Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 27
www.kexsmidjan.is
Uppskrift að góðum degi:
Taktu Íslandskex upp úr pakkanum, smyrðu með íslensku smjöri
og leggðu ofan á ljúengan íslenskan ost, ekki skemmir að setja
dreitil af sultu á toppinn. Einnig er íslenskt grænmeti góður
kostur, sem gerir það ögn ferskara í skammdeginu.
Íslandskex er bragðgott kex sem hentar í öll mál fyrir þig.
Goðafoss er meðal stærstu fossa á
Íslandi og þykir jafnframt einn sá
fallegasti. Hann er formfagur og
einkar myndrænn, 12 metra hár og
og skartar sínu fegursta allan ársins
hring. Klettar á skeifulaga foss-
brúninni greina Goðafoss í tvo
meginfossa sem steypast fram af
hraunhellunni skáhalt á móti hvor
öðrum. Auk þeirra eru nokkrir
smærri fossar eftir vatnsmagni
jótsins. Einn þeirra þrengir sér á
milli meginfossanna tveggja og
gefur fossinum sinn sterka svip.
Íslensk náttúruperla
í alfaraleið á Norðurlandi.
fullt af orku, ekki ásökun á hendur
öðrum um bága stöðu. Þetta hljóm-
ar kanski of einfalt og létt en sann-
leikurinn og ábyrgð á okkur sjálfum
er nákvæmlega málið.
Forréttindi að vinna við
áhugamálið
Ragnhildur er afar sátt þegar hún
horfir yfir farinn veg og segist
þakklát fyrir að hafa fengið að vinna
að sinni ástríðu alla tíð.
„Það virkar kanski eins og for-
réttindi að vinna við eitthvað sem
manni finnst svona skemmtilegt en
eins og ég segi þá gæti það verið
þannig hjá öllum. Ég hef fengið
að kynnast fjölbreytileika lífsins
sem er óendanlega frábært. Hver
tími hefur sinn sjarma og auðvitað
óþægindi með en ég hef líka verið
farsæl og þakka fyrir alla reynslu.
Mér finnst mjög skemmtilegt að
vinna við kvikmyndagerð af öllum
toga og hef stundum fengið að njóta
mín þar eins og með Stuðmönnum,
og Guðnýju Halldórs sem er ennþá
toppurinn en til dæmis tíminn með
Stuðmönnum var alveg ótrúlega
skemmtilegur og hraður. Sú orka
sem skapast þegar sá hópur kemur
saman er engu lík og það er heiður
að hafa fengið að vinna með þessu
fólki. Þvílíkir hugmyndasmiðir og
gáfnaljós! Við hittumst um daginn
út af afmæli Valgeirs Guðjónsson-
ar, eftir nokkurra ára hlé, og það
var eins og við hefðum síðast hist
í gær.“
Þó að Ragnhildur sé fjölhæf og
liðtæk á ýmsum sviðum er tónlistin
alltaf í forgangi og hún sér fyrir sér
að þannig verði það áfram.
Tíminn með Stuð-
mönnum var alveg
ótrúlega skemmtilegur
og hraður. Sú orka sem
skapast þegar sá hópur
kemur saman er engu
lík og það er heiður að
hafa fengið að vinna
með þessu fólki. Því-
líkir hugmyndasmiðir og
gáfnaljós! Við hittumst
um daginn út af afmæli
Valgeirs Guðjónssonar,
eftir nokkurra ára hlé,
og það var eins og við
hefðum síðast hist í gær.