hefur verið blað í íslenskri stjórnmálasögu. „Ég var viss um að sá tími væri ekki kominn þar sem við gætum séð fyrir okkur konu í þessu starfi. Það var rangt. Já, tóm vitleysa,“ segir Oddný þar sem hún situr í virðulegu fundar- herberginu. Við kaffivélina heilsaði hún starfsmönnum sínum – sumum í fyrsta sinn. Oddný er ekki óvön því að vera yfirmaður. Hún var bæjarstjóri í Garði á árunum 2006 til 2009. Hún var aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja um níu ára skeið frá 1994 og gegndi starfi skólameistara í eitt ár. Spurð hvort starfsmenn ráðuneytisins geti fagnað nýjum ráðherra, gefur hún það diplómatíska svar að gott sé að vinna með Steingrími. „En mér hefur gengið vel að vinna með fólki og ekki átt í vandræðum í samskiptum við fólk,“ svarar hún svo. Segja má að Oddný hafi farið hljóðum skrefum um Alþingi frá því að hún settist á þing fyrir Samfylk- inguna vorið 2009. En það þýðir ekki að hún hafi setið auðum höndum. Hún tók strax við formennsku í mennta- málanefnd, sat í samgöngunefnd og umdeildri þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu, svokallaðri Atla Gíslasonar-nefnd. Hún tók einnig sæti í fjárlaganefnd – nefndinni sem margar konur forðast – og svo við for- mennsku nefndarinnar 2010. Ráðherra eftir tæp þrjú ár á þingi Framgangur Oddnýjar í íslenskum stjórnmálum er undraverður og óvenju- legur. Hún er orðinn ráðherra eftir tæp þrjú ár í landspólitíkinni. „Ég gekk nú ekki í Samfylkinguna fyrr en í febrúar 2009. Þá var ég bæjarstjóri í Garðinum. Þegar farið var að hugsa til kosninga eftir hrun fékk ég símhringingar og heimsóknir á bæjarskrifstofuna þar sem samfylkingarfólk bað mig um að taka þátt í prófkjöri. Ég sagði fyrst að það væri af og frá. Enda eitt ár eftir af kjörtímabilinu,“ segir hún. „Smám saman fór ég að sættast við þessa hugmynd og ákvað á endanum að taka þátt í prófkjörinu. En á meðan á prófkjörsbaráttunni stóð var ég reynd- ar í útlöndum. Við hjónin vorum búin að ákveða að fara í hálfsmánaðar frí, þannig að ég tók ekki þátt í baráttunni nema í svona fjóra til fimm daga.“ Oddný segir að hún hafi búið að því að Suðurnesjamenn þekktu hana. Hins vegar þekkti hún ekki fólkið sem hún keppti á móti. „Nei, nei, nei, ekki neitt,“ segir hún og hlær. „Ég hafði sem bæjarstjóri hitt Björgvin [G. Sigurðsson] þegar hann var við- skiptaráðherra.“ Hún var þó ekki alveg blaut á bakvið eyrun þegar kom að stjórn málaþátttöku því í Garðinum var hún oddviti lista Nýrra tíma, sem var þverpólitískur. Hún vann með tveimur sjálfstæðismönnum og einum úr vinstri grænum. Sjálf var hún óflokksbundin. Ein af óþekktu þingmönnunum Þrátt fyrir þessa sigurgöngu á Suðurnesjum hefur Oddný fallið í hóp óþekktra þingmanna. „Stundum hef ég hugsað: Af hverju ætli fjölmiðlarnir hringi ekki í mig? Ég hef nú stundum verið skúffuð yfir því. En ég tel að það snúi að því hvernig ég vinn. Ég sekk mér ofan í vinnuna. Ég er varkár og orðvör og ég veit ekki hvort fjölmiðla- mönnum finnst það nægilega spenn- andi og vilji því heldur tala við þann sem er meira afgerandi og til í „fight- ing“. En ég hef heldur reynt að vinna að sameiningu og sáttum.“ Oddný bætir því við að hún geri sér grein fyrir því að ætli hún að halda áfram í stjórnmálum verði hún að breyta þeim vinnubrögð- um sínum: „Það tekur heilmikinn tíma að vera í viðtölum og eiga í samskiptum við fjöl- miðla, en það er nauðsynlegt. Stjórn- málamaður þarf að finna leið til þess að koma upplýsingum á framfæri og taka þátt í umræðunni.“ Sem dæmi um áhugaleysi á störfum hennar nefnir hún að sér hafi aðeins einu sinni verið boðið í umræðuþátt Sjónvarpsins á sunnudögum, Silfur Egils. „Það var á fyrsta degi, strax eftir kosningar. En þá átti fyrsti þingflokks- fundurinn að vera – á þessum sama tíma. Egill hringdi í mig og spurði hvort ég gæti komið sem fulltrúi nýrra þingmanna. Ég valdi fundinn. Síðan hefur hann ekki hringt. Og ekki hef ég hringt til að spyrja hann hvort það sé ekki komið að mér. Mér finnst þetta vera vísbending um að fjölmiðlamenn telji að ég hafi ekki það fram að færa sem þeir sækjast eftir.“ Móðir hennar ruddi menntaveginn Oddný á sér sögu stúlku úr sjávar- plássi sem barðist til mennta á tímum þegar mörgum þar þótti slíkt óþarfi. Fjármálaráðherra eftir tæp þrjú ár á þingi Oddný G. Harðardóttir virðist hafa sveipað sig hulinshjálmi á þingi og komist óséð í stól fjármálaráðherra – öllum að óvörum, fyrst kvenna. Hún var óflokksbundin þar til í febrúar 2009 og þekkti ekki keppinauta sína í prófkjöri Samfylkingarinnar á Suðurnesjum fyrir kosningarnar. Hún fékk frábæra kosningu, þótt hún hefði varið mestum tíma prófkjörsbaráttunnar í útlöndum. Hún ætlar að vinna hratt og vel, enda útlit fyrir að henni verði skipt út strax á haustmánuðum. Hún segir þó sjálf að um það hafi ekki verið samið. Árni Páll jafnar sig Oddnýju G. Harðardóttur finnst ekki sem hún hafi velt Árna Páli Árnasyni, fyrrum efnahags- og viðskipta- ráðherra, úr sessi þegar hann var settur af og hún tekin ný inn í ríkisstjórn- ina. „Ég lít svona á þetta: Þarna er metnaðarfullur og hæfileikaríkur efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann hugsar með sér að hann hafi svo margt fram að færa og vill gjarna að við fáum að njóta krafta hans. Hins vegar var ákveðið að fækka ráðherrum og hafa kynja- hlutföll sem jöfnust; sem mér finnst mjög gott. En ég skil vel að hann sé von- svikinn að stíga út úr ríkis- stjórninni, því hann langaði að koma málum í gegn sem að hann hefur trú að sé auðveldara fyrir sig að gera í gegnum ráðherrastólinn en sem þingmaður. En hann er ennþá jafnaðarmaður. Ég hef ekki trú á því að þessi breytta staða hafi þau áhrif að hann hætti að vinna fyrir hugsjón jafnaðarmanna. Það fyndist mér mjög skrýtið. Ég held að hann muni jafna sig,“ segir hún. „Svo er líka annað. Það er svo mikil áhersla lögð á ráðherrastólana. Störf þingmanna og þingið skiptir öllu máli. Þar er löggjafar- valdið og þar er mörkuð stefnan fyrir ráðherrana til að vinna eftir. Umræðan og athyglin er svo mikil á framkvæmdavaldinu en minni á þeim sem í rauninni leggja línurnar.“ - gag Hún er önnur í röð þriggja systra, fædd 1957. Hún er dóttir Agnesar Ástu Guðmundsdóttur og Harðar Sumarliðasonar. Þau skildu þegar Oddný var aðeins tólf ára gömul. Það kom ekki í veg fyrir að móðir hennar sendi dæturnar þrjár burt úr Garði og sótti Oddný meðal annars nám á Núpi í Dýrafirði fyrir vestan þar sem hún tók landspróf: „Ég var þó ekkert til vandræða,“ segir hún sposk. Síðan var hún í námi í borginni. Hún býr enn í Garðinum á Suðurnesjum, í húsinu sem for- eldrar hennar byggðu. „Ég erfði húsið ásamt systrum mínum þegar mamma dó fyrir aldur fram 49 ára gömul. Þá var ég tuttugu og fimm ára. Þetta var erfiður tími. Mamma var stoð okkar systra og stytta. Hörkukerling. Hún vann í frystihús- inu og djöflaðist áfram. Á þessum tíma voru fáir í Garðinum sem fóru í nám. Til hvers? En hjá okkur systr- unum kom ekkert annað til greina. Við fórum því allar þá leið. Þá var Fjölbrautaskóli Suðurnesja ekki kominn til sögunnar og ég var send sextán ára að heiman.“ Fyrsta árið bjó hún hjá vinafólki en leigði svo næstu ár herbergi á Skeggjagötu í Reykjavík. „Það var svo lítið að mamma flautaði fyrir utan þegar hún mætti á bílnum að sækja mig. Hún fékk innilokunarkennd í herberginu. Enginn sími, engin tölva. Staðan var allt önnur en hjá krökkum núna. Mér fannst erfitt að vera þarna. Ég var myrkfælin og ein. Þess vegna skil ég að fólki finnist mikilvægt að hafa framhaldsskóla nálægt heima- högunum. Á þessum tíma þurftum við sextán ára að spjara okkur ein. Þetta var svolítið harður heimur.“ Hitti Suðurnesjamanninn sinn í borginni Oddný er gift Keflvíkingnum Eiríki Hermannssyni, fræðslu- Framhald á næstu opnu Oddný G. Harðardóttir er fyrst íslenskra kvenna til að gegna embætti fjármálaráðherra á landinu. Ljósmyndir/Hari 18 viðtal Helgin 6.-8. janúar 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.