Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 40
Margir hafa þann sið að strengja áramótaheit sem þeim gengur mis- jafnlega að efna. Ef rétt er skilið felast þau yfirleitt í því að menn ætla að éta minna á nýja árinu og hlaupa af sér spikið og þeir sem reykja ætla að hætta. Aðrir, sem hvorki þjást af offitu né nikotínfíkn, stefna að því að verða heldur skárri í umgengni á nýja árinu en því gamla. Þetta er að sjálfsögðu góðra gjalda vert. Það er ekki eftirsóknarvert að vera feitur, hvað þá spikfeitur. Sú hefur þó verið þróunin í okkar samfé- lagi. Það þarf ekki að fara annað en á almenna samkomustaði fólks til að sjá þessa þróun líkamnast. Reykingar eru einnig ósiður sem skynsamlegt er að venja sig af. Það viðurkenna allir, ekki síst þeir sem reykja. Það nær auðvit- að engri átt að skaða heilsu sína – og annarra – með þessari áhættuhegðun og ömurlegt hlýtur það hlutskipti að vera að hrekjast út í hvaða veðri sem er til þess að soga ofan í sig reykinn. Reykingamenn eru nánast útlægir orðnir. Langt er síðan bannað var að reykja á vinnustöðum. Þeir sem muna mökkinn á skrifstofum fyrri tíma harma það ekki. Pistilskrifarinn hefur aldrei reykt en í stétt blaðamanna voru reykingar algengar þótt breyting hafi orðið þar á, eins og víðar. Meðan þær þóttu sjálfsagðar innan dyra sat ég um hríð í herbergi með stórreyk- ingamanni. Ekki er ofsagt að hann hafi kveikt í nýrri sígarettu um leið og drepið var í. Óbeinar reykingar voru því hlutskipti mitt og varla þó. Segja má að reykjarmökkurinn hafi farið lóðbeint ofan í mig meðan á herberg- isvistinni stóð. Heim kom ég á hverju kvöldi reyktur eins og magáll. Þróunin er samt í rétta átt hvað reykingarnar varðar. Reykingamönn- um fækkar öfugt við þá sem spikinu safna. Fráleitt þykir nú að reykja þar sem börn eru nærri en í mínu ungdæmi og raunar lengur amaðist enginn við reykingum fullorðinna í framsæti bíla þótt börnin sætu í aftursæti. Stofnanir hafa fyrir löngu bannað reykingar og sama gildir um veitingastaði og bari sem voru síðasta vígi reykingamanna. Það þykir ekki lengur töff að reykja og því fækkar þeim sem það stunda. Allir vita hversu hættulegar reyking- arnar eru. Sama gildir um fituna. Fólk veit að spikið er óhollt hverjum sem með það burðast. Það þykir heldur ekki töff að vera allt of feitur. Því er furðulegt hve hressilega fjölgar í þeim hópi. Þeir sem hvorki telja sig of feita né háða tóbaksfíkn þurfa þó að gæta að heilsunni. Þótt menn strengi ekki bein áramótaheit huga flestir að bættu líferni í upphafi nýs árs, að lokinni matarorgíu jóla og áramóta. Það á til dæmis við um okkur hjónin. Þótt göngustígar liggi nánast í allar áttir frá húsi okkar höfum við verið allt of löt að hreyfa okkur, að minnsta kosti ég, þrátt fyrir fyrirætlanir í þá veru. Nú erum við hins vegar ákveðin að bæta úr þessu. Því voru gönguskór reimaðir á fætur á nýársdegi, í kjölfar þess að forsetinn tilkynnti að hann byði sig ekki fram á sumri komanda. Nýársdugnaður okkar tengdist þó á engan hátt ákvörðun forsetans. Við hefðum jafnt reimað á okkur skóna þótt hugur hans hefði staðið til lengri Bessastaðavistar. Það var hressandi að ganga með- fram sjónum og horfa yfir voginn að nefndu forsetasetri. Við vorum greinlega ekki þau einu sem ákváðu að byrja nýja árið með þessum hætti. Fjöldi fólks var á göngustígnum. Frostið beit aðeins eins og vera ber fyrsta dag janúarmánaðar. Innra með okkur vitum við að hver dagur lengist um hænufet. Þótt heitið hafi ekki verið formlegt höfum við staðið við daglega göngutúra það sem af er vikunni. Hvort við höldum út er svo önnur saga. Það er best að lofa engu. Þetta verður varla verra hjá mér en ágætum starfsbróður sem lengi hefur glímt við níkótíndjöfulinn. Hann hættir að reglulega að reykja, oft á viljastyrknum einum en í öðrum til- fellum með hjálpartækjum. Stundum eru það nikótínstautar sem koma eiga í stað sígarettunnar. Þá tottar hann af samviskusemi um hríð þar til hann fellur, eins og getur komið fyrir bestu menn. Þá leitar hann aftur út á svalir og hímir þar uns hann ákveður bind- indi á ný. Á liðinni aðventu var splæst í fínni staut en áður. Sá var í sígarettu- líki og þeirrar náttúru að appelsínu- gult ljós kviknaði á enda hans í hvert sinn sem sogið var. Flott græja. Appelsínugula ljósið var sem blikk- ljós fyrsta daginn. Reykleysið gekk að óskum. Í þessum efnum verða menn hins vegar að láta hverjum degi nægja sína þjáningu og kannski var hún óbærileg því ljósið skæra logaði ekki næsta dag. Svalavist var óhjákvæmi- leg á ný, óháð veðri. Kannski fer eins með göngutúrana okkar. Það getur verið að við teljum okkur trú um, þegar lengra kemur fram á veturinn, að það sé of kalt, of mikið rok, of mikil rigning eða of mikil hálka. En er á meðan er og gildir það jafnt um heilsubótargöngur og tóbaksbindindi. Bregðist hin góðu áform má alltaf reyna aftur – og aftur. Efnum heitin – aftur Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL M Te ik ni ng /H ar i Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 49 77 9 frá kr. 89.900 með gistingu í 14 nætur. Einstakt tækifæri! 