Fréttatíminn - 06.01.2012, Side 50
Fyrir tveimur árum kynnti leikstjórinn Guy
Ritchie til sögunnar Sherlock Holmes, sem
hafði verið uppfærður, poppaður upp og Ro-
bert Downey Jr. lék með heilmiklum trúðs-
látum og fjöri. Jude Law skilaði svo traust-
um Watson sem var umtalsvert öflugri en sá
sem Arthur Conan Doyle bauð upp á í sögum
sínum um Holmes. Nú, tveimur árum síðar,
er framhaldsmyndin A Game of Shadows
komin þar sem Downey og Law endurtaka
rullur sínar og Ritchie er enn við stjórnvöl-
inn. Ekkert er verið að eyða púðri í að dýpka
persónurnar eða vinna frekar með þær held-
ur demba félagarnir sér beint í hasarinn og í
raun er í engu yfir því að kvarta. Myndin er
ríkulega skreytt stílfærðum slagsmálum og
bardagasenum og Downey fer með gaman-
mál og heldur fjörinu uppi þess á milli. Og
þar með er það upptalið.
Nokkrir nýliðar mæta til leiks að þessu
sinni. Stephen Fry skemmtir bæði sér og
áhorfendum í hlutverki Mycroft Holmes,
stóra bróður Sherlocks. Sú undurfagra og
frábæra leikkona Noomi Rapace lífgar einnig
upp á samkvæmið en fær því miður úr allt of
litlu að moða í hálf tilgangslausu hlutverki sí-
gaunaspákonu. Þetta er auðvitað alger synd
og sóun á hæfileikum Noomi en breytir engu
um að hún er svo töff að maður missir úr slag
í hvert skipti sem hún birtist.
Eins og allar almennilegar hetjur á Hol-
mes sinn erkifjanda og eins og allir sem eru
sæmilega skólaðir í Holmes-fræðunum vita
heitir sá James Moriarty og er, ef eitthvað
er, ennþá klárari en Sherlock. Fjarvera Mori-
arty í fyrstu myndinni var nokkuð áberandi
en hann bætir heldur betur upp fyrir það
núna. Jared Harris, sonur hinnar goðsagnar-
kenndu fyllibyttu og leikara Richard Harr-
is, leikur Moriarty af ískaldri yfirvegun og
setur sterkan og bráðskemmtilegan svip á
myndina.
A Game of Shadows er kannski ekki mjög
djúp en skemmtileg er hún og stendur því
fyllilega fyrir sínu og maður tæki þeim Hol-
mes og Watson nú alveg fagnandi ef þeir
myndu banka upp á í þriðja sinn en Ritchie
skilur auðvitað allt eftir galopið fyrir fram-
hald. Þórarinn Þórarinsson
38 bíó Helgin 6.-8. janúar 2012
S káldsagan Tinker, Tailor, Soldier, Spy kom út árið 1974 og var fyrsta bókin í þríleik sem kenndur hefur verið við
Karla, sovéskan andstæðing Smileys. Í kjöl-
farið komu The Honourable Schoolboy árið
1977 og Smiley’s People 1979.
BBC gerði sjónvarpsþáttaraðir eftir Tin-
ker, Tailor, Soldier, Spy og Smiley’s People
sem sýndar voru árin 1979 og 1981. Þar lék
Alec Guinness Smiley og gerði njósnarann
að sínum þannig að það þótti nokkuð djarft
að kvikmynda Tinker, Tailor, Soldier, Spy
nú, jafnvel þótt langt sé um liðið frá því
Guinness lék Smiley. En Alec Guinness er
að sjálfsögðu leikari sem varpar löngum
skugga en eins og viðbrögð gagnrýnenda
ytra hafa sýnt er Gary Oldman leikari sem
stendur ekki í skugga neins. Hann þykir
frábær í hlutverki Smileys og myndin hefur
víðast hvar fengið mjög lofsamlega dóma.
David John Moore Cornwell, sem tók upp
höfundarnafnið John le Carré, stendur á átt-
ræðu. Hann starfaði fyrir bresku leyniþjón-
usturnar MI5 og MI6 þegar hann skrifaði
sínar fyrstu bækur en í kjölfar vinsælda
Njósnarans sem kom inn úr kuldanum sagði
hann skilið við MI6 og helgaði sig alfarið
ritstörfum þar sem hann hélt samt áfram að
sækja í reynslu sína hjá leyniþjónustunni.
Sögur le Carré hafa yfir sér raunsæislegan
blæ og Smiley er eins ólíkur kollega sínum
James Bond, sem einnig er í leyniþjónustu
hennar hátignar, og hugsast getur. Smiley
er rólyndismaður sem á ótrúa eiginkonu og
notar fyrst og fremst höfuðið í viðureignum
sínum við njósnara og svikara. Það fer því lít-
ið fyrir byssum og flottum græjum í sögum
le Carré þar sem tefldar eru vitsmunalegar
refskákir.
Sænski leikstórinn Tomas Alfredson, sem
kom sér á heimskortið með hinni stórgóðu
vampírumynd Låt den rätte komma in (Let
the Right One In), stillir upp firnasterkum
hópi leikara í Tinker, Tailor, Soldier, Spy.
Gary Oldman fer þar fremstur í flokki, John
Hurt leikur yfirmann hans hjá leyniþjónust-
unni þar sem þeir Colin Firth, Ciarán Hinds,
Mark Strong og Benedict Cumberbatch láta
einnig til sín taka.
Eftir að aðgerð leyniþjónustunnar í Bret-
landi misheppnast, útsendari hennar er
skotinn og þá handsamaður af sovéskum
njósnurum eru Smiley og yfirmaður hans
Control þvingaðir á eftirlaun. Smiley er síðan
kippt aftur inn í hráskinnaleik kalda stríðs-
ins þegar grunur vaknar um að njósnari
Rússa gangi laus innan MI6. Control hafði
sigtað út nokkra starfsmenn sem hann taldi
líklegasta svikara og gefið þeim dulnefnin
Tinker, Tailor, Soldier, Poor Man auk þess
sem Smiley sjálfur er ekki laus við að vera
grunaður og er nefndur Beggarman. Og svo
hefst leikurinn þar sem Smiley reynir með
hægð og útsjónarsemi að þrengja hringinn í
kringum svikarann sem fóðrar Sovétmenn á
upplýsingum úr innsta hring MI6.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.7, Rotten Tomatoes: 85%,
Metacritic: 86%.
FrumSýnd Tinker Tailor Soldier Spy
Breski rithöfundurinn John le Carré aflaði sér heimsfræðar árið 1963 með njósnasögu sinni
Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum. Hann festi sig í framhaldinu tryggilega í sessi sem höfund-
ur njósnasagna sem flestar eiga sér stað í kalda stríðinu. Breski leyniþjónustumaðurinn George
Smiley er þekktasta sögupersóna hans og á sviðið í hinni stjörnum prýddu Tinker, Tailor, Soldier,
Spy þar sem Gary Oldman túlkar njósnarann hægláta.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Kaldastríðsrefskák Smileys
FrumSýnd
Bíómyndin My Week with Marilyn byggir á dag-
bókum Colins nokkurs Clark sem þokkagyðjan
Marilyn Monroe hallaði sér að á Englandi árið
1956 þegar stirð samvinna hennar við leik-
listargoðsögnina Sir Laurence Olivier gekk nærri
henni við gerð myndarinnar The Prince and the
Showgirl. Monroe og Olivier léku aðalhlutverkin
í myndinni auk þess sem Olivier leikstýrði en
óstundvísi og sérþarfir Monroe fóru ósegjanlega
í taugarnar á leikstjóranum sem varð sífellt skap-
styggari eftir því sem á leið.
Clark var þá nýútskrifaður frá Oxford og fékk
starf sem aðstoðarmaður við gerð myndarinnar.
Monroe leitaði til hans í einsemd sinni og óöryggi
og sveinninn ungi var vitaskuld allur af vilja gerður
til þess að sinna þessari fegurstu og frægustu
kvikmyndastjörnu heims.
Myndin er tilnefnd til 3 Golden Globe-verðlauna,
sem besta mynd ársins í flokki gaman- og söng-
mynda auk þess sem Michelle Williams og
Kenneth Branagh eru tilnefnd sem bestu leikarar
ársins en þau leika Monroe og Olivier.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.5, Rotten Tomatoes: 83%,
Metacritic: 65%
Smiley er
eins ólíkur
kollega sín-
um James
Bond, sem
einnig er í
leyniþjón-
ustu hennar
hátignar,
og hugsast
getur.
Bíódómur Sherlock holmeS: a Game oF ShadowS
Sprellfjörug refskák snillinga
Vika með kynbombu
Gary Oldman þykir sýna lágstemmdan stórleik í hlutverki George Smiley í Tinker, Tailor, Soldier, Spy sem gerð er eftir sam-
nefndri skáldsögu John le Carré sem þykir enn þann dag í dag ein besta njósnasaga sem skrifuð hefur verið.
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:
mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugardaga 11.00-14.00
ÚTSALA
ALLT AÐ 60 %
AFSLÁTTUR
SOO.DK
BARNAFÖTIN
SELD MEÐ 40%N
Ú
E
R
B
A
R
A
H
Æ
G
T
A
Ð
G
ER
A
G
Ó
Ð
K
A
U
P
Millenium-óvissan
Þótt Sony hafi fullyrt að The Girl Who
Played With Fire, framhaldið af The Girl
with the Dragon Tattoo, verði gert og
að handritsvinna sé í fullum gangi, ríkir
enn óvissa um hvort David Fincher
muni halda áfram með verkefnið. Hann
hefur að vísu sjálfur sagst vilja taka
næstu tvær myndir í einum rykk. Sony
hefur hins vegar ekki enn staðfest að
Fincher muni leikstýra næstu mynd og
þykir þessi þögn til marks um að enn
sá með öllu óráðið hvort Fincher muni
klára dæmið.
Áframhaldandi yfir-
skilvitlegar ógnir
Hin hræódýra hryllingsmynd Paranormal
Activity sló óvænt í gegn árið 2009 og
var þeim vinsældum umsvifalaust fylgt
eftir með Paranormal Activity 2 ári síðar.
Sú mynd halaði inn nógu mikið fé til þess
að full ástæða þótti til þess að rusla upp
þriðju myndinni í fyrra. Sú mynd er að
vísu enn ókomin til Íslands en þar sem
myndirnar þrjár hafa skilað 300 milljónum
dollara á heimsvísu hefur verið ákveðið að
gera fjórðu myndina. Enda varla ástæða
til þess að slátra þessari gullgæs á meðan
hún verpir.
Moriarty sparar hvorki sprengiefni né skotfæri í tilraunum
sínum til þess að koma Holmes, Watson og spákonunni fögru
fyrir kattarnef.