Fréttatíminn - 17.02.2012, Qupperneq 16
Dularfull
veikindi
settu strik í
reikninginn
Hún missti nærri af bankahruninu vegna veikinda sem hún glímdi við á þeim tíma. Hún
sigraðist á þeim með hjálp sjúkraþjálfara, er full jákvæðni og orku og lætur lífið koma
sér á óvart. Þó ekkert kæruleysislega á óvart, því Hugrún Halldórsdóttir, fréttamaður
á Stöð 2, er skynsöm. Ljósmynd/Hari
H
ugrún Halldórsdóttir hrífst
ekki auðveldlega, hefur
ekki lent í ástarsorg og
segist vera svona hálfgerður
Chandler í Friends – ætli það
þýði þá að hún breiði yfir óöryggi með háði,
spotti og kaldhæðni? Nei, sjálf segir hún að
skjöldinn setji hún upp svo hún verði ekki
stungin í hjartastað; svona eins og háðfugl-
inn Chandler ver sig.
Velta má því fyrir sér hvort Hugrún sé þó
ekki frekar Grace úr Will & Grace, því hún
stólar á besta vin sinn Ragnar. Þau Ragnar
& Hugrún hafa síðustu þrjú árin leigt
saman á Laugavegi og hafa fylgst að frá því
í fyrsta bekk í barnaskóla. Þau eru ekki par.
„Hann er svo skilningsríkur og svo rólegur
þegar ég er „tense“.“
Fram að því var hún rígbundin vesturbæ
Kópavogs. Hún bjó á Borgarholtsbrautinni
alla æsku sína og fram á miðjan þrítugs-
aldur. Ákvað að sækja framhaldsnám í MH,
en saknaði þá svo vina sinna úr Kópavogi
að hún mætti næstu önn í MK. Hún hleypti
þó heimdraganum og fór í spænskunám
í Salamanca á Spáni fyrir tíu árum síðan,
þá nýorðin átján ára. Og hún var Au Pair í
Lúxemborg eftir menntaskólanám.
Hugrún hefur lífgað upp á sjónvarpsfrétt-
irnar. „Enda fellur mér vel að vinna jákvæð-
ar fréttir,“ segir hún þar sem hún kemur
sér fyrir á Kaffitári í Borgartúni, vippar af
sér jakkanum og bíður eftir beyglu og gosi
sem hún pantaði í afgreiðslunni.
Í skuldafeni eftir veikindi
„Ég var lengi heima hjá mömmu og pabba.
Og draumurinn er að kaupa af þeim húsið
einn daginn,“ segir hún og brosir svo
skín í skjannahvítar tennur og spékoppur
myndast í kinn hennar. Hún er miðjubarn
foreldra sinna, á eldri systur „sem er alveg
eins og ég, bara þremur árum eldri“ og
yngri bróður. Hún lýsir því að það hafi ekki
komið til af góðu að hún flutti ekki fyrr að
heiman.
„Ég lenti í skuldafeni. Ég varð veik á há-
skólaárunum og fékk yfir mig bylgjur af
námslánum sem fóru á yfirdrátt. Ég ákvað
því að spara á meðan ég ynni mig út úr því.“
Það var því ekki vegna óráðsíu, kaup-
gleði og bílalána sem skuldirnar hlóðust
upp. Hún lá rúmföst í nærri eitt ár, sem er
ástæða þess að hún var ekki með hugann
við hrunið heldur heilsu sína. „Sársaukinn
stafaði af hálsliðunum. Árið 2002 byrjaði ég
að fá hausverkjaköst sem ágerðust þar til ég
árið 2007 til 2008 að ég lá rúmföst. Ég man
rosalega lítið eftir þessum tíma. Ég var
Framhald á næstu opnu
16 viðtal Helgin 17.-19. febrúar 2012