Fréttatíminn - 17.02.2012, Qupperneq 4
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Fyrrum undirmálsfiskur í návígi
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Breytingar, él eða snjókoma víða um
landið framan af degi, en kólnar síðan og
léttir til um sunnanvert landið.
HöfuðBorgarsvæðið: Éljagangur, en snýst í
n-átt og lÉttir til með harðandi frosti.
nokkurt frost um land allt og víða
Bjartviðri, en sums staðar vindBelg-
ingur.
HöfuðBorgarsvæðið: lÉttskýjað og
frost um og yfir 5 stig.
dregur úr frostinu og Hlánar vestast um kvöld-
ið. smá él eða mugga annars staðar en austan- og
suðaustanlands.
HöfuðBorgarsvæðið: Él eða lítilsháttar snjókoma
annað slagið. hiti um eða rÉtt undir frostmarki.
Skammvinnt kuldakast
Kuldapollur úr norðri nær suður yfir Ísland
um helgina og gerir dálítið frost um land
allt. stendur ekki lengi, því á sunnudag
hækkar hitinn. í dag verða víða él eða
snjómugga. hríðarveður og færð gæti
spillst norðan- og norðaustanlands í kvöld.
á morgun verður að mestu úrkomulaust,
en strekkingsvindur víða og með
skafrenningi þar sem nýr snjór
liggur yfir. Á sunnudag nálgast
heldur mildara loft úr suðvestri
og má gera ráð fyrir éljum
vestantil og austur með
norðurströndinni.
-1
-2 -3 -1
0 -6
-9 -7
-7
-7
0
-1 -2
-5
-2
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Michelsen_255x50_C_0511.indd 1 05.05.11 14:25
árangurslítil barátta
gegn bílakirkjugarði
lítil breyting hefur orðið á fjölda bíla að
garðstöðum í Ögurvík við ísafjarðardjúp,
segir Bæjarins besta. á fundi heilbrigðis-
nefndar Vestfjarða var greint frá talningu
bíla, í haust og um miðjan janúar. í haust
voru taldir 423 bílar en þeir voru 422 bílar
í janúar. Þar segir jafnframt: „mikið magn
brotajárns og flokkaðs úrgangs hefur verið
flutt frá Garðstöðum á þeim tíma sem
samningar við súðavíkurhrepp hafa verið
gildi. Þess sér þó engin merki í umfangi
brotajárns á svæðinu og því má álykta að
álíka magn sé flutt inn á svæðið og fer út af
því.“ árið 2006 var gert samkomulag um
að fjölda bíla skyldi fækkað í 60. - jh
guðrún sviðsstjóri á
sviði sem lagt var niður
samkvæmt ráðningasamningi er upp-
sagnafrestur guðrúnar Pálsdóttur, sem
steig úr bæjarstjórastólnum í kópavogi
fyrr í vikunni, tólf mánuðir. guðrún hefur
unnið hjá kópavogsbæ frá ársbyrjun 1986
og tekur aftur við starfi sviðsstjóra tóm-
stunda- og menningarmála; stöðu sem
hafði verið lögð niður í hagræðingarskyni,
en er nú endurvakin að nýju. samkvæmt
upplýsingum hefur ekki verið gengið frá
starfslokasamningi við guðrúnu eða nýjum
kjörum, svo ekki er ljóst hvort hún verði
árið á bæjarstjóralaunum eins og ármann
Kr. Ólafsson Sjálfstæðisflokki sem er tekinn
við stjórnartaumunum í bænum. - gag
suðureyri og ísafjarðarbær eru
meðal þeirra sem lagt er til að
fái styrk úr framkvæmdasjóði
ferðamanna til bætts aðgengis
ferðamanna að lóninu svokallaða
við suðueyri. styrkurinn nemur
1.500.000 krónum og er ætlaður
til að standa undir hönnun og efnis-
kostnaði við bryggju, grjótvarnar-
garði, uppfyllingu og stíg við lónið.
Undirmálsfiski var sleppt í lónið fyrir um 15 árum og hann fóðraður til að byrja
með. fiskurinn kemst í æti í sjó í gegn um rör sem liggur undir þjóðveginn, en
hefur alltaf kosið að snúa heim aftur í hlýjan faðm lónsins þar sem ferðamenn
geta virt hann fyrir sér í návígi. Fiskarnir eru það gæfir að þeir éta úr lófum gesta.
Sá hængur hefur þó verið á frá upphafi að aðgengi að lóninu hefur ekki verið á
allra færi. áætluð verklok eru í ágúst. -jh/Tölvumynd Tæknideild Ísafjarðarbæjar
H runið hefur ekki komið í veg fyrir að virði bresku matvöru-verslanakeðjunnar Iceland hefur
aukist um sextíu og sjö milljónir punda
eða þrettán milljarða frá því að síðustu
viðskipti með bréf í
félaginu fóru fram
fyrir þremur og
hálfu ári – nokkr-
um mánuðum fyrir
hrun. Ef gengis-
munur er tekinn
með í reikninginn
þá nemur hækk-
unin sjötíu og
fimm milljörðum
króna. Í ágúst 2008
seldi Fons, í eigu
Pálma Haralds-
sonar, tuttugu og
níu prósenta hlut í
Iceland fyrir fjögur
hundruð og þrjátíu
milljónir punda
eða sextíu og fimm
milljarða miðað við
gengi þess tíma.
