Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.02.2012, Page 27

Fréttatíminn - 17.02.2012, Page 27
www.kexsmidjan.is Uppskrift að góðum degi: Taktu Íslandskex upp úr pakkanum, smyrðu með íslensku smjöri og leggðu ofan á ljúengan íslenskan ost, ekki skemmir að setja dreitil af sultu á toppinn. Einnig er íslenskt grænmeti góður kostur, sem gerir það ögn ferskara í skammdeginu. Íslandskex er bragðgott kex sem hentar í öll mál fyrir þig. Goðafoss er meðal stærstu fossa á Íslandi og þykir jafnframt einn sá fallegasti. Hann er formfagur og einkar myndrænn, 12 metra hár og og skartar sínu fegursta allan ársins hring. Klettar á skeifulaga foss- brúninni greina Goðafoss í tvo meginfossa sem steypast fram af hraunhellunni skáhalt á móti hvor öðrum. Auk þeirra eru nokkrir smærri fossar eftir vatnsmagni jótsins. Einn þeirra þrengir sér á milli meginfossanna tveggja og gefur fossinum sinn sterka svip. Íslensk náttúruperla í alfaraleið á Norðurlandi. fullt af orku, ekki ásökun á hendur öðrum um bága stöðu. Þetta hljóm- ar kanski of einfalt og létt en sann- leikurinn og ábyrgð á okkur sjálfum er nákvæmlega málið. Forréttindi að vinna við áhugamálið Ragnhildur er afar sátt þegar hún horfir yfir farinn veg og segist þakklát fyrir að hafa fengið að vinna að sinni ástríðu alla tíð. „Það virkar kanski eins og for- réttindi að vinna við eitthvað sem manni finnst svona skemmtilegt en eins og ég segi þá gæti það verið þannig hjá öllum. Ég hef fengið að kynnast fjölbreytileika lífsins sem er óendanlega frábært. Hver tími hefur sinn sjarma og auðvitað óþægindi með en ég hef líka verið farsæl og þakka fyrir alla reynslu. Mér finnst mjög skemmtilegt að vinna við kvikmyndagerð af öllum toga og hef stundum fengið að njóta mín þar eins og með Stuðmönnum, og Guðnýju Halldórs sem er ennþá toppurinn en til dæmis tíminn með Stuðmönnum var alveg ótrúlega skemmtilegur og hraður. Sú orka sem skapast þegar sá hópur kemur saman er engu lík og það er heiður að hafa fengið að vinna með þessu fólki. Þvílíkir hugmyndasmiðir og gáfnaljós! Við hittumst um daginn út af afmæli Valgeirs Guðjónsson- ar, eftir nokkurra ára hlé, og það var eins og við hefðum síðast hist í gær.“ Þó að Ragnhildur sé fjölhæf og liðtæk á ýmsum sviðum er tónlistin alltaf í forgangi og hún sér fyrir sér að þannig verði það áfram. Tíminn með Stuð- mönnum var alveg ótrúlega skemmtilegur og hraður. Sú orka sem skapast þegar sá hópur kemur saman er engu lík og það er heiður að hafa fengið að vinna með þessu fólki. Því- líkir hugmyndasmiðir og gáfnaljós! Við hittumst um daginn út af afmæli Valgeirs Guðjónssonar, eftir nokkurra ára hlé, og það var eins og við hefðum síðast hist í gær.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.