Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 58
 Þórunn Erna ClausEn FEr mEð tvö hlutvErk í GullEyjunni Íslenski úraframleiðandinn JS Watch co. Reykjavik stendur fyrir uppoði á tveimur úrum skreyttum verkum eftir listamennina Erró og Eggert Pétursson. Hugmyndin að uppboðinu kviknaði hjá JS Watch árið 2010 til þess að afla fjár fyrir Kraft, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Úraframleiðandinn fékk listamennina til liðs við sig og hvor þeirra um sig hefur skapað einstakt listaverk úr úrunum. „Ég var nú bara beðinn um þetta og það var einhvern veginn svo sjálfsagt að verða við þessu enda er Kraftur mikilvægt félag þar sem mikilvæg starfsemi fer fram,“ segir Eggert. „Mér fannst þetta líka spennandi og gaman að fá tækifæri til að gera eitthvað óvenjulegt.“ Steindepla prýðir skífu úrsins en Eggert málaði einnig öskjuna utan um úrið og segja má að saman myndi kassinn og úrið eitt verk. Á öskjunni sést stein- deplan innan um ljónslappa og smjörlauf, líka kallað grasvíðir. „Ég hef undanfarin ár mikið málað plöntur sem vaxa í snjódældum upp til fjalla. Snjórinn skýlir þar viðkvæmum gróðrin- um yfir veturinn. Plönturnar sem eru á öskjunni vaxa í snjódældum.“ Skífa Errós er með afriti af málverkinu Faces- cape, sem hann málaði árið 1992, en þar ber mest á aukapersónum í amerískum teikni- myndasögum. Erró vann árið 1999 hringlaga mynd upp úr verkinu og sú mynd prýðir skífuna en sjálft Facescape málverkið er á öskjunni. Uppboðið fer fram á vefjunum www.gilbert.is og www.jswatch.com/auction og stendur til 20. janúar. Sem stendur hafa 725.000 krónur verið boðnar í úr Errós og 555.000 krónur í úr Egg- erts.  kraFtur styrktur mEð handmáluðum úrum Ofurhetjur og fögur blóm í takt við tímann Smekkfullt var á árlegu nýársteiti Gullu, sem kennd er við MáMíMó, á Hótel Borg. Meðal gesta voru Eiður Smári Guðjohnsen og Ragnhildur Sveinsdóttir eiginkona hans. Knatt- spyrnumaðurinn skartaði forláta rauðum flauelssmóking sem tryggði honum titilinn best klæddi maður kvöldsins. Harpa Arnardóttir leikkona var valin best klædda konan, en hún var elegant í bláum ermalausum kjól. Jón Ólafsson vatnskóngur var í miklu stuði og lýsti í skálarræðu yfir forsetaframboði, sem hann reyndar dró til baka daginn eftir. Á Borginni voru líka Friðrik Ómar söngv- ari og Draupnir Rúnar Draupnisson Júróvisjónsérfræðingur, Birkir Krist- insson fyrrverandi knattspyrnumaður og Ragnhildur Gísladóttir söngkona sem einmitt tók lagið með hljómsveit kvöldsins. Eiður Smári best klæddur á Borginni Hífð inn á topp 10 Verkfræðingurinn og rithöf- undurinn Yrsa Sigurðardóttir er ókrýndur sigurvegari síðasta árs sé litið til bóksölu. Nýjasta bók hennar Brakið var sú söluhæsta á árinu og jafnframt söluhæsta bókin allar fjórar vikur desembermánuðar. Bókin Ég man þig, sem kom út í nóvem- ber 2010, var síðan í 10. sæti yfir söluhæstu bækur ársins og tók mikinn kipp í vikunni milli jóla og nýárs. Það hjálpar líklega að bókin var á sérstöku tilboðsverði alla síðustu viku í bókabúðum Eymundsson – með 30 prósenta afslætti. Leikkonan Þórunn Erna Clausen bregður sér í hlut- verk sjóræningjakonu í Gulleyjunni sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í í sam- starfi við Borgarleikhúsið lok mánaðarins. Synir hennar bíða spenntir eftir því að sjá mömmu á sviði með sjóræn- ingjahatt á höfði. Sjóræningjamamma á sjóræningjaheimili s trákarnir eru eiginlega bara búnir að breytast í litla sjóræningja á öllu þessu. Við erum búin að hlusta svo mikið saman á tónlistina hans Þorvaldar Bjarna úr sýningunni. Hún er mjög skemmtileg og heimili mitt er eiginlega sjóræningjaheimili þessa dagana og ríkir mikil gleði með það,“ segir Þórunn Erna. „Sonur minn, sem er sex ára, neitaði að fara í jólaklippingu vegna þess að hann vildi hafa sítt hár eins og Jack Sparrow og ætlaði svo að lita það svart. Hann varð líka mjög glaður þegar hann missti báðar framtennurnar fyrir jólin því þá varð hann ennþá líkari sjóræningja. Þeir fengu líka sjóræningjaskip í jólagjöf,“ segir Þórunn sem stefnir að því að koma strákunum til Akureyrar að sjá sýninguna þegar þar að kemur. „Ég ætla nú að reyna að græja það að þeir mæti hér á einhverja sýningu og þá örugglega bara í sjóræningjabúningi. Mér finnst það nú alveg tilvalið að þeir komi í búningum sem við eiga og að leikhúsinu verði bara breytt í eitt allsherjar sjóræningjabæli.“ Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson skrifuðu handritið saman upp úr sígildri sjóræningja- sögu Roberts Louis Stevenson en Sigurður er einnig leikstjóri. Þórunn Erna leikur tvö hlutverk í sýningunni; móður hins unga Jim Hawkins sem lendir í slagtogi með sjóræningjum og svo Svartleggju. „Hún talar nú ekki mikið hún Svart- leggja mín en hrækir þeim mun meira,“ segir Þórunn aðspurð hvort hún láti öllum illum sjóræningjalát- um á sviðinu. Andi sjóræningja á borð við Langa Jón Silfra og Jack Sparrow úr Pirates of the Carribean hefur svifið nokkuð lengi yfir vötnum á heimili Þórunnar þótt það sé fyrst núna sem heimilishaldið er beinlín- is í hershöndum ribbalda hafsins. „Ég hélt sjóræningjaafmæli árið 2010 þegar ég bakaði sjóræningja- skip og gulleyju í strákaafmæli. Það er síðan bara skemmtilegt tilviljun að lífið leiði mann norður til að leika í Gulleyjunni,“ segir Þórunn sem leggur mikinn metnað í kökuskreytingar fyrir syni sína. „Ég er hvorki mikill bakari eða kokkur í mér en finnst mjög gaman að gera hluti í höndunum og þetta árið varð sjóræningjaþema fyrir valinu. Þetta er svo auðvelt. Ég er ekkert góð í þessu þannig að þetta er eitthvað sem allir geta gert. Það er hægt að nota bara hvaða súkkulaðikökuuppskrift sem er. Ég persónulega er svo upptekin móðir að mér finnst rosalega gott að grípa í Betty Crocker og eyði meiri tíma í að skreyta kökurnar þótt það sé nú alls ekki mjög tímafrekt. Þegar maður tekur botnana úr kökuform- unum sker maður þá bara í skips- form og raðar þessu saman. Svo setur maður bara súkkulaðikrem á, leggur þilfarið með súkkulaði- fingrum og gerir möstrin með grillpinnum. Síðan prentaði ég út fána sem ég fann á Netinu. Álpappír á bakka er sjórinn og svo er skreytt með hlaup-hákörlum og beinum. Svo setti ég bara Playmo-karla hér og þar.“ Og svo er alls staðar hægt að fá svona sjóræningjadiska og sjóræn- ingjaservíettur. Þannig að það er mjög auðvelt að búa til sjóræningja- afmæli þessa dagana.“ toti@frettatiminn.is Þórunn Erna í ham í hlutverki Svartleggju sem á spennta stráka heima í Reykjavík sem bíða eftir því að sjá sjóræningja- mömmu sína á sviði. Sjóræningjskipið sem Þórunn Erna snaraði fram með smá aðstoð frá Betty Crocker: „Hún talar nú ekki mikið hún Svartleggja mín en hrækir þeim mun meira. Frístundakor t Tónheimar - Síðumúla 8 - tonheimar@tonheimar.is Ástvaldur Traustason skólastjóri Tónheima Upplýsingar og skráning á tonheimar.is og í síma 846 8888 Láttu drauminn rætast og lærðu að spila þín uppáhaldslög eftir eyranu á píanó, gítar eða ukulele. Allir aldurshópar, byrjendur sem lengra komnir. Tónlistarnám fyrir þig blús djass sönglögpopp Eggert Pétursson hefur sérhæft sig í að mála blóm og kom einu slíku fyrir á skífu úrs sem var mikið nákvæmnisverk og meira mál en hann ætlaði í upphafi. Fagurlega skreytt úr Errós og Eggerts í öskjum sínum. Þjóðin beið spennt yfir Ólafi Ragnari – eða ekki Ekki er hægt að segja að þjóðin hafi beðið með öndina í háls- inum eftir sextánda nýársávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar á Ríkisútvarpinu á nýársdag því aðeins horfði rúmt 21 prósent þjóðarinnar á Ólaf Ragnar tilkynna, á loðinn hátt þó, að hann hyggðist ekki bjóða sig fram á nýjan leik. Ólafur Ragnar var þó vinsælli en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra því innan við tíu prósent þjóðarinnar voru við skjáinn á gaml- árskvöld þegar landsfrúin flutti innblásið ávarp sitt til þjóðarinnar. 46 dægurmál Helgin 6.-8. janúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.