Slitastjórnir
Landsbankans og
Glitnis hafa náð
samkomulagi við
Malcolm Walker,
forstjóra Iceland,
um að hann kaupi sjötíu og sjö prósenta
hlut þeirra í Iceland-matvöruversl-
anakeðjunni á 1,2 milljarð punda eða
rétt um 231 milljarð íslenskra króna.
Heilarverðmæti Iceland í samningnum
er 1,55 milljarður punda eða rétt um þrjú
hundruð milljarða íslenskra króna. Sam-
kvæmt frétt í breska blaðinu Daily Te-
legraph fjármagnar Walker kaupin með
lánum frá Deutsche Bank, fjárfestinga-
sjóðum og Landsbankanum. Slitastjórn
Landsbankans á sextíu og sjö prósent í
verslunarkeðjunni en slitastjórn Glitnis
um tíu prósent hlut. Fyrir áttu Walker og
samstarfsfélagar hans tuttugu og þrjú í
verslanakeðjunni.
Þetta hljóta að teljast góðar fréttir
fyrir slitastjórnina og íslensku þjóðina
því hluturinn í Iceland hefur verið talinn
verðmætasta eign hennar og mikil-
vægur hluti af endurgreiðslu Icesave.
Íslenskir fjárfestar keyptu félagið undir
lok árs 2004. Þá hét það Big Food Group
og samanstóð af Iceland og Booker.
Stærstu fjárfestarnir í því verkefni voru
Baugur og Fons.
Eins og fram hefur komið í fréttum
seldu Baugur og Fons hluti sína í Iceland
á árinu 2008 til bæði Landsbankans og
Glitnis. Margar fréttir hafa verið fluttar
af því yfirverði sem talið var að bank-
arnir hefðu borgað fyrir bréfin í Iceland
á þeim tíma. Baugur seldi átta prósent
hlut til Landsbankans í mars 2008 fyrir
sextíu milljónir punda. Miðað við það
verð var heildarverðmæti Iceland þá
750 milljónir punda – helmingurinn af
kaupverði Malcolms Walker nú. Mánuði
seinna seldi Baugur Landsbankanum og
Glitni hvorum um sig 7,5 prósent hlut og
greiddi hvor banki 100 milljónir punda.
Miðað við það verð var heildarverðmæt-
ið 1,33 milljarðar punda eða sextán pró-
sent lægra en það er í dag. Ekki má síð-
an gleyma að slitastjórn Landsbankans
fékk níutíu milljónir punda í arðgreiðslu
á síðasta ári frá Iceland eða rétt rúmlega
sautján milljarða íslenskra króna.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
viðskipti iceland Foods í Bretlandi
Virði Iceland aukist um
13 milljarða frá hruni
tilboð malcolms Walker í verslunarkeðjuna iceland foods sýnir að virði keðjunnar er töluvert
meira en það var í síðustu viðskiptum með hluti í því fyrir hrun. Þá seldi fons, félag Pálma har-
aldssonar, 29 prósent hlut til styttu, tveimur mánuðum áður en allt hrundi haustið 2008.
Það er óhætt að segja að kaup
Baugs, Fons og fleiri aðila á
Big food group árið 2004
fyrir þrjú hundruð milljónir
punda hafi verið ein bestu
viðskipti íslandssögunnar.
innan Big food group voru
iceland foods og Booker.
Fyrirtækjunum var fljótlega
skipt upp í tvö félög og hafa
þau vaxið og dafnað. eins og
áður segir miðar nýsamþykkt
tilboð malcolms Walker við að
verðmæti iceland-keðjunnar
sé 1,55 milljarður punda.
Booker, sem er skráð í kaup-
höllina í london, er metið þar
á 1,1 milljarð punda. ef tekið er
með í reikninginn sex hundruð
milljóna punda arðgreiðslur til
eigenda félaganna á þessum
tíma sem og sölu á fasteignum
út úr Big food group í byrjun
fyrir 100 milljónir punda má
sjá að fjárfestingin hefur
rúmlega tífaldast að verðmæti
– úr þrjú hundruð milljónum
punda í 3,3 milljarða. -óhþ
Tíföldun á verðmæti á sjö árum
malcolm Walker
eignaðist tuttugu og
þrjú prósent í iceland
án þess að leggja út
krónu. hlutinn fékk
hann fyrir vinnu-
framlag. Ljósmynd/
Myndasafn Morgun-
blaðsins
4 fréttir helgin 17.-19. febrúar 2012