Fréttatíminn - 06.01.2012, Page 29
Helgin 6.-8. janúar 2012 heilsa 5
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
5
78
38
0
1.
20
12
Fitness morgunkornflögurnar innihalda 41%
minna af sykri, meira af trefjum og færri kaloríur
en sambærilegar heilsukornflögur á markaðnum.
Láttu skynsemina ráða og byrjaðu daginn á
bragð góðum og miklu hollari morgunverði.
Miklu meiri hollusta
41%
minni
sykur
Á rni Friðleifsson, varðstjóri í umferðadeild lögreglunnar, spilaði handbolta með meistaraflokki Víkings á yngri árum og var þá í toppformi. En svo kom að þeim degi að hann hætti í boltanum
og allri reglubundinni hreyfingu og safnaði aukakílóum. „Ég var kom-
inn í þessa leiðinlegu þriggja stafa tölu í þyngd,“ segir hann. Afleiðing
hreyfingarleysisins var svo að hann fékk verki í bak og hnén voru ekki
nógu góð. „Þá fór ég að hugsa: Þetta gengur ekki lengur,“ segir Árni.
LífstíLL Aldrei of seint Að byrjA
Lögreglumaður
breytti um lífstíl
Minnir á gamla tíma þegar Árni var á fullu í hópíþróttum
Um þarsíðustu áramót fór hann
á námskeið hjá Hreyfingu sem
heitir „Fanta gott form“, er þar
enn og ber því vel söguna.
Árni fór þó ekki strax á
námskeiðið, eftir að hann tók
ákvörðunina um að rækta betur
líkamann, heldur fór þá sjálfur
að stunda hlaup. „Það gekk ekki
nógu vel; ég var alltof góður við
sjálfan mig,“ segir Árni. Og þá
dreif hann sig á námskeiðið hjá
Hreyfingu. Það á mjög vel við
hann því þarna er hann aftur
kominn í hóp, eins og gamla
daga þegar hann var á fullu í
hópíþróttum. „Þarna er fjöldinn
allur af skemmtilegu fólki sem
mörg hver hafa verið í hópíþrótt-
um og fyrir okkur er þetta eina
vitið að mæta reglulega með
sínu fólki og taka vel á því. Nú
er ég líka löngu hættur að sjá
þriggja stafa tölu á vigtinni,“
segir hann og nefnir að heilsan
sé mun betri: Hann hefur ekki
þurft að missa úr vinnu vegna
bakverkja eins og áður og hnén
eru góð.
Árni er veiðimaður og stund-
ar mikla útiveru. „Að stunda
útiveru er orðið mun skemmti-
legra eftir að ég komst í betra
form,“ segir hann. Mataræði
Árna hefur líka batnað til muna.
„Ég breytti mataræðinu ósjálf-
rátt, hætti að borða jafn mikinn
skyndibita og fór að borða holl-
ari mat, og meira grænmeti
með. En ég hef ekki breytt mat-
arræðinu neitt öfgafullt, þetta
gerðist bara ósjálfrátt. Líkam-
inn kallar einfaldlega á hollara
matarræði,“ segir Árni.
Að endingu kemur Árni með
eitt heilræði: „Það er aldrei of
seint að byrja í líkamsrækt.“
Leitið upplýsinga á
auglýsingadeild Fréttatímans
í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift
á heimili á höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri og
í lausadreifingu um allt
land. Dreifing á bækl-
ingum og fylgiblöðum
með Fréttatímanum
er hagkvæmur kostur.
Leitið upplýsinga á
auglýsingadeild Fréttatímans
í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift
á heimili á höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri og
í lausadreifingu um allt
land. Dreifing á bækl-
ingum og fylgiblöðum
með Fréttatímanu
er hagkv ur kostur.