Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 17.02.2012, Blaðsíða 44
67% ... kvenna á höfuðborgar- svæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent okt.-des. 2011 36 ferðalög Helgin 17.-19. febrúar 2012 Á hugi minn á Indlandi kviknaði fyrir tilviljun. Vorið 2001 var ég að flækjast um á bakpokaferðalagi um Mið-Austurlönd og norður Afríku. Í Egypta- landi eignaðist ég félaga sem var á leiðinni til Indlands, en þar ætlaði hann að ferðast um á mótorhjóli og honum tókst að plata mig með. Við keyptum okkur Royal Enfield mótorhjól, sem upprunalega komu frá Eng- landi en hafa verið framleidd í Indlandi frá sjötta áratugnum.“ Ragnar og félagi hans óku hjólunum vítt og breitt um Indland mánuðum saman og lentu í allskonar ævintýrum. Ragnar segir að ferðin hafi breytt lífi hans og landið hefur átt hug og hjarta síðan. Sérhver dagur á Indlandi er veisla fyrir skynfærin og að ferðast um Indland er ei- lífðarverkefni. Þegar Ragnar Ólafsson, rokkari í hljómsveitinni Árstíðum með meiru, kynntist Indlandi fyrir tilviljun breyttist líf hans algjörlega. Ragnar segir okkur hér frá upplifuninni sem var því samfara að ferðast um landið þvert og endilangt á mótorhjóli og hvað það er sem heillar hann helst við Indland. Fjölbreytnin í náttúru Indlands, menningu og mannlífi er óendanleg. Ragnar Ólafsson Að aka um Indland á mótorhjóli gefur manni ótakmarkað frelsi. Frumskógar og eyðimerkur í uppáhaldi „Ég hef heimsótt Indland fjórum sinnum, ferðast um landið þvert og endilangt á Royal Enfield hjólum, og ekið samanlagt meira en 25 þúsund kílómetra. Frumskógarnir í Suður-Indlandi og eyðmerkurnar í Rajastan fylkinu eru í miklu upp- áhaldi hjá mér. En ég hef líka ekið tvisvar um Himalaya fjallagarðinn, og meðal annars farið hæsta veg í heimi, í gegnum Khardung La skarðið, sem liggur 5359 metra yfir sjávarmáli.“ Að aka um Indland á mótorhjóli gefur manni ótakmarkað frelsi, að sögn Ragnars: “Að fara hvert sem maður vill þegar það hentar manni. Maður kemst frá túrista- stöðunum og í nánd við „alvöru Indland“ og alla þá fegurð sem þar er að finna. En að aka um á mótor- hjóli er ekki alveg áhættulaust og maður þarf að fara varlega. Sjálfur hef ég nokkrum sinnum komist í krappan dans við náttúruöflin, langt utan alfaraleiða, og lent í ýmsu í umferðinni.“ Veisla fyrir skynfærin Indland er í senn sérstakasta og magnaðasta land sem Ragnar hef- ur heimsótt og hefur hann komið víða. Þetta er næst fjölmennasta land í heimi, með 1,2 milljarða íbúa, þar koma saman öll helstu trúarbrögð heimsins, og menning- inn er svo mikil og margbrotin að ómögulegt er að ná utan um þetta allt saman. Fjölbreytnin í náttúru, menningu og mannlífi er óendan- leg, og engir tveir staðir eru eins. „Sérhver dagur á Indlandi er veisla fyrir skynfærin og að ferðast um Indland er eilífðarverkefni. Fólk spyr mig oft hvort það sé ekki mikil fátækt á Indlandi, og hvort það sé óþægilegt að horfa upp á hana. Fátækt að mínu mati er afstæð og hún er ekki alltaf það sama og örvænting. Til að mynda getur fátækt skorið meira í augun í Bandaríkjunum þar sem viðmið lífskjara eru önnur.“ Indland eins og spegill sálarinnar Að sögn Ragnars eru samgöngur á Indlandi almennt þokkalega góðar; almenningssamgöngur (lestir, flugvélar, rútur) eru aðgengilegar og flestir tala eða skilja einhverja ensku. „Indverjar eru mjög gestristnir, kurteisir og forvitnir. Allt er frekar ódýrt á ís- lenskan mælikvarða, maturinn er ljúffengur og það er allstaðar hægt að finna gistingu við hæfi, þannig að það er í raun frekar auðvelt að ferðast um. En maður þarf að hafa þolinmæði. Ferðamenn sem koma til Indlands þurfa að taka við öllu með opnum huga. Helst ættu þeir að gefa sér tíma og vera þar í nokkrar vikur til að upplifunin nái að síast inn. En sama hvert er farið, og hversu lengi er dvalið, þá virðast allir sem heimsækja landið vera sammála um að Indland sé „sterk” upplifun. Ég held að dvöl á Indlandi geti kennt manni ýmis- legt um sjálfan sig. Indland er eins og spegill sálarinnar.“ Töfrarnir gerast þegar fólk villist Fyrir áhugafólk um Indland má nefna að leiðsögubækur Lonely Planet um það eru mjög góðar og afar hjálplegar, einkum fyrir þá sem eru að sækja Indland heim í fyrsta skipti. Í þeim er að finna mjög gagnlegar upplýsingar og ábendingar, og hugmyndir um at- hyglisverða og óvenjulega áfanga- staði. „Ég get líka mælt með að menn leggi leiðsögubækurnar frá sér annað slagið og villist í nokkra daga - þá fyrst gerast töfrarnir. Ef ég á að nefna fjögur orð sem lýsa töfrum Indlands þá eru þau: iðandi mannlíf, kryddilmur, margbrotin náttúra og ótrúlega fjölbreytt menning,“ segir Ragnar – ekki samur eftir að hafa farið um þetta víðfeðma, magnaða og fjölmenna land. -akm Indland er spegill sálarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.