Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 54
Helgin 17.-19. febrúar 201246 tíska
Skrítið fyrirkomu-
lag tískunnar
Nú er ný afstaðin tískuvikan í New York
þar sem sýndar voru línur fyrir haustið og
veturinn 2012. Mörgum finnst þetta eflaust
skrítið fyrirkomulag þar sem næsti vetur
er ekki efst í okkar huga. En hvað er tíska,
hver er það sem ákveður það sem er í tísku?
Við munum líklegast flestar eftir því hvernig
Meryl Streep útskýrði þetta fyrir Anne
Hathaway í myndinni Devil Wears Prada.
Þar sagði hún að það væri yfirvaldið í tísku-
heiminum sem ákvað að bláa peysan hennar
Önnu væri flott. Einmitt svona er þetta.
Tískuhúsin eru líklega búin að sýna Önnu
Wintour ritstjóra Vogue-línurnar sínar. Hún
hefur samþykkt þær, svo sér almenningur
þær í einhverjum af fjórum tískuvikunum
og þá geta fyrirtæki eins og Zara og H&M
byrjað að hanna sínar eigin línur. Þannig
hafa Anna Wintour og kollegar hennar ekki
bara ákveðið hvernig Karl Lagerfeld á að
hanna heldur líka hvaða flíkur enda í okkar
fataskápum – allavega mínum. Hver er þá
niðurstaðan við spurningunni? Hlustið bara
á Meryl Streep, hún fékk nú eftir allt saman
Óskarstilnefningu fyrir hlutverkið!
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Erna Hrund
Hermanns-
dóttir
5
dagar
dress
Ofurfyrirsætan Kate Moss
virðist vera einn eftirsótt-
asti plötusnúðurinn hjá
tískuhúsunum um þessar
mundir. Allt síðan að hún
þeytti skífum í samkvæmi
tískufyrirtækisins Prada
í síðasta mánuði hefur
síminn ekki stoppað og til-
boðum rignt inn. Hún
hafnar ekki góðum
tilboðum, tekur að
sér góð verkefni
og rukkar fyrir
vinnu sína rúmar
45 milljónir króna
fyrir hálftímann.
Fyrirsæta þeytir skífum
Þriðjudagur
Skór: Gs skór
Leggings: H&M
Skyrta: Spútnik
Kragi: Vintage markaður
Innblásturinn
frá 17. og 18. öld
Rakel Unnur
Thorlacius er 22 ára
og vinnur sem versl-
unarstjóri í Spútnik.
Rakel útskrifaðist í
fyrra en hún lagði
stund á fatahönnun við
Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ og stefnir á
stílistanám seinna meir
í Englandi.
Mánudagur
Skór: Gs Skór
Pils: Spútnik
Peysa: Berska
Skyrta: Gina Tricot
Jakki: Spútnik
Slaufa: Spútnik
Hattur: H&M
„Ég er ekki með
neinn sérstakan stíl,“
segir Rakel Unnur. „Ég
blanda bara því sem
mér finnst flott saman
og þannig skapa ég
minn eigin stíl. Fötin
kaupi ég mest í Spútnik,
Rokk og rósum og auð-
vitað H&M, Topshop og
Zöru. Ég pæli rosalega
lítið í hönnuðum og
horfi meira á heildina
og tek eftir fallegum
flíkum. Ég skoða mikið
af tískubloggum, þá sér-
staklega sænskum, og fletti
gegnum tískublöð þegar ég
kemst í. Innblástur tísku fæ
ég mikið frá 17. og 18. öld
þar sem blúndur og kragar
eru áberandi. Útskriftarlínan
mín byggðist einmitt á tísku
frá þessum tíma.“
Fékk heila skólínu gefins
Skóhönnuðurinn Christian Louboutin fer
hvergi leynt með dálæti sitt á Gossip Girl
stjörnuna Blake Lively. Fyrr í vikunni
brá leikkonunni heldur betur í brún þeg-
ar hún kom heim úr vinnunni þar sem
öll nýjasta skólína hönnuðarins,
sem varla hefur verið kynnt
ennþá hvað þá meira, beið
hennar í anddyrinu. „Þetta
er fallegasta skólína sem
ég hef séð. Ótrúlega
frumleg, skemmtileg
og sniðug,“
segir leikkonan á
samskiptavefnum
Twitter, alsæl með
sendinguna.
Miðvikudagur
Skór: Fókus
Sokkar: American Apperal
Buxur: Gamlar af mömmunrnar
Bolur: Zara
Hálsmen: Spútnik
Slaufa: Primark
Föstudagur:
Skór: Jeffrey Campbell
Sokkabuxur: kopra
Pils: Spútnik
Korselett: Rokk og rósir
Hálsmen: Spútnik
Fimmtudagur
Skór: Vintage markaður í London
Sokkabuxur: Primark
Kjóll: Saumaður af mér
Slaufa: Spútnik
Fyrir tíu árum mætti söngkonan
Jennifer Lopez með sinn fyrsta
ilm á markað undir nafninu
Glow. Ilmurinn var seldur fyrir
meira en þrettán milljarða króna
á fyrsta árinu og hefur þetta
verið einn vinsælasti ilmur síðari
ára. Nú, tíu árum seinna, mun
söngkonan koma með nýjan ilm
á markað sem verður settur á
markað undir nafninu Glowing.
Söngkonan segir hann vera
framhald af fyrri ilminum en
hreinni og kynþokkafyllri með
keim af viðarlykt. Ilmurinn mun
koma á markað rétt fyrir sumarið og en boðað er að þetta verði björt sumar-
lykt sem frískar upp á andrúmsloftið.
Nýr ilmur frá J.Lo