Fréttatíminn - 17.02.2012, Qupperneq 8
Hjúkrunafræðingar og læknar á bráðamóttöku gera endurlífgunaraðgerð á sjúklingi á bráðamóttöku spítalans við Hringbraut
fyrir nokkrum árum. Mynd/Inger Helene Bóasson
Miðborgin ÁrÁs við skeMMtistað
Hrottaleg líkamsárás
tattúeraðs ofbeldismanns
Skemmtanahald langt undir morgun endar á slysadeild þar sem starfsmenn taka á móti úrvinda
fólki eftir ofskammt af skemmtunum. Hrottaleg árás fyrir utan Faktorý um síðustu helgi sker sig
ekki úr öðrum í miðbænum um helgina.
s kemmtistaðirnir eru opnir alla nótt-ina um helgar og við sjáum merki þess að það er ekki hollt,“ segir Elísa-
bet Benedikz, yfirlæknir bráðalækninga á
Landspítala, spurð um hvort læknar merki
meiri hörku í mið-
bænum. Hún segir
erfitt að meta slíkt,
en álagið á bráða-
móttökuna vegna
skemmtanahalds
sem fari úr bönd-
unum, sé mikið og
hafi verið í langan
tíma. Mest sé það
upp úr miðnætti og
svo aftur í morg-
unsárið.
„Við sjáum tölu-
vert af ungu fólki
sem kemur und-
ir morgun ef t ir
að hafa verið að
skemmta sér allt
kvöldið og alla
nótt ina. Það er
dauðadrukkið og
úrvinda eftir of-
skammt af skemmtun,“ segir hún. Oft er
fólk svo drukkið að það kemst ekki heim til
sín af bráðamóttökunni: „Þá er töluvert um
örvandi fíkniefni. Fólk er því oft mjög hátt
uppi, æst og jafnvel ofbeldisfullt á bráða-
móttökunni.“
Um þrjátíu manns urðu vitni að hrotta-
legri líkamsárás fyrir framan skemmti-
staðinn Faktorý á Smiðjustíg aðfararnótt
sunnudags. Tattúeraður karlmaður, ber að
ofan, barði ungan mann og skildi eftir í blóð-
polli fyrir framan staðinn. Vitni sáu þar sem
hann braut glas framan í honum, kýldi hann
í höfuðið þar til hann lá í götunni og spark-
aði í það. Klukkan var hálf fimm að morgni.
Verið var að loka staðnum.
Vitni lýsir því hvernig þetta hafi allt gerst
á um tíu sekúndum. Enginn hafi treyst sér
eða fengið ráðrúm til að stöðva manninn
á þessum stutta tíma. Árásarmað- ur-
inn hélt upp á Laugaveg eftir að
hafa klæðst rauðum stutterma-
bol. Eftir lá fórnar-
lambið alblóðugt;
nefbrotið. Stuttu
síðar hafi lög-
reglan komið
á staðinn og
f lutt slasaða
manninn á
spítala.
Samkvæmt upplýsing-
um lögreglu hefur árásin ekki verið kærð.
Ekkert í skýrslum lögreglunnar bendi til
þess að árásin hafi verið alvarlegri en aðrar
í miðbænum um helgar. Glös virðist oft vopn
ofbeldismanna á skemmtistöðum borgar-
innar. Þrátt fyrir óhugnanlegar lýsingar
virðist ekki sem ofbeldið sé að aukast.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Nefbrotinn. Læknar
á bráðamóttöku
takast á við erfið
eftirmál skemmtana-
halds þegar líða fer
á nóttina. Myndin er úr
safni. Mynd/gettyimages
Toyota Land Cruiser 4x4
árg. 2008, ekinn 82 þús. km.
2982cc, sjálfsk. dísil
Subaru Forester 4x4
árg. 2009, ekinn 31 þús. km.
2000cc, beinsk. bensín
Ford F150 4x4
árg. 2006, ekinn 70 þús. km.
5409cc, sjálfsk. bensín
Toyota Land Cruiser 35” 4x4
árg. 2004, ekinn 141 þús. km.
2982cc, beinsk. dísil
Nissan Patrol 4x4
árg. 2007, ekinn 79 þús. km.
2953cc, sjálfsk. dísil
Ford Expedition 4x4
árg. 2007, ekinn 98 þús. km.
5400cc, sjálfsk. bensín
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og KIA á Íslandi.
Verð áður: 6.490.000 kr.
Verð nú: 2.190.000 kr.
Verð nú: 5.790.000 kr.
Verð nú: 2.950.000 kr.
Verð áður: 3.390.000 kr.
Verð nú: 3.190.000 kr.
Verð áður: 3.790.000 kr.
Verð áður: 2.990.000 kr.
Verð nú: 3.890.000 kr.
Verð áður: 4.590.000 kr.
Verð nú: 3.890.000 kr.
Verð áður: 5.490.000 kr.
Kia Sorento
Eigum úrval Kia Sorento
bifreiða, dísil, sjálfsk.
Hyundai i10
árg. 2011, ekinn 25 þús. km.
1086cc, beinsk. bensín
Verð frá 1.990.000 kr.
Kia cee’d
Eigum úrval Kia cee’d bifreiða
bensín, beinsk. 1.4
Verð frá 1.950.000 kr.
Tilboðsverð: 1.590.000 kr.
TILBOÐSBÍLAR
á verði sem lætur engan ósnortinn
40 sóttu um flugmanns-
stöðu hjá Gæslunni
Um fjörutíu
manns
sóttu um
tvö laus
flugmanns-
störf hjá Landhelgisgæslunni sem auglýst
voru til umsóknar. Um er ræða stöður fyrir
Dass 8 300 vél Gæslunnar. Svanhildur
Sverrisdóttir, starfsmannastjóri Land-
helgisgæslunnar, segir í samtali við Frétta-
tímann að auðsýnilega sé mikill áhugi
fyrir starfinu. Umsóknarfrestur rann út 7.
febrúar og segir Svanhildur að unnið sé að
því að flokka umsóknirnar. Gert er ráð fyrir
því að þeir flugmenn sem ráðnir verða hefji
störf í byrjun næsta mánaðar. -óhþ
Fiskikóngur vill
dýpka kjallara
Fiskikóngurinn ehf, sem rekur samnefnda
fiskbúð á Sogavegi, hefur sótt um leyfi til
byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar til að
dýpka kjallara um
25 rúmmetra og
breyta innrétt-
ingum. Hyggur
fiskikóngurinn á
að innrétta starfs-
mannaaðstöðu og
byggja útitröppur
í norðvestur-
horni lóðarinnar.
Afgreiðslu málsins var frestað á fundi í
síðustu viku og vísað til athugasemda á
blaði eins og stendur í fundargerð. -óhþ
Arabískt félag á meðal
eigenda 365
Það kennir ýmissa grasa í hluthafahópi
fjölmiðlarisans 365. Ingibjörg Pálmadóttir
er þar langfyrirferðarmest en einnig á
félagið Fjölmiðill ehf
rétt tæplega fjögur
prósent hlut. Það hét
áður Eignarhalds-
félagið SHH og var í
eigu Stefáns Hilmars
Hilmarssonar, fram-
kvæmdastjóra 365,
sem úrskurðaður hefur
verið gjaldþrota. Í dag
er það í eigu félagsins Fjolmidill Holding
Limited sem er með heimilisfestar í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum. -óhþ
8 fréttir Helgin 17.-19. febrúar 2012