17. janúarKanarí Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 17. janúar í 14 nætur á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábær sértilboð á hinum vinsælu íbúðarhótelum Parque Sol og Los Tilos. Einnig Eugenia Victiora hótelinu með öllu inniföldu ásamt öðrum hótelum. Ekki missa af þessu einstaka tilboði. Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði. Verð getur hækkað án fyrirvara! Kr. 89.900 – Parque Sol Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með 2 svefnherbergjum á Parque Sol í 14 nætur. Verð m.v. 4 fullorðna í íbúð með 2 svefnherbergjum kr. 96.800 á mann. Verð m.v. 2 fullorðna í íbúð með 2 svefnherbergjum kr. 124.900 á mann. Kr. 104.900 – Los Tilos Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í 14 nætur. Kr. 164.900 – Eugenia Victoria með allt innifalið Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi á Eugenia Victoria í 14 nætur. Verð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 189.000. Þetta eru asnar, Eiður! Hverskonar bjálfagangur er það þegar fjölmiðlar (Stöð tvö til dæmis) tala um það sem „alvörufrétt“ hvort Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík muni bjóða sig fram til embættis forseta Íslands? Fréttastofan hefur greinilega ekki mikið álit á okkur sem horfum á fréttirnar. Sendiherrann fyrrverandi Eiður Guðnason kann illa að meta matreiðslu á órum og bulli í fréttalíki. Þið eruð báðar æði Mér fannst leikkonan æðisleg. Hún er mjög falleg svo hún náði mér nokkuð vel. Þokkadísin Hildur Líf brást við Skaupinu af mun meira æðruleysi en margur sjálfstæðismaðurinn og var barasta hress með að hafa fengið að vera með og svona líka vel leikin af Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur. Ætliði aldrei að gleyma? Því miður sáum við ekki fyrir fjármála- hrunið og því eru einhverjar staðhæfingar okkar rangar. Ríkissjónvarpið gerði Tryggva Þór Herberts- syni, alþingismanni, þann óleik að sýna heimildarmyndina Inside Job um banka- hrunið á heimsvísu. Þar var skýrslubróðir hans, Frederic Mishkin, tekinn á beinið en þeir Tryggvi eiga vafasaman heiður af skýrslu um sterka stöðu íslenska bankakerfisins. Blaðamenn og textakonur Starfsheiti þeirra sem færast til hefur ekki verið ákveðið en ætli það verði ekki texta- höfundur eða eitthvað slíkt. Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri, útskýrir brotthvarf 40 prósenta blaðakvenna af ritstjórn Fréttablaðsins yfir á auglýsinga- deild. Textahöfundar eru lausir undan siðareglum blaðsins og geta því óhikað skrifað kynningartexta í aukablöð án þess að samviskan þvælist fyrir þei. Varstu ekki fullfær um það sjálfur? Nú er ljóst að þessi veiðiferð var einungis til að skaða einstaklinga og eyða þeirra fé. Fjárfestirinn Jón Ásgeir Jóhannesson bendir á að mál slitastjórnar Glitnis gegn honum og fleirum hafi verið tilgangslaus veiðiferð og sér fyrir sér skaðabætur. MYND:1944 Jón Ásgeir Ertu að bjóða fram aðstoð? Þessi ríkisstjórn verður að fara að ráða einhverja til að aðstoða sig í samskiptum við erlenda fjölmiðla. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Framsóknarflokksins, fyllist skelf- ingu þegar ráðherrar tjá sig á útlensku. Nú síðast fékk hann hroll þegar glænýr fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir, talaði við Bloomberg. Ha? Með ráðningunni eru þeir fulltrúar sveitarfélaga við Eyjafjörð sem mynda stjórn AFE að gera lítið úr störfum sérstaks saksóknara og ekki síður úr ábyrgðinni sem við verðum að horfast í augu við að menn beri vegna bankahrunsins. Andrea Hjálmsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, er gáttuð á ráðningu Þorvaldar Lúðvíks Sigurjónssonar, fyrr- verandi forstjóra Saga Capital, í starf framkvæmdastjóra Atvinnuþróunar- félags Eyjafjarðar.  VIkAn SEm VAR 28 viðhorf Helgin 6.-8. janúